Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Blaðsíða 55
Suður-og Vestur-land, og olli fáheyrðu manntjóni.
Aj>ríl 7. Fórst fiskiskipið »Ingvar«, eign Duusverzl-
unar í Reykjavík, á Viðeyjarsundi með 20 manns.
— S. d. fórst »Emilie«, eign kpm. Th. Thorsteinsson-
ar, við Mýrar, með 24 mönnum. — S. d. fórst »Sophie
Wheatly« par nálægt með 24 mönnum. — S. d»
sökk á Vogvík mótorbátur Björns kaupm. Guð-
uiundssonar í Rvk. — S. d. strönduðu 2 fiskiskútur
frá Eyjafirði við Aðalvík; menn komust af. — S. d.
strandaði fiskiskúta Ásgeirs Ásgeirssonar kaupm.
a Isafirði, »Garðar«; menn konmst af.
~~ 10. Lárus nokkur Samúelsson frá Eskifirði fannst
örendur milli Norðfjarðar og Eskifjarðar.
11- Á Reykjavikurhöfn kviknaði í fiskiskútunni
»Nelson«, eign Tangs verzlunar á ísaf.; eldurinn
gerði mikinn skaða, en varð slöktur áður cn skip-
ið brann alt. — S. d. í Breiðuvík á Öndvcrðanesi
fórst bátur i lendingu; 2 menn komust af, en 2
nienn drukknuðu. — S. d. í Grindavík fórst bátur
•ueð 5 mönnum.
15. Brynjólfur vinnumaður Sigurðsson, frá Höf»
í Hornafirði, drukknaði af hesti í Pveitarlæk.
~~ 17. Samkoma glimuijelagsins í Rvik. Verðlaun veitt.
19. Stýrimannajjróf (hið minna) tóku 19 nemend-
llr í Rvík. — S. d. sagt upp Lýðháskólanum á
Hvítárbakka í Borgarfirði; í honum voru 14 nem-
endur, 6 stúlkur og 8 piltar.
24. Guðrún Oddsdóttir, gift kona á Hálsi í Kinn,
varð bráðkvödd.
26.-28. Gengu enn ofsaveður yfir víða með sjáv-
argangi, sem gerðu tjón bæði á sjó og landi.
26. Guðmundur óðalsbóndi Einarsson, frá Nesi á
Seltjarnarnesi, fórst með öðrum manni af mótor-
bát, sem sökk nálægt Vatnsleysuströnd. — S. d.
strandaði fiskiskipið »Geysir«, eign Jakobs kaupm.
Björnssonar á Svalbarðseyri, rak í land í Vigur;
einn maður drukknaði. — S. d. strandaði »Agnes«,
(45)