Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Síða 11
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 25. JÚNl2004 11
Fá ekki mót
en byggja þó
Bæjarstjórn Árborgar
ætlar að halda til streitu
áformum um að verja 205
milljónum króna til að reisa
íþróttamannvirki þrátt fyrir
að ekki hafi verið orðið við
umsókn sveitarfélagsins
um að Landsmót UMFÍ
yrði haldið þar árið 2007.
Árborg hafði skuldbundið
sig í umsókninni svo halda
mætti slíkt stórmót með
sóma. Samþykkt var í gær
að halda fast við áætlanir
um uppbyggingu við Sund-
höll Selfoss og á íþróttavall-
arsvæðinu við Engjaveg á
Selfossi, þrátt fyrir að um-
sókninni hafl verið haftiað.
Endurútgefin
saga
Forsætisráðuneytið end-
urútgefur rit Agnars Klem-
ensar Jónssonar um sögu
Stjómarráðsins frá 1904-
1964. Ráðuneytið segi rit
Agnars hafa reynst einkar
gagnlegt. Brot bókarinnar
hefur verið stækkað til
samræmis við brot Stjóm-
arráðs íslands 1964-2004.
Ekkert bólar enn á þriðja
bindi síðari hluta Stjórnar-
ráðssögunnar sem koma
átti út 17. júní eftir að út-
gáfudeginum hafði einu
sinni áður verið frestað.
Ástæðan er ágreiningur rit-
stjórans og höfundar kafl-
ans um Davíð Oddsson.
Eyddu of
miklu
Mikil vonbrigði em í
bæjarráði Hveragerðis með
það að fjárhagsáætlun síð-
asta árs stóðst ekki. Mistök
við gerð ársreiknings ársins
þar á undan, hærri lífeyris-
sjóðskuldbindingar en
reiknað var með og fleira
em sagðar vera skýringar.
„Þá veldur
áhyggjum
að villur í
áhættulfk-
ani valda
skekkju á
tveimur
liðum,
annars
vegar
launa-
tengdum
gjöldum í grunnskóla og
hins vegar fjármagnsgjöld-
um. Stærstu frávikin í árs-
reikningi bæjarins koma
því ekki til vegna umfram-
keyrslu einstakra mála-
flokka," segir bæjarráðið
sem íhugar nú sölu eigna
bæjarins: „Þegar er til skoð-
unar sala á Hitaveitu
Hveragerðis."
Umboðsmaöur Alþingis segir Ríkisútvarpið hafa staðið ranglega að ráðningu Boga
Ágústssonar í stöðu forstöðumanns fréttasviðs. Jón Ásgeir Sigurðsson. einn um-
sækjenda um stöðuna, kærði þar sem hann fékk ekki aðgang að upplýsingum um
hverjir hefðu gefið ráðningarfyrirtæki út í bæ umsögn um hæfi hans í starfið.
Umboosmaður Alpingis
snuprar Ríkisútvarpið
Umboðsmaður Alþingis hefur kveðið upp úrskurð vegna kæru
Jóns Ásgeirs Sigurðssonar í framhaldi af ráðningu Ríkisútvarps-
ins í stöðu forstöðumanns fréttasviðs RÚV árið 2002.
Segir umboðsmaður að RÚV
hafi ekki staðið rétt að málinu og
beinir þeim tilmælum til stofnun-
arinnar að staðið verði rétt að
mannaráðningum í framtíðinni.
Fimm huldumenn í kviðdómi
Sem kunnugt er var Bogi Ágústs-
son ráðinn í forstöðumannsstöð-
una. í framhaidi af því fór Jón Ás-
geir fram á það við RÚV að hann
fengi uppgefið hverjir það voru sem
veittu álit um hæfi umsækjenda.
RÚV kvaðst á móti ekki geta veitt
Jóni Ásgeiri þær upplýsingar þar
sem stofnunin hefði þær ekki undir
höndum. Ráðgjafafyrirtækið
Deloitte & Touche hafi annast
ráðninguna og borið við trúnaði er
leitað var eftir því að fá uppgefin
nöfn álitsgjafanna, er voru fimm
talsins. Þegar þetta lá ljóst fyrir vís-
aði Jón málinu til umboðsmanns-
s.
í áliti Tryggva Gunnarssonar,
umboðsmanns Alþing-
is, segir að ljóst sé
að Ríkisútvarpið
gætti þess ekki
við ráðningu
í starf for-
stöðu-
manns
fréttasviðs
að tryggja að U
það fengi í 1
hendur öll
þau gögn sem
aflað var við und-
irbúning ráðning-'
arinnar og lágu
til grundvall-
ákvörðun um hver skyldi ráðinn.
Ríkisútvarpið hafi þó haft í frammi
viðleitni til að afla þessara gagna frá
Deloitte & Touche, en verið synjað
um þau af fyrirtækinu vegna trún-
aðar sem það hefði heitið álitsgjöf-
unum.
RJJV valdi að nota ráðgjafafyrir-
tækið við þessa ráðningu þar sem
vitað var að margir innanbúðar-
menn þar á bæ myndu sækja um
stöðuna. Var það ætlun stofnunar-
innar að tryggja þannig að hlutleys-
is yrði gætt. Umboðsmaður bendir
á að RUV hafi samt sem áður átt að
tryggja að farið væri að lögum í
málinu.
Uppfylltu ekki stjórnsýslu-
lög
„Þegar stjórnvöld leita atbeina
einkaaðila við töku stjórnvaldsá-
kvarðana ber þeim almennt að
tryggja að slíkt fyrirkomulag leiði
eldti til þess að réttarstaða
þeirra sem ákvarðanir
beinast að verði lakari
k en mælt er fyrir um í
stjórnsýslulögum.
Standi fullnægj-
| andi heimild að
rlögum til þess að
' stjórnvald leiti eft-
J ir aðstoð einkaað- #
i ila við undirbúning
I stjórnvaldsákvörð-
'unar er því meðal
fannars fær
leið að gera samning við hann um
aðstoðina þar sem einkaaðilanum
er gerð grein fyrir skyldum þeim
sem á stjórnvaldinu hvíla ... og að
ekkert í aðstöðu hans, til dæmis
verklagsreglur og vinnulag, hindri
að réttur málsaðila samkvæmt
stjórnsýslulögum og öðrum lögum
verði virtur," segir í áliti umboðs-
manns.
„Á Ríkisútvarpinu hvíldi sam-
kvæmt þessu sú skylda að tryggja
að sú ráðstöfun að leita atbeina
fyrirtækisins [Deloitte & Touche]
við undirbúning ráðningar í starf
forstöðumanns fréttasviðs stæði
því ekki í vegi að stofnunin gæti
uppfyllt skyldur sem á henni hvíldu
samkvæmt stjórnsýslulögum, með-
al annars um upplýsingarétt aðila
máls. í máli kæranda [Jóns ÁsgeirsJ
hafði Ríkisútvarpið ekki búið svo
um hnúta að réttarstaða hans
væri tryggð að þessu leyti."
um að það veiti Jóni Ásgeiri þær. Þá
hafi hann ekki, eins og starfssvið
hans er afmarkað í lögum, vald til
að beina tilmælum til Deloitte &
Touche um að það afhendi Jóni Ás-
geiri gögn þau sem hann bað um:
„Ég tek þó fram að ég hef hér
ekki teldð afstöðu til annarra úr-
ræða sem kæranda kunna að vera
tæk til að fá gögnin afhent eða um
hugsanlega bótaskyldu Ríkisút-
varpsins af þessu tilefni," segir um-
boðsmaður og að endingu:
„Ég beini þeim tilmælum til Rík-
isútvarpsins að það taki framvegis
mið af þeim sjónarmiðum sem
fram koma í áliti þessu," segir um-
boðsmaður Alþingis.
Umboðsmaður úr-
ræðalaus
Umboðsmaður segir í
niðurstöðu sinni
að þar sem
Ríkisút-
Sgtajk varpið
hafi
ckki
fram-
an
greindar
upplýs-
ingar undir |f|
höndum geti
hann ekki 1
beint til þess
tilmælum
Tryggvi Gunnarsson Beimr
þeim tilmælum til Ríkisútvarpsins
aö þaö taki framvegis mið af áliti
umboðsmanns.
Jón Ásgeir Sigurðsson
Kærði til umboðsmanns
Alþingis að hann fékk
ekki upplýsingar frá RUV.
Bogi Ágústsson
Var ráðinn í stöðuna.
Fréttastofa Stöðvar 2 bætti áhorfið gífurlega en Gísli Marteinn hrapaði
Þjóðin fagnar þeim
Samkvæmt nýrri fjölmiðlakönn-
un Gallup hefur fréttastofa Stöðvar 2
bætt gífurlega við áhorf sitt frá fyrri
könnun í mars sl. Fréttir Stöðvar 2
mælast nú með rúmlega 30% áhorf
en mældust með 21% áhorf í mars.
Þetta er aukning upp á tæp 50% í
áhorfi.
Gísh Marteinn tapar hinsvegar
mestu áhorfi á milli kannana og
mælist nú með 38% áhorf á móti
52% í síðustu könnun.
Hvað lestur dagblaða varðar hef-
ur lestur á Fréttablaðinu aukist frá
fyrri könnun í mars sl. Morgunblað-
ið og DV dala hinsvegar, Morgun-
blaðið tapar rúmum 2% en DV tapar
1% frá í mars.
Sigríður Ámadóttir, fréttastjóri
Stöðvar 2, er að vonum ánægð með
niðurstöður könnunarinnar. „Þetta
sýnir að það var hárrétt ákvörðun
hjá okkur að færa fréttatíma okkar til
og með því hefur okkur tekist að
brjóta 30% múrinn," segir Sigríður.
„Leiðin hjá okkur hlýtur að liggja
áfram upp á við og þetta einvalalið
sem vinnur á fréttastofunni hefur
sýnt og sannað að það er vel hægt.
Ég þakka þennan árangur fýrst og
ffernst góðu og hæfu starfsliði ffétta-
stofunnar."
Ef litið er á vinsældir einstakra
þátta á sjónvarpsstöðvunum kemur
í ljós að fréttastofa sjónvarpsins er
með mest áhorf eða rúm 42%.
Spaugstofan var í því sæti í síðustu
könnun en sá þáttur er nú í sumar-
fríi. Fréttir á Stöð 2 eru nú í efsta sæti
þar á bæ en næst á eftir kemur
American Idol með 27%.
Sem fyrr segir tapar Laug-
ardagskvöld með Gísla
Marteini mestu frá fyrri
könnun, fer úr 52% og nið-
ur í 38%. Vinsælasti þátt-
urinn á Skjá 1 er CSI með
24% áhorf.
Lestur á Fréttablaðinu fer
úr rúmum 66% í mars og í rúm
69%. Morgunblaðið fellur úr
53% og í 51% og lestur DV fer úr
20,5% í mars og í 19,5% nú.
er
Sigrfður Árnadóttir.íg
þakka þennan árangur fyrst og
fremst góöu og hæfu starfsliði
fréttastofunnar,"
fréttastjóri