Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 15.MAÍ2004
Fréttir 0V
Undir áhrifum
á stolnum bíl
Lögreglumenn á ferð
um Öskjuhlíð í fyrrinótt sáu
til ferða ungs pilts í bíl á
þeim slóðum en hann tók
til fótana er hann varð lög-
reglunnar var. Vildi ekki
betur til en að pilturinn,
sem er undir tvítugsaldri,
hljóp beint í fangið á
ómerktum lögreglubíl. í ljós
kom að pilturinn hafði
brotist inn í íbúð og m.a.
stolið bíllyklum og síðan
tekið bíl heimilisins
traustataki. Ungi maðurinn
reyndist undir áhrifum
vímuefna. Hann fékk gist-
ingu í fangageymslum en
var síðan sleppt að yfir-
heyrslum loknum í gær.
Hafnarfjörður
vill tækni-
háskóla
„Það er Hafnarfirði mik-
ilvægt að fá háskóla í bæ-
inn," segir í ályktun sem
bæjarstjórn Hafnarfjarðar
sendi frá sér á dögunum.
Það hefur lengi verið í um-
ræðunni að gera Hafnar-
fjörð að háskólabæ. Á nýju
deiliskipulagi bæjarins er
gert ráð fýrir stúdentagörð-
um uppi á völlum og nú
hefur Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar skorað á mennta-
málaráðherra að huga vel
að þeim kosú sem Hafnar-
fjörður býður upp á gagn-
vart staðsetningu og upp-
byggingu Tækniháskóla fs-
lands.
Grasagarður
í Eyjum
Umhverfisnefnd Vest-
mannaeyja hefur lýst
ánægju með þá tillögu
Gísla Óskarssonar að útbú-
inn verði grasagarður með
plöntum sem vaxa í Vest-
mannaeyjum. „Grasagarð-
urinn, með sýnishorn af
plöntuflóru Vestmanna-
eyja, yrði til prýði og að
auki gott kennslutæki fyrir
nemendur og aðra," segir í
tillögu Gísla. Umhverfis-
nefndin telur hugmyndina
góða og vill að garðyrkju-
stjóri bæjarins geri tillögur
um útfærslu grasagarðsins.
Frumvarp um sölu áfengis í matvörubúðum verður afgreitt í
fyrsta lagi í haust. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, segir að frumvarp hans muni ná brautargengi.
Bjór og léttvín í
búðir næsta ór?
Frumvarp 12 þingmanna úr þremur flokkum um að leyfa sölu
léttvíns og bjórs í matvörubúðum verður ekki afgreitt í vor. Von-
ir standa til þess að það náist að afgreiða frumvarpið næsta
haust, að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Sjálfstæðisflokki,
sem er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
„Þetta mun koma, það er ekki
spurning. Það er bara spurning hvað
menn telja rétta punktinn," segir
Guðlaugur. Gangi allt eftir hjá flutn-
ingsmönnum munu matvörubúðir
geta selt bjór og léttvín í fyrsta lagi
um mitt næsta ár, eða áramótin
2005/2006.
Matvörubúðum verða sett ýmis
skilyrði varðandi söluna. í frum-
varpinu er gert ráð fyrir að sveitar-
stjórnir setji þær reglur að ekki megi
afgreiða áfengi eftir klukkan 8 á
kvöldin. Þá má afgreiðslufólk undir
20 ára ekki selja áfengi. Auk þess
mega söluturnar, blaðsöluturnar og
matsöluvagnar ekki selja áfengi.
Áfengi sterkara en 22 prósent verður
ekki selt í matvörubúðum. Breið
pólitísk samstaða virðist vera um
málið og hefur Frjálslyndi flokkur-
inn gefið til kynna stuðning sinn við
frumvarpið. Vinstri grænir eru á
móti frumvarpinu.
Þingmennirnir tólf leggja einnig
til að það verði tekið til skoðunar að
lækka áfengisgjald um 50 prósent
fram tfi ársins 2007. Áfengisgjald á
íslandi er mun hærra en í viðmiðun-
arríkjum í Evrópusambandinu.
Þannig fær íslenska ríkið 2.646 krón-
ur af hverjum seldum lítra af sterku
áfengi, 462 krónur fyrir léttvínslítr-
ann og 161 krónu af hverjum bjór-
lítra. Til samanburðar er ekkert gjald
lagt á léttvín í Þýskalandi, á Spáni og
fleiri ríkjum innan ESB, og lang-
hæsta gjaldið í sambandinu er 263
krónur á írlandi. Finnar taka hæst
gjald af bjór í ESB, eða 86 krónur, en
Svíar 69 krónur, Danir 40 krónur og
Spánverjar aðeins 8 krónur.
í rökstuðningi fyrir lækkun á
áfengisgjaldi í frumvarpinu segir að
ferðamenn kvarti gjarnan undan
háu áfengisverði hér á landi, aukn-
ing sé á heimabruggi og smygli og að
ólíklegt sé að lækkun á gjaldinu leiði
til verulegrar aukningar í áfengis-
neyslu, miðað við reynslu annarra
ríkja.
jontrausti@dv.is
Þessir vilja bjór og
léttvín í matvörubúðir:
r
Guðtaugur Þór Þórðarson, Ágúst Úlafur
Ágústsson, Birgir Ármannsson, Arnbjörg
Sveinsdóttir, Þétur H. Blöndal, Brynja
Magnúsdóttir, Bjarni Benediktsson,
Björgvin G. Sigurðsson, Sigurður Kári
Kristjánsson, Gunnar Birgisson, BirkirJ.
Jónsson, Einar Már Sigurðarson.
Ekki tollar
á eldislax
íslenskir laxeldismenn
hafa ástæðu til að anda
léttar þessa dagana því Evr-
ópusambandið hefur
frestað ákvörðun sinni um
að setja refsitoll á eldislax
frá Noregi, Færeyjum, Chile
og íslandi. Ekki er vitað til
hvaða annarra ráða ESB
kann að grípa til að vernda
fiskeldi innan sinna
landamæra sambandsins
en samkvæmt vefsíðunni
Intrafish er talið líklegt að
það verði í formi innflutn-
ingskvóta. Standa íslend-
ingar vel að vígi í þeim efh-
um þar sem innflutningur
þeirra er aðeins brot af inn-
flutningi hinna landana.
Innbrot í
Mosfellsbæ
Laust eftir miðnætti í
fyrrinótt var lögreglunni
tilkynnt um innbrot í
fyrirtæki í Mosfellsbæ.
Rúða var brotin
og farið inn en
ekki er vitað til
þess að neinum
verðmætum hafi
verið stolið. Seinna um
nóttina var broúst inn í
grunnskóla í höfuð-
borginni. Gluggi var
spenntur upp og
skjávarpa stolið. Bæði
málin eru í rannsókn.
Fjórir
sækja um
Fjórir hafa sótt um emb-
ætti héraðsdómara sem
fyrst um sinn mun starfa
við Héraðsdóm Reykja-
i vflcur en síðar taka að
' sér störf víðar á land-
inu. Dómsmála-
k ráðherra, Björn
; Bjarnason, mun
i skipa í embætt-
* ið frá og með 1.
Fseptember á
þessu ári og hafa fjórir sótt
um. Arnfríður Einarsdótúr,
skrifstofustjóri við Héraðs-
dóm Reykjavíkur og starf-
andi héraðsdómari, hér-
aðslögmennirnir Sigrún
Guðmundsdótúr og Þor-
steinn Pétursson aukÁs-
geirs Magnússonar sem
starfar sem hæstaréttarlög-
maður.
Formaður Samtaka gegn fátækt
Skýrslan er blaut tuska
„Þessi skýrsla starfshóps ráðherra
um fátækt á íslandi er eins og blaut
mska framan í fátæka. Ég skil ekki að
það hafi þurft sautján fundi til að fá
fram svona þunnt og innihaldsrýrt
plagg. Við £ samtökunum hefðum vel
getað upplýst starfshópinn um stöðu
fátækra, ef honum hefði dotúð í hug
að bjóða okkur á sinn fund," segir Sig-
rún Ármanns Reynisdótúr, formaður
Samtaka gegn fátækt, aðspurð um fá-
tæktarskýrsluna svokölluðu, sem
starfshópur undirmanna fjögurra ráð-
herra skilaði af sér fyrir skömmu.
Skýrslan hefur verið gagnrýnd
harðlega og tekur Sigrún undir með
þeim sem gagnrýna að skýrslan leggi
engar raunvertúegar lausnir fram,
utan að benda á sveitarfélögin en
horfir framhjá skyldum ríkisins.
„Starfshópurinn virð-
ist á engan hátt gera sér
grein fyrir þeim veruleika
sem fátækir á íslandi búa
við. Hann virðist halda að
fátæktin einskorðist við
fólk sem leitar til Félags-
þjónusmnnar eða stend-
ur í biðröðum hjá
Mæðrastyrksnefnd. En
það em ekki næstum allir
fátækir sem treysta sér til sigrún Ármanns
að taka þau þungu spor. Reynisdóttir Mikill fjöldi
Margir treysta sér eldd í fólkshefurvarttilhnifsog
samskipú við embættis- skeiðarog býrvið mikla
menn eða skammast sín erfl6leil<a-
fyrir að leita til hins opinbera. Stað-
reyndin er sú að það er mikill fjöldi
fólks sem hefur vart til hnífs og skeið-
ar og býr við mikla erfiðleika. Það er
stór hópur fólks sem býr
við fátækt sem ekki var
til fyrir 10-15 árurn,"
segir Sigrún.
Hún bendir á að rflc-
ið hafi ekki efnt loforð
um t.d. lækkun virðis-
aukaskatts á matvæli.
„Ég ræddi við fulltrúa
forsætisráðherra í
starfshópnum og spurði
hvers vegna ekki hefði
verið rætt við okkur.
Hann svaraði að starfi
nefndarinnar hefði verið
settur „þröngur rammi".
Ég held hins vegar að ástæðan hafi
verið áhugaleysi á því að taka al-
mennilega á málinu," segir Sigrún.
Góður afli í aprfl
Afli íslenskra fiskiskipa í aprfl var
rétt rúm 80 þúsund tonn eða 10%
meiri en í sama mánuði í fyrra,
samkvæmt upplýsingum sem Hag-
stofa íslands birú í gærmorgun.
Verðmæti aflans jókst nokkru
minna á sama tíma eða um 3,4%,
mælt á föstu verði. Á fyrstu fjórum
mánuðum árisins var afli íslenskra
skipa ríflega 10% minni í tonnum
talið en á sama tímabili í fyrra. Afla-
verðmæúð jókst hins vegar á sama
tíma um 6,4%.