Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 Fréttir DV Dreifbýlis- dropinn dýrari æðinu þar í kemur HÉl að fá^/^a ana Bensínverð er mun hærra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu þar sem samkeppnin kemur neytend- til góða. Selfoss er eini staðurinn á landsbyggðinni þar sem hægt er líterinn af 95 oktana bensíni á minna en hund- rað krónur. Algengt er að lægsta verð á landsbyggð- inni sé 108,90 krónur fyrir líterinn en lægsta bensín- verð á landinu er í Hafnar- firði á 99,70 krónur og í Kópavogi og á Selfossi 99,80 krónur fyrir líterinn. Þetta kom fram í könnun Neytendasamtakanna sem gerð var á miðvikudag. Hjálmarvarar Sjalla við „Við munum ekki sætta okkur við stórfelldar skatta- lækkanir (og um leið minni tekjur ríkissjóðs) um leið og fjöldatakmark- anir verða inn- leiddar í háskóla og framhaldsskól- ar vísi hundruðum nýnema frá sér. Skoðum hvert svigrúmið er í ríkisfjármál- um og verjum því til góðra verka. Skoðum heildar- myndina - lækkum skatta en verjum líka menntakerf- ið, heÚbrigðiskerfið og vel- ferðina í heild sinni. Við getum ekki samtímis lækk- að skatta og lagt skólana í rúst. Þjóðin hefur hvorki efni né vilja til þess," segir Hjálmar Arnason, þing- maður Framsóknarflokks- ins, á heimasíðu sinni - og beinir væntanlega til sam- starfsflokksins í ríkisstjórn- inni. Loðnan fundin Gullberg VE - 292 fann loðnu í gærkvöld um 80 sjómílur norður og norð- austur af Hornbjargi, en Gullbergið er eitt fimm ís- lenskra loðnuskipa sem er nú við loðnuleit norður af landinu. Gullbergið var komið með um 500 tonn í gær og á stað um 100 mílur norður af Horni fann skip- ið fyrstu loðnutorfurnar og fékk þar um 350 tonn í tveimur köstum í gær- morgun. Samkvæmt upp- lýsingum frá miðunum er mikið af hval á þessum slóðum sem bendir til að töluverð loðna sé til staðar á svæðinu. Afrískir Qársvikamenn hafa ekki hikað við að drepa menn sem þeir hafa verið að pretta. Þetta eru oft menn sem eru í annarri glæpastarfsemi, eiturlyhasmygli, morð- um og mannránum. Talsmaður bresku leyniþjónustunnar sem fylgist með slikum glæpum, kannast við aðferðirnar sem Dalvíkingurinn Sigvaldi Gunnlaugsson féll fyrir. Sigvaldi í klóm morðingja segir bresk levnibjónusta „Þetta er hættulegt fólk. Menn hafa verið myrtir eða þeim rænt þegar þeir hitta þessa fjársvikamenn," segir talsmaður bresku leyniþjónustunnar sem fylgist með alþjóðlegum fjársvikum. Þessi leyniþjónustustofnun fylgist sérstaíclega með fjársvikurum frá Vestur-Afríku og kannast vel við svik af því tagi sem Dalvík- ingurinn Sigvaldi Gunnlaugsson féll fyrir. Talskona ljársvikadeildar bresku lögreglunnar sagði að menn sem væru í svipuðum sporum og Sig- valdi sem ætiaði að græða stórfé með því að ná peningum út af bankareikningi í Nígeríu, gætu end- að dauðir. „Þeir sem eru í þessari fjársvikastarfsemi eru oft í öðrum glæpum, þetta geta verið morðingj- ar, mannræningjar, þeir geta einnig verið í því að skera fólk upp, taka úr þeim innyfli og selja þau á svörtum markaði," segir talskonan. Tals- maður leyniþjónustunnar kannað- ist ekki við þessa líkamspartasölu í tengslum við fjársvikarana en sagði þá oft geta verið mannræningja, morðingja, heróínsmyglara og menn sem smygla fólki milli landa. Það er því ljóst að Sigvaldi setti sig í stórhættu með því að sælda saman við þessa menn. Eins og fram kom í DV í gær tap- aði Sigvaldi fjórum milljónum króna í viðskiptum sínum við svindlara í Nígeríu. Hann féll fyrir bréfi sem Nígeríumaður skrifaði í þeirri von að fá einhvern til að hjálpa sér við að ná peningum sem r b (i «t rrrrrBnnnrs tý. rprnnn n Höfuðstöðvar bresku leyniþjónustunn- ar Leyniþjónustustofnunin NCIS fylgist með alþjóölegri glæpastarfsemi og skoðarsér- staklega fjársvik Nígerfumanna og glæpi þeim tengd. „Guð minn góður, féli hann fyrír þessu?" spurði talskona fjársvikadeildar lög- reglunnar. lágu óhreyfðir á reikningi í nígerísk- um banka. Engir dollarar í álkistunni Talsmaður leyniþjónustunnar, NCIS, kannast við að þegar fórnar- lömbin séu byrjuð að missa trúna, sé sett upp stefnumót þar sem pen- ingar eru sýndir. Það gerðist í tÚfelli Sigvalda. Hann fór og hitti mennina í Madrid á Spáni og var með þeim í vöruskemmu þar sem þeir sýndu honum seðlabúnt, fulla álkistu af dollaraseðlum. „Þetta hafa ekki ver- ið dollaraseðlar heldur búnt af pappírsmiðum í svipaðri stærð og peningar. Afrfkumennimir hafa síð- an í einstökum tilvikum náð að gabba menn til að sýna þeim að hreinsiefni virkar. Þeir hafa jafnvel á stundum leyft fórnarlambinu að eyða 100 dollurum." í tilviki Sigvalda gat hann ekki orðið við því að kaupa hreinsiefni á fjórar milljónir króna og peningarnir vom sendir til Suð- ur-Afríku, að því að honum var sagt. Talsmaður leyniþjónustunnar segir oft erfitt að hafa hendur í hári þessara svindlara og leggur að fólki að gæta sín. „Þeir skipta oft um símanúmer og bankareikninga sem gerir erfitt um vik að fylgjast með þeim og ná þeim," segir hann. í hitteðfyrra féll dómur í eina Frá Nígeríu /Nígeríu starfa fjársvikamenn sem erfitt er að hafa hendur íhári á. málinu sem Special Fraud Office í London hefur sótt. I því vom tveir Nígeríumenn, búsettir í London, dæmdir í þriggja og hálfs árs fang- elsi fyrir að svíkja í það minnsta átján manns. Þeir játuðu að hafa svikið hálfa milljón punda út úr fólki með því að biðja um fyrirfram- greiðslur til að losa um háar pen- ingaupphæðir sem átti að flytja út fyrir Vestur-Afríku. Talið er að meðaltap þeirra sem lenda í klónum á nígerískum fjársvikurum sé í kringum fjórar milljónir króna, eða svipuð upp- hæð og Sigvaldi tapaði. Græðgin rekur menn áfram „Guð minn góður, féll hann fyrir þessu?" spurði talskona fjársvika- deildar lögreglunnar. „Þetta snýst náttúrlega fyrst og fremst um græðgi," segir hún. „Það er gott að miða við þá reglu að ef það hljómar of gott til að vera satt, þá er það of gott til að vera satt," segir upplýs- ingafulltrúi bresku rannsóknarlög- reglunnar um fjársvikamál þar sem fólki eru boðnar háar upphæðir fyr- ir lítil viðvik. Hann segir fjölmarga falla fyrir slíkum gylliboðum því að fólk vilji oft græða peninga með lít- illi fyrirhöfn. Allir sem DV talaði við voru sam- mála um að oft væri erfitt fyrir lög- reglu að rannsaka þessi mál, meðal annars vegna þess að þeir sem yrðu fyrir barðinu á svikurunum upp- lifðu sig sem samseka, vegna þess að ætlunin hefði verið að komast yfir illa fengið fé. „Ef þú ert að spá í að nota rann- sóknarblaðamennsku á þessa menn, þá skaltu fara varlega," segir talskona fjársvikadeildar bresku lögreglunnar og ítrekaði að þeir væru stórhættulegir. kgb@dv.is Endurskoðandi sem kom ekki auga á 80 milljóna fjárdrátt Starfslokaforstjóri fyrir rétt Gunnar Örn Kristjánsson, fyrr- verandi forstjóri SÍF, mætir fyrir rétt klukkan eitt í dag. Þá verður þingfest ákæra í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir honum fyrir brot á lögum tnn end- urskoðendur. Gunnar var forstjóri SíF, þessa fyrrum stærsta fyrirtækis landsins, í áratug en hætti fyrirvaralaust í byrj- un febrúar. Þá hafði Ríkislögreglu- stjóri um langt skeið rann- ES33ÉS9I sakað hvort Gunnar kynni að hafa brotið lög um endurskoðendur í vinnu sem hann hafði til hliðar við störf sín sem forstjóri. Gunnar Öm starfaði áður sem endurskoðandi og hélt réttindum sínum til að endurskoða reikninga til að geta sinnt verkefnum fýrir vini sína meðfram forstjórastörfum. Hann skrifaði athugasemdalaust upp á reikninga Tryggingasjóðs lækna um árabil á meðan Láms Trausti Haiidórsson: „Til dæmis sendi ég fyrirspurn til Hæstaréttar um afhverju lögin virka ekki fyrir mig eins og aðra," segir Jón Trausti Halldórsson, sem kæröi íslenska rlkið vegna þess að hann taldi að ekki væri staðið við lagalega skuldbindingu um að veita honum mannsæmandi fram- færslu. Málinu var vísað frá dómi á grundvelli formgalla og þess að það væri óskiljanlegt.„Svo 1 vantar mig beturlaunaða vinnu, ég er alltafað sækja um,“segir Jón, sem er bensíndælumaður i á Ártúnshöfða. Halldórsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, dró sér 80 milljónir króna, samkvæmt ákæm, af eftirlaunum læknanna. Láms og Gunnar Öm em gamlir vinir, lærðu og unnu saman á endurskoðendaskrifstofu Björns Steffensen. í máli Tryggingasjóðs lækna bar Gunnari Erni, sem endurskoðanda, að fylgja lögum um endurskoðendur og hefði átt að komast að fjárdrætti Lámsar að mati Ríkislögreglustjóra. Málið gegn Lámsi er rekið fyrir dómstólum fyrir fjár- drátt. Tugir lækna krefj- ast einnig bóta vegna þess að Lárus tæmdi sjóðinn sem þeir ætl- uðu að eiga til elliár- anna. Gunnar Örn hætti hjá SÍF með 80 miUjóna starfsloka- samning febrúar. Gunnar Örn Kristjánsson Fyrrverandi forstjóri SlF er ákærður fyrir að hafa vanrækt skyldur stnar sem endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.