Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Page 24
24 FÖSTUDACUR 25. JÚNÍ2004 Fókus DV Brian Eno Alllaf 10 árum á undan Þó að nafnið Brian Eno hringi kannski ekki bjöllum í hugum margra poppáhugamanna þá hefur þessi breski tónlistarmaður samt haft um- talsverð áhrif á tónlistarsöguna. Eno hefur sjaidan baðað sig í sviðsljósinu, f en hefur oft verið á svæðinu sem upp- tökustjóri eða ráðgjafi þegar tíma- mótaverk hafa orðið til. Eno hefur gef- ið út hátt í 40 sólóplötur. Nú hafa fjór- ar af þeim fimm fyrstu verið endurút- gefhar. Það eru Here Come The Warm Jets (1974), Taking Tiger Mountain (By Strategy) (1974), Another Green World (1975) og Before & After Sci- ence (1977). Allt frábærar plötur sem höfðu áhrif á marga þá tónlistarmenn sem heyrðu þær. Roxy Music Brian Eno er fæddur í Woodbridge á Englandi 15. maí 1948. Hann lærði myndlist í Winchester School of Art á árunum 1966-1969. Þar kynntist hann saxófónleikaramum Andy MacKay. ^ Hann lærði ekki á nein hljóðfæri, en hafði mikinn áhuga á tónlist. Þegar hann hitti Andy MacKay aftur fyrir til- viljun í neðanjarðarlest í Lundúnum rétt fyrir jólin 1970þábauðAndyhon- um að ganga til liðs við nýja hljóm- sveit sem hann var kominn í. Þetta var Roxy Music. Eno var meðlimur í Roxy á fyrstu tveimur plötunum, Roxy Music sem kom út 1972 og For Your Pleasure (1973). Hann spilaði á hljóð- gervil og setti mjög mildnn svip á út- komuna. Roxy Music er svoh'tið van- metin hljómsveit í tónlistarsögunni. Þrjár fyrstu Roxy-plötumar vom tíma- mótaverk sem höfðu mikil áhrif á næstu kynslóðir tónlistarmanna, sér- staklega pönkið og nýbylgjuna. Eftir *• gerð For Your Pleasure hætti Eno í hljómsveitinni og sneri sér að öðrum hlutum. Afbökuð rokktónist og ambient Roxy Music þótti skrítin hljóm- sveit, en Eno var samt of skrítinn fýrir hana. Það kom þess vegna ekki á óvart að þegar hann fór að gera sólóplötur þá vom þær ólíkar flestu sem áður hafði heyrst. Here Come The Warm Jets kom út í mars 1974. Hún innhélt 10 rokklög og var tekin upp með ýms- um hljóðfæraleikurum bæði úr Roxy % Music og öðrum. Eno gaf þeim frjáls- ar hendur og hvatti þá til að impró- visera. Útkoman er snilldarplata sem hljómar stundum eins og afbökuð eða bjöguð rokktónlist. Gítarsóló Roberts Fripp í laginu Baby’s On Fire er eitt og sér nógu góð ástæða til þess að kaupa hana. Taldng Toger Mountain (By Stra- tegy) kom út í nóvember sama ár. Hún hafði sterkari heildarsvip, en var tónlistarlega ekki ólík fyrri plötunni. Þetta er þemaplata. Sagan gerist í Kína kommúnismans og er „eins og James Bond endurskrifaður af Willi- e am Burroughs". Tónlistin á Another Green World sem kom út 1975 var að mestu án söngs. Hún var byggð í kringum stemningu og var fyrirboði ambinet-tónhstarinnar sem Eno átti eftir að snúa sér að fáum árum seinna. Before & After Science kom út 1977. Hún var síðasta poppplata Enos í langan tíma. Hún var unnin á sama tímabili og Low og Heroes sem Eno gerði með Bowie og er nokkuð skyld þeim. Pródúser og ráðgjafi Eftir útkomu Before & After Sci- ence sneri Eno sér alfarið að ambinet tónlist og að vinnu sem pródúser. Eno er stundum kallaður pabbi ambients- ins. Plötumar hans Music For Films (1978), Music For Airports (1978) og Day Of Radiance (1981) höfðu mikil áhrif á þróun raftónlistar og vom und- anfari ambient teknósins sem kom ffarn tíu ámm seinna. Sumir segja að þumalputtareglan sé: Það sem Eno gerir í dag gera aðrir tíu ámm seinna. Sem pródúser og ráðgjafi hefur Eno unnið með mörgum tónhstarmönn- 4 um, þ.á.m. John Cale, David Bowie, James og U2. Brian Eno á sinn bátt í gerð nokkurra af meistaraverkum rokk- sögunnar. Hér eru noKkur þeirra: David Bowie - Heroes (1977). David Bowie fékk Brian Eno til að vinna með sér Berfnarplöturnar þrjár; Low, Her- oes og Lodger. Eno átti stóran þátt í að gjörbylta tónlist Bowies og leiddi hann út á tilraunakenndari brautir. Talking Heads - Remain In Light (1980). Eno pródúseraði þrjár bestu Talking Heads plöturnar, More Songs About Buildings & Food (1978), Fear Of Music (1979) og Remain in Light (1980). Á þeim þróaðist tónlist hljómsveitarinnar úr einföldu rokki yfir í fjölþættan bræðing. .. s | Brian Eno/David Byrne - My Life In The Bush Of Ghosts (1981). Eno og Dav- id Byrne, forsprakki Talking Heads, unnu vel saman og gerðu þessa tfmamótaplötu sem blandaði saman heimstónlist, raftöktum og ambient. 10 árum á undan flestum öðrum. U2 - The Jos- huaTree (1987). Brian Eno pródúser- aði U2-plöt- urnarThe Un- forgettable Fire, The Jos- huaTree, Rattle & Hum og Achtung Baby ásamt Daniel Lanois. Hann átti sinn þátt f að breyta sveitinni úr efnilegri sveit f stórveldi. Hann pródúseraði líka Zooropa ásamt Flood. 7. Eno og myndlistarmaðurinn Peter Schmidt bjuggu til kortastokk sem þeir köiluöu Oblique Strategy Cards (,Dulin kænskuspin.Þetta eru lOOspilmeö áletraöri setningu ætluð til þessað hjálpa listamönnum sem eru stopp í einhverju verki sem þeir eru að vinna. Þú dregur spil og notar setninguna. 8. Eno var meðlimur í hljómsveitinn 801 ásamt Phil Manzanera. gitarleikara Roxy Music, o.fl. Platan 801 Live sem var tekin upp l.júní 1974ergleymdperla. 9. Eno er ekki bara tónlistarmaður. Hann er líka myndlistarmaður og hefur sýnt verksín viða. Þetta eru aðallega videó- verk. 10. Eno er mikill rassa-maður. Hann notar Photoshop til þess að stækka kvenmanns- rassa.„Skrítið hvað maður hefur alltaf áhuga á sömu hlutunum allt sitt llf/segir hann um þessa iðju...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.