Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Page 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 13
Teikaði bíl á
línuskautum
Ökumaður í Vest-
mannaeyjum var staðinn
að því í vikunni að leyfa
drengjum á línuskautum
að hanga aftan í bifreið
sinni og draga þá um hafn-
arsvæðið. Var þessi hættu-
legi leikur þegar stöðvaður
og ökumanni bent á þær
hættur sem eru þessu
samfara auk þess sem
hann var kærður vegna
þessa. Vill lögregla minna
á það að fyrir ekki löngu
síðan slasaðist ungur
drengur á línuskautum eft-
ir að hafa hangið aftan í
bifreið á ferð og dottið.
Varúð!
Pollamót
Lögreglan í Vest-
mannaeyjum vill minna
ökumenn á að gæta sér-
staklega að sér fram yfir
komandi helgi. Nú er að
byrja hið árlega polla-
mót með öllu sem því
fylgir, það eru hópar
ungra drengja gangandi
um bæinn. Þá koma
einnig margar fjölskyld-
ur til að fylgjast með
mótinu og eykst því um-
ferðin í bænum til
muna.
Panama ótt-
ast hryðjuverk
Ráðamenn í Panama eru
að koma á fót sérstakri ör-
yggissveit sem á að vernda
Panamaskurðinn fyrir
hugsanlegri árás hryðju-
verkamanna. Hafa menn
áhyggjur af því að hryðju-
verkamenn reyni að loka
honum og hafa þannig nei-
kvæð áhrif á heimsverslun-
ina. Höfuðverkefni öryggis-
sveitarinnar verður að afla
upplýsinga um hugsanlegar
hryðjuverkaárásir auk þess
að koma í veg fyrir pen-
ingaþvætti og eiturlyfja-
sölu. Ríkisstjórn Panama
tók við rekstri skurðarins af
Bandaríkjamönnum árið
1999. Alls fara um 4,5% af
öllum sjóflutningum í
heiminum um Panama-
skurðinn.
Tveir lOára
hnupluðu ís
Lögreglunni í Vest-
mannaeyjum barst ósk
um aðstoð að verslun-
inni 10-11 vegna hnupls
í fyrrakvöld. Þar höfðu
tveir 10 ára drengir
stungið inn á sig íspinn-
um og voru á leið með
þá út er þeir voru stöðv-
aðir. Var farið með
drengina heim þar sem
rætt var við foreldra
þeirra.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur ákveðið að hleypa fulltrúa frá bæjaryf-
irvöldum í Vestmannaeyjum í nefnd um samgöngumál milli lands og eyja. Bæjar-
stjórn og tveir bæjarfulltrúar meirihlutans höfðu áður harðlega gagnrýnt vinnu-
brögð Sturlu við nefndarskipanina í DV. Lúðvík Bergvinsson segist fagna því að
samgönguráðherra „hafi snúið frá villu síns vegar“. Sturla er nú með fulltrúum
ráðuneytisins á veiðum á Grænlandi.
Bæjarstjórn fyrirgelur
safflgönguráöjiínM
Sturla Böðvarsson segir í pistli á heimasíðu sinni að vinnubrögð
tveggja fulltrúa meirihlutans í Eyjum ómáleftialeg. Sturla segir
fyrst hafa heyrt af vanþóknun Eyjamanna á nefndarskipaninni í
DV. Lúðvík Bergvinsson, annar umræddra bæjarfulltrúa, segir
það rangt og að áður en DV hafi fjallað um málið hafi hann biðl-
að til ráðuneytisins um að bæjarstjórnin í Eyjum ætti fulltrúa í
nefndinni. Sturla Böðvarsson í heimastjórnarafmæli á Græn-
landi ásamt aðstoðarmanni og ráðuneytisstjóra.
Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðuneytis með ósk bæjarstjórnar
ráðherra hefur breytt fyrri ákvörðun
og hyggst nú skipa fulltrúa Vest-
mannaeyjabæjar í nefnd um fram-
U'ðarsamgöngur milli Eyja og lands.
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum
voru gröm yfir að fá ekki fulltrúa í
samgöngunefndina. Á heimasíðu
sinni sagði Sturla gagnrýni á nefnd-
arskipan sína ómálefnalega. En eftir
harða gagnrýni bæjarfulltrúa ædar
Sturla nú að skipa heimamann í
nefndina.
en því hafi Sturla ekki svarað. Lúð-
vík segir það jafnframt miður að
ráðherra skuli láta Vestmannaey-
inga líða fyrir persónulega óvild
Sturlu í sinn garð. Hann fagni því á
hinn bóginn að Sturla hafi nú
ákveðið að leiðrétta „klúður sem
viðhaft var við skipun neftidarinn-
ar“.
Ekki náðist í Sturlu Böðvarsson,
samgönguráðherra vegna málsins.
Sömu sögu er að
segja af ráðuneytis-
stjóra í samgöngu-
ráðuneytinu og að-
stoðarmanni ráð-
herra. Þær upplýs-
ingar fengust á íjar-
veru ráðherra að
hann væri ásamt
fulltrúum ráðu-
neytis að fagna 25
ára afmæli
heimastjórnar á
Grænlandi og því
'ekki í símasambandi
helgi@dv.is
IÁ veiðum á Grænlandi
,tl?,rla.hefur dkveðið aö skipa
I 'ulltrúa frá bæjarstjórn Vest-
mannaeyja í nefndina um-
I deildu sem skoða á sam-
I göngur milli lands og evin m
Bergur bætist í hópinn
„Þá hef ég ákveðið að núverandi
bæjarstjóri bætist í hópinn og hefur
hann tekið það verkefni að sér að
minni ósk,“ segir Sturla Böðvarsson
í pistli sínum.
Sturla vísar á bug í pisdinum
fullyrðingum Lúðvíks Bergvinsson-
ar bæjarfulltrúa í DV að samskipti
Sturlu við Vestmannaeyinga hafi
einkennst af fálæti. í lok pistilsins
lýsir Sturla því svo yfir að hann hafi
ákveðið að skipa núverandi bæjar-
stjóra, Berg Elías Ágústsson, í
nefndina umdeildu og með því telur
hann „ekki í kot vísað," hvað nefnd-
ina varðar.
Lúðvík fagnar stefnubreyt-
ingu
„Það er h'tið við þessum skrifum
að segja nema að ég fagna því að
hann hafi snúið frá villu síns vegar
en að öðru leyti verðum við að fýrir-
gefa ráðherra orðbragðið sem sann-
ar það að hann veldur ekki starf-
inu,“ segir Lúðvík Bergvinsson, að-
spurður um viðbrögð við skrifum
Sturlu.
Lúðvík segir rangt hjá Sturlu að
óánægja með skipun í nefndina hafi
fyrst verið opinberuð í fjölmiðlum.
Sjálfur hafi hann í fyrstu leitað til
NYR >
visir
visir
MMAUT!