Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 15. MAl2004
Fréttir l>V
Britney
allsber
Mynd sem
sýnir Britney
Spears nakta fer
nú eins og eldur
um sinu á net-
inu. Ekki er vitað
hvort myndin sé
virkilega af söng-
konunni en ef ekki segja
sérfræðingar að annað
hvort sé hún af stelpu sem
er mjög lík söngkonunni
eða um virkilega góða föls-
un sé að ræða. Heimildir
segja að myndinni hafi ver-
ið lekið frá Playboy en ekki
hefur enn fengið staðfest
hvort Britney hafi nokkurn
tímann lagt leið sína þang-
að í þeim erindagjörðum
að láta mynda sig.
Lét hana
gossa fyrir
frægðina
Eins og allir vita sem
fylgjast hafa með Bachelor
valdi Bob Estellu Gardinier
í síðasta þætti. Þar sem við
erum dálítið langt
á eftir er margt
búið að gerast síð-
an þau birtust
hamingjusöm í
síðasta þættinum
á fimmtudaginn.
Nú hafa þau við-
urkennt að sam-
bandið sé farið út
um þúfur. í viðtali
við Estellu kemur
fram að hún trúi enn að
Bob sé hinn eini sanni en
hann lét hana gossa til að
nýta sér frægð sína og
koma sér áfram sem söngv-
ari. „Hann er ekki sá sem ég
hélt að hann væri,“ sagði
Estella með tárin í augnum.
Bob sagði Estellu upp í
gegnum síma rétt eftir að
þau höfðu mætt í brúðkaup
Tristu og Ryans.
Borgarstjóri Istanbúl saknaði Selmu Björnsdóttur þegar íslenski
Eurovisionhópurinn hitti hann í partí í gær. Þá fóru íslendingar í viðtal á CNN
áður en að Ruslana frá Úkraínu tróð upp á skemmtiferðaskipi. Á mánudaginn
tekur íslenskur raunveruleiki aftur við hjá Eurovisionförunum.
Borgarstjori biður
fyrir Mjur til Selmu
Það fer vel um Eurovision-faranna okkar í Tyrklandi. Humar og
rjómi í hvert mál, fimm stjörnu hótel, lífverðir fylgja þeim hvert
fótmál og allir ferðast um á skemmtiferðaskipum. „CNN var
hérna í gær og tók viðtal við pabba minn,“ segir Sveinn Rúnar
Sigurðsson, höfundur íslenska lagsins.
Það fer vel um Eurovision-faranna
okkar í Tyrklandi. Humar og rjómi í
hvert mál, fimrn stjörnu hótel, h'fverð-
ir fylgja þeim hvert fótmál og allir
ferðast um á skemmtiferðaskipum.
„CNN var hérna í gær og tók viðtal við
pabba minn," segir Sveinn Rúnar Sig-
urðsson, höfundur íslenska lagsins.
Bandarísku sjónvarpsmennirnir hafa
sýnt íslendingunum mikinn áhuga og
fóru með þeim á skemmtiferðaskip í
gær. Að því loknu var haldið í partí
sem úkraínski hópurixm stóð fyrir og
þar tróð íslandsvinurinn Ruslana
upp. „Partíið var smekkfullt af frægu
fólki og ekki skemmdi fyrir hversu
glæsilegt skemmtiferðaskipið var.
Meðfram því siglu tveir smábátar og
sprautuðu vatni upp í loftið sem síðan
var lýst um með ljóskösturum, mjög
fögur sjón,“ segir Sveinn Rúnar sem
hélt svo á dansklúbb í Istanbúl þar
sem dansað var fram að lokim. „Við
fórum á þennan stað sem heitir
Euroclub og þar var gríðarleg stemn-
ing. Það vildi svo skemmtilega til að
síðasta lagið sem var sett á fóninn þar
var lagið hennar Selmu, All Out Of
Luck. Þá fýrst varð allt vitlaust og fólk
frá öllum löndum söng með," segir
Sveinn. Selma Björnsdóttir er því
greinilega í miklum metum hjá
Eurovision-aðdáendum hvarvetna
þótt fimm ár séu liðin frá þátttöku
hennar í keppninni. Meðal þeirra sem
íslenski hópurinn hitti í gær var sigur-
vegari keppninnar frá því í fyrra og
borgarstjóri Istanbúl. Að sjálfsögðu
þekktu allir vel til Selmu og söknuðu
þess að hafa hana ekki með í hópnum
en Selma var sérlegur dansráðgjafi
Jónsa fyrir keppnina í ár. Var beðið
fyrir kveðjur til Selmu sem situr heima
á íslandi með lida barnið sitt og horfir
á Eurovision-keppnina í sjónvarpinu
eins og við hin.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 50. útdráttur
3. flokki 1991 - 47. útdráttur
Ruslana Tróð upp á skemmtiferðaskipi i
gær þar sem CNN tók viðtal við
Islendingana. Ruslana sést hér ásamt
Davið Oddssyni, myndin var tekin i
Úkraínu fyrr á árinu.
Selma Er i miklum metum hja
Eurovision-aðdáendum,
þ.á.m. borgarstjóra Istanbúl.
1. flokki 1992 - 46. útdráttur
2. flokki 1992 - 45. útdráttur
Háloftin tölvuvædd
1. flokki 1993 - 41. útdráttur
3. flokki 1993 - 39. útdráttur
1. flokki 1994 - 38. útdráttur
1. flokki 1995 - 35. útdráttur
1. flokki 1996 - 32. útdráttur
3. flokki 1996 - 32. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júlí 2004.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer
úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í Morgunblaðinu
laugardaginn 15. mai. UppLýsingar um útdregin húsbréf má
finna á heimasíðu íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
S
Ibúðalánasjóður
| Borgartúni 21 1105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
Flugmenn fá fartölvur
Rúmlega 240 flugmenn Flugleiða
fá fartölvur frá fýrirtækinu ef þeir
samþykkja kjarasamning í atkvæða-
greiðslu sem hefst 19. maí. „Við
megum nota þær á flugi, en það má
ekki tengja hana við sírna," segir
Halldór Sigurðsson, formaður Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna.
„Þetta er ekki kjarabót. Tölvurnar
eru fýrst og fremst til nota við okkar
vinnu, námskeiðahöld og annað.
Þetta er mikil hagræðing fyrir Flug-
leiðir," segir hann.
Fartölvur er bæði hægt að nota til
gagns og gamans og segir Halldór
það ekki skemma fyrir að hafa tölv-
una tiltæka í þeim fjölda tilfella sem
flugmenn dveljast á hótelherbergj-
um erlendis. Guðjón Arngrímsson,
upplýsingastjóri Flugleiða, segir að
tölvurnar verði í eigu fyrirtækisins.
„Þessi breyting er liður í nútíma-
væðingu á vinnuferlum, samskipt-
um og þjálfun flugmannanna, og í
takt við það sem tíðkast hjá öðrum
flugfélögum," segir Guðjón í tölvu-
sendu bréfi við fýrirspum DV.
Reiknað er með að atkvæða-
greiðslu um kjarasamninginn ljúki
ekki fyrr en 1. júm' næstkomandi
vegna þess að flugmenn eru enn
sem áður á ferð og flugi. í verkahring
þeirra liggur allt frá venjubundnu
áædunarflugi yfir í ferjun brottrækra
afbrotamanna af erlendum uppruna
frá Bandaríkjunum. Varðandi launa-
kröfur flugmanna vill Halldór segja
það eitt að þau hækki um 3,25 pró-
sent ffá 1. maí. „En ég gef ekki upp
laun flugmanna,."