Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 30
v' 30 LAUGARDAGUR 15. MAÍ2004 Fókus DV 4 $ * Viöbrögð George W. Bush við hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 voru mjög furðuleg, svo ekki sé meira sagt. Hann virtist algerlega áhyggjulaus þar sem hann sat í skólastofu í Flórída og hlustaði á upplestur barna. Sumir telja viðbrögðin sanna að hann hafi vitað um árásirnar fyrirfram. Eða sé einfaldlega varla með á nótunum. Ja, ég sat þama í skóla l Flórída. Ég haföi farið þangað niður eftir til að segja litla bróður mínum hvað hann œtti að gera, og - bara að grínast, Jeb! (Hlátur) Og - þetta er mamman í mér. (Hlátur) Alla vega, ég var í miðju kafi að frœðast um lestrarátak sem virkar. Ég trúi mjög sterkt á grunnmenntun, og hún byrjar á því að maður gengur frá því að hvert einasta barn lceri að lesa. Og þess vegna, þá þurfum við að einbeita okkur að þeim vísindum að lesa, ekki því sem manni finnst gott eða sem hljómar vel hvað varðar að kenna börnum að lesa. (Fagnaðarlceti) Ég er bara að auglýsa aðeins lestrarátakið mitt. Alla vega, þarna sat ég, og starfsmannastjórinn minn - ja, sko, allra fyrst, þegar við vorum aö labba inn í kennslustofuna, þá hafði égséð þessa flugvél jljúga inn í Jyrri turninn. Það var sjónvarp ígangi. Og þið vitið, éghéltað þetta vceru mistök flugmannsins og ég var alveg steinhissa að einhver gceti gert svona hrceðileg mistök. Ogþað vareitthvað að hjá vélinni, eða - alla vega, þarna sit ég, hlusta á fundinn og þá kom Andy Card [starfsmannastjóri] og sagði: ,Ameríka hefur orðið fyrir árás. “ Og í millitíðinni, þá var þessi kennari að mala um námsepiið, og ég var að hugsa um hvað það þýddi aðAmeríka hefði orðið fyrirárás. Það var mjög merkileg tilhugsun. En ég ákvað alveg, að ef Ameríka hejði orðið fyrir árás, þá mundum við ná þeim! (Fagnaðarlœti) Ég hafði engan áhuga á lögfrceðingum, ég hajði engan áhuga á einhverjum umrceðubunka. Ég hafði bara áhuga á að komast að því hver hejði gert þetta og koma réttlcetinu yfir þá. Ég vissi líka að þeir mundu reyna aðfela sig, og allir sem sceju þeim fyrir griðastað, aðstoð, mat, mundu vera dregnir til ábyrgðar af Bandaríkjunum Norður-Ameríku. (Fagnaðarlœti) Alla vega, þetta var merkilegur dagur. flugmaðurinn hafi gert „hræðileg mistök“. Fyrir nú utan það hvað lýsing Bush á atburðunum virðist furðulega léttúðug, sérstaklega miðað við hversu skammt var liðið frá árásunum þegar hann spjallaði við gesti í Ontario, þá hefur ofangreint „frávik frá sannleikanum" orðið til að beina athygli margra að helst til furðulegri ffamgöngu Bush daginn sem árásin var gerð. Og ekki aðeins Bush heldur og þeirra sem voru í fylgdarliði hans þennan morgun þegar farþegaþotur tóku að falla af himnum ofan. Skýringar hafa fáar fengist á því sem undarlegt þykir. í besta lagi virðast Bush og menn hans sekir um ótrúlegt dómgreindarleysi og jafnvel skeytingarleysi á hættustundu. í versta lagi r segja aðdáendur samsæriskenninga - þá gæti hegðun Bush þennan morgun bent til þess að hann hafi vitað mun meira um árásirnar en hann lét í veðri vaka. Fyrirfram. Og þess vegna ekki haft neinar sérstakar áhyggjur. Hvað sem því líður er atburðarásin í meira lagi skrýtin. 0759 Flug 11 leggur af stað frá Boston áleiðis til Los Angeles. Um borð er 11 manna áhöfn og 81 farþegi, þ.á.m. ftmm al Kaída-Iiðar. 0814 Flug 175 leggur af stað frá Boston áleiðis til Los Angeles. Um borð er 9 manna áhöfn og 56 farþegar, þ.á.m. fimm al Kaída-liðar. 0815 Flugræningjar ráðast til atlögu við Flugll. 0820 Flug 77 leggur upp frá Washington áleiðis til Los Angeles. Um borð er 6 manna áhöfh og 58 farþegar, þ.á.m. fimm al Kaída-liðar. Um sama leyti fer flugumferðarstjóra að gruna að Flugi 11 kunni að hafa verið rænt. 0828 Flug 11 snýr af leið yfir Massachusetts og stefnir á Manhattan. 0841 Flugumferðarstjórn lætur herstjórn loks vita af því að Flugi 11 hafi verið rænt. 0841 Flug 93 leggur af stað frá Newark í New Jersey áleiðis til San Francisco. Um borð er 7 manna áhöfn og 37 farþegar, þar á meðal fjórir al Kaída- liðar. 0842 Flugi 175 er rænt yfir New Jersey. Herstjórn er strax látin vita. 0846 Flug 11 flýgur rakleitt inn í nyrðri turn World Trade Center. 0848 CNN flytur fyrstu fréttir og myndir af atburðum. Þær eru framan af mjög óljósar og engar myndir eru birtar af flugvélinni sem flaug á turninn fyrr en löngu síðar. Myndir eru eingöngu af brennandi turninum. 0850 Forstjóri CIA, George Tenet, situr að morgunverði með þingmanni og fær þá þær fregnir að „ráðist hafi verið á“ WTC þótt flestir hafi þá enn talið að um slys hafi verið að ræða. Tenet segir þingmanninum umsvifalaust að þessi árás beri „öll merkibin Ladens". 0852 Tvær F-15 orrustuþotur fara á loft frá Otis Air Base og stefna í átt að Manhattan. 0855 Flugi 77 er rænt um þetta leyti yfir Ohio. Vélin snýr í austurátt og svarar ekki fýrirspurnum flugum- ferðarstjóra sem missa sjónar af henni og láta herstjórn ekki vita af flugráninu fýrr en hálftíma síðar. George W. Bush kemur í bílalest að Booker-grunnskólanum í Sara- sota í Flórída. Hann fær þá þær fregnir að flugvél hafi flogið inn í annan tvíburaturninn. Svo virðist sem hann og aðrir í fylgdarliði hans telji atburðinn vera slys. Ekkert sjónvarp er á göngum skólans þar sem Bush hefði getað fýlgst með fréttum. Hann á stutt símtal við Condoleezu Rice, öryggisráðsgjafa sinn, sem stödd er á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu. 0900 Bush gengur í skólastofu þar sem 2. bekkjar nemar ætla að lesa fyrir hann. 0901 Flugumferðarstjórar á Long Island veita því skyndilega athygli að óþekkt flugvél - Flug 175 - er ekki að koma til lendingar, heldur stefnir beint á Manhattan. 0902 Flug 175 æðir inn í syðri turn WTC. Þá fyrst gera menn sér grein fýrir því að um skipulagða árás er að ræða en ekki slysfarir. 0905 Andrew Card, starfsmannastjóri Hvíta hússins, læðist til Bush forseta þar sem hann situr og hlustar á börnin lesa og segir honum að farþegaþota hafi flogið á seinni WTC-turninn. Svo bætir hann við: „Ameríka hefur orðið fyrir árás.“ Bush starir sviplaus út í tómið nokkrar sekúndur. Hann leitar ekki nánari skýringa frá Card. Síðan snýr hann sér aftur að börnunum og hvetur þau áffam við lesturinn. Hann situr kyrr á sínum stað í skólastofunni í meira en átta mínútur án þess að sýna nein viðbrögð um að eitthvað hafi komið fyrir. Þvert á móti virðist allt með felldu í fari hans. Hann hlustar m.a. á upplestur á sögu um tamda geit. Stöku sinnum hvetur hann börnin áfram: „Þið lesið frábærlega, váá ... þið hljótið að vera í sjötta bekk!“ Leyniþjónustumenn sem fýlgja forsetanum gera enga tilraun til þess að stöðva upplesturinn eða koma forsetanum í öruggt skjól enda þótt þá þegar hafi verið hafhar í fjölmiðlum vangaveltur um að hryðjuverkamenn kynnu að ráðast gegn forsetanum sjálfum, en heimsókn hans í skólann hafði verið kynnt opinberlega mörgum dögum fyrr. Enginn aðstoðarmanna forsetans rótar sér á nokkurn hátt. Seinna meir gefa bæði forsetinn og aðstoðarmenn hans skýrt til kynna að hann hafl strax bmgðist við eftir að Card hafði fært honum fréttirnar og tekið við stjórn aðgerða. Bush sagði t.d. strax sama kvöld: „Um leið og ég heyrði um fyrrí árásina þá setti ég í gang neyðaráætlun okkar.“ Það er einfaldlega rangt. í fyrsta lagi vom engar neyðaráætlanir til og öll viðbrögð við atburðum dagsins urðu embættismenn að spinna af fingmm fram. í öðm lagi gerði Bush sjálfur nákvæmlega ekkert í málinu fýrr en löngu síðar, hvorki eftir fyrri árásina, né þá seinni. Til em myndbandsupptökur frá dvöl Bush í skólastofunni sem sýna svo ekki verður um villst hversu lengi hann sat þar kyrr og lét eins og ekkert væri. Reynt hefur verið að afsaka aðgerðaleysi forsetans og algeran skort hans á viðbrögðum með því að hann hafi ekki viljað „hræða börnin" og jafnvel ekki viljað „tmfla þau við lesturinn". í ljósi hinna fordæma- lausu atburða sem vom að gerast utan skólastofunnar verður það að teljast einhver ótrúlegasta kurteisi sem um getur í veraldarsögunni. Að auki ber leyniþjónustumönnum skylda til að taka ráðin af forsetanum ef þeir telja ástæðu til að ætla að h'fi hans sé ógnað. Enginn inni í skólastofunni gerir sér grein fyrir því af fasi Bush að neitt sé skrýtið að gerast. Þetta er lýsing George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, af því hvernig hann frétti fýrst af árásum á tvíburaturnaturna World Trade Center þann 11. september 2001. Þessi lýsing kom fram þegar Bush svaraði spurningum gesta á fundi um efnahagsmál sem fram fór í Ontario í Kaliformu þann 5. janúar 2002. Þá voru aðeins rúmir þrír mánuðir ffá árásinni. Eigi að síður er ljóst að þessi lýsing Bush er alröng hvað eitt mjög mikilvægt atriði snertir. Bush varð alls ekki vitni að því þegar fyrri farþegaþotan flaug á fullri ferð inn í annan tvíbura- turninn. Þaðan af síður sá hann seinni árásina. Lýsingin er því heilaspuni Bandaríkjaforseta og hann hefur augljóslega búið til í huga sér myndina af því þegar hann horflr á árásina og meira að segja upphugsað tilbúin viðbrögð: að Booker-grunnskólinn Ardrew Card segir Bush fréttirnar af Flugi 175.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.