Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Blaðsíða 56
ílutningaskip kaupm. D. Thomsens í Reykjavík,
við Búðir á Snæfellsnesi mannbjörg varð með
naumindum. — S. d. Fiskiskip frá Eyjafirði strand-
aði við Bakka á Skagaströnd; skipstjórinn drukkn-
aði.
27. »Yrsa«,seglsk. með kolafarm til Björns kpm. Guð-
mundssonar í Rvík, rak par í land; menn komust af.
•—S. d. Frakknesk fiskiskúta, »Henriette«, strandaði í
Reykjavík; menn komust af. — S. d. Jón Diðriks-
son úr Árness. fjell úthj’rðis af fiskiskipi á Eski-
firði og drukknaði.
28. Norðlenzk fiskiskúta strandaði við Vigur, einn
hásetanna drukknaði. — S. d. Kolaskip Ásgeirs
kaupm. Sigurðssonar í Reykjavík sökk á Reykja-
víkurhöfn, menn voru ekki á skipinu.—S. d. Vöruskip
»Guðrúnu« sleit upp og rak á land við Stokkseyri;
menn komust af. — S. d. »Sirene«, franskt fiskiskip,
strandaði í Suðursveit í A.-Skaftafellss.; menn björg-
uðust. — S. d. strandaði annað franskt fiskiskip
á Sléttuleitafjöru; menn björguðust.
»Anna Sophia«, fiskiskúta frá ísafirði, eign Filippus-
ar Árnasonar, með 9 manns, og »Kristján«, eign
Sæmundar kaupm. Halldórssonar í Stykkishólmi,
með 11 manns, komu aldrei fram eftir pessi veður.
Sömu daga urðu víða á landi skaðar og skemmd-
ir. Torfi póstur á Eskifirði missti í fönn 115
fjár. —Á Borg fórust'um 100 fjár. — Tryggvi bóndi
Hallgrimsson á Bæjum misti nálægt 120 fjár. — A
Hamarsseli í Hamarsfirði tapaðist 100 fjár — I
Bjarnarnesi í Skaftafellssýslu misti bóndinn 30
fjár. í Öræfum fauk trjáviður, sem átti að byggj a .
úr bæ par. — Margar jarðir í Leiðvallahr. skemmd-
ust mikið af sandfoki og sömuleiðis á Rangárvöll-
um. — Á Fossi á Síðu fauk fjós og 2 hlöður. —
Hörgslandi á Síðu fjós. Á Breiðabólstað hlaða. —-
í Holti undir Eyjafjöllum fauk hlaða með heyi.
í Norðfirði fennti um 80 kindur. — Bóndinn í