Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Qupperneq 23
I>v Fókus LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2004 23 Eurovision-keppnin fer fram í Istanbúl á Tyrklandi í kvöld. Eurovision-fararnir okkar voru orðinir nokkuð spenntir í gær en höfðu á orði að Jónsi væri sá rólegasti af þeim öll- um. Hann segist ekki taka neitt mark á spánum sem gerðar hafa verið fyrir keppnina. iónsi ætlar bara að framkvæma atriðið eins og hann hefur æft þaó en ætlar lítið að velta ppendunum gengur ÍbíÉw f Eg tek ekkert mark á þessum spám," segir Jón Jósep Snæ- björnsson sem syngur fyrir fsiands hönd I Eurovision í kvöld. fslenski hópurinn er búinn að vera f Istanbúl í Tyrklandi f viku þar sem æfingar, partfhald og blaða- mannafundir hafa tekið mestan tfma þeirra. Stóra stundin rennur svo upp f kvöld kl. 19 þegar bein útsending frá keppninni hefst. Sveinn Rúnar, höfundur lagsins var í gær orðinn nokkuð spenntur líkt og hinir i hópnum. Þau segja þó að Jónsi hafi verið sá rólegasti af þeim öllum. „Mér er f raun alveg sama hvort við lendum í fyrsta eða síðasta sæti og ég læt þessar spár ekki hafa nein áhrif á mig. Fyrst og fremst er gaman að hafa fengið að taka þátt f þessu ævintýri," segir Jónsi sem hefur Iftið verið fyrir að gefa út einhverjar yfirlýs- ingar fram að þessu. Blaðamenn ytra hafa spurt hann spjör- unum úr og Ifkt og DV hefur greint frá hefur Jónsi svarað öllu á mjög vandaðan og yfirvegaðan hátt fram að þessu. Hann hefur komist hjá þvf að móðga nokkurn mann ef frá er talið atvikið með Bosnfu þar sem einhverjir fór á mis við húmorinn f Jónsa þar sem hann túlkaði lag Bosínumanna á sinn eigin hátt. Nú hefur komið í Ijós að Bosníumenn verða í úrslitum ásamt Jónsa en hann segir það engu skipta hverjir hafi kom- ist áfram úr undanúrslitunum. „Það breytir litlu fyrir mig hverjir komust áfram f úrslitin. Það fá allir sínar þrjár mínút- ur á sviðinu og ég mun einfaldlega framkvæma atriðið eins og víð höfum æft það. Ég mun að sjálfsögðu gera mitt besta en er ekkert að velta mér upp úr mótherjunum," segir Jónsi. Hann hefur Iftið verið fyrir það að spá fyrir um hvaða sæti hann lendir f fram að þessu og þegar hann var spurður var svarið einfalt. „Við skulum bara sjá hvernig fer að leikslok- um." Sveinn Rúnar, höfundur lagsins, hefur heldur ekki viljað skjóta á hvaða sæti Island lendir f þótt hann hafi gefið það frá sér í hálfkæringi fyrr f vikunni að stefnan væri sett á að rústa keppnina. „Ég verð f raun sáttur ef við verðum einhvers stað- ar þar sem veðbankarnir hafa sett okkur," sagði Sveinn en vfðast eru (slendingar f kringum 12. sætið. Stöku veðbankar hafa þó sett Island f fjórða til sjöunda sæti á meðan aðrir setja okkur alveg niður í 16. sætið, en sú tala er fslendingum að góðu kunn..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.