Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Side 41

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Side 41
að hann liaíi verið i einu þetta þrent rithöfundur, skáld og mælskumaður og jafnframt verið alt þetta meira en í meðallagi. Bróðir hans Karl XV. fékst að vísu einnig við ritstörf og var vel hagmæltur, en ekki Þykir hann geta í því jafnast við bróður sinn, enda mun hann liafa gjört miklu minna að slíku en hann. Kn meðþessu er Oskar II. fremur lýst sem manni en sem konungi, því að til þcss að vera góður kon- Ungur útheimtist annað og meira en það, sem nú heíir nefnt verið, sem sé glögga þekkingu á þörfum Þegnanna, skilning á livaða meðul muni heillavæn- legust til að etla þrif þeirra, og einlægan vilja til að 'eiða þá inn á réttar hrautir. Vafalaust hefir Oskar haft mörg skilyrði til að ver'ða liinn bezti konungur Þegnum sínum beggja megin Kjalarins, og um ein- lægan vilja hans í því tilliti efast enginn. En hver svo sem dómur sögunnar kann að verða um rikis- stjórn hans, þá má ganga að því vísu, að þar verði ekki gleymt að geta þess jafnframt, að sjaldan hefir erfiðara hlutverk hcðið nokkurs þingbundins kon- ungs, en það, sem bcið Oskars, er hann tók við ríkj- um að bróður sínum, Karli XV., látnum. Það var i sept. 1872 og var Oskar þá enn maður á bezta aldri, rúmlega fertugur. Bróðir hans hafði eftirskilið honum allþungan arf, þar sem voru sam- handsmál ríkjanna beggja, að leiða þau til lykta svo háðir málsaðilar mættu vel við una, án þess að sam- hand rikjanna að öðru leyti raskaðist i nokkru. Á stjórnarárum fyrirrennara hans hafði rinnnan harðn- að ár frá ári, óánægja Norðmanna yfir afskiftum Svía af sérmálum þeirra farið sivaxandi og Sviar liins vegar gjörst æ ótilleiðanlegri til að sinna réttmætum kröfum Norðmanna um fullkomið sjálfstæði og jafnrétti hinan þeirra takmarka sem sambandslögin heimiluðu. Þjóðernistilíinning Norðmanna gat ekki unað því, að uéttindum þeirra væri traðkað af Svíum, og Svíum veitti erfitt að skilja, að Norðmenn ættu heimtingu á (31)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.