Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Qupperneq 9
T
DV Fréttir
FIMMTUDAOUR 30. SEPTEMBER 2004 9
Náttúrugripir
í Kópavog
Fulltrúar Samfylkingar-
innar í bæjarstjórn Kópa-
vogs vilja að Náttúrugripa-
safn íslands verði flutt í
Kópavog. „Á Kópavogstúni
við Kópavog mætti koma
upp náttúrugripasafni í afar
áhugaverðu og gróðursælu
umhverfi, til að mynda í
endurbyggðu húsnæði
gamla holdsveikraspítal-
ans," segir í greinargerð
bæjarfúlltrúanna. Einnig
kemur til greina „að reisa
nýja glæsilega safnabygg-
ingu á ströndinni fast við
Kópavogsleiru".
Kókaín-æði
Ásgeir öm Ásgeirsson
játaði fyrir Héraðsdómi
Reykjaness í gær að hafa
flutt 140 grömm af kóka-
íni til landsins. Dómur
verður kveðinn upp í
málinu á föstudaginn.
Að sögn Sævars Lýðs-
sonar, fulltrúa Sýslu-
mannsins í Keflavík, ber
mikið á kókaínsmygli til
landsins þessa dagana. í
gær átti einnig að þing-
festa mál gegn Herði Sig-
þórssyrú sem var tekinn
með 160 grömm af kóka-
íni í Leifsstöð. Hörður er
staddur erlendis og því
þurfti að fresta réttar-
höldunum.
Vestfirskir framsóknarmenn eru þrumu lostnir vegna meðferðar þingflokksins á
Kristni H. Gunnarssyni alþingismanni. Björgmundur Guðmundsson. fyrrverandi
varaþingmaður, segir að stuðningsmenn þingmannsins muni fylkja sér að baki
honum og krefjast upprisu hans í nefndum.
Vestfirðingar vígbúast og
kreljast upprisu Kristins
Framsóknarmönnum á Vestfjörðum er mjög brugðið vegna
brottreksturs Kristins H. Gunnarssonar úr þingnefndum. Þeir
safna nú saman vopnum sínum og vígbúast í því skyni að reka
forystu flokksins til baka með þá ákvörðun að svipta þingmann-
inn nefndarsætum sínum.
„Ég er orðlaus vegna þessa. Nú
munum við stuðningsmenn Kristins
hugsa það mál hvernig hægt verður
að koma honum til valda innan
flokksins," segir Björgmundur Guð-
mundsson, fyrrverandi varaþing-
maður Framsóknarflokksins og einn
þungavigtarmanna flokksins á Vest-
fjörðum.
Aftöku Kristins innan þingflokks-
ins í fyrradag bar brátt að. Hjálmar
Ámason, formaður þingflokksins,
og Magnús Stefánsson, samherji
Kristins í Norðvesturkjördæmi, voru
meðal flutningsmanna tillögunnar.
Vestfirðingar, sem DV ræddi við, eru
ekki síst slegnir vegna þess sem þeir
kalla svik Magnúsar sem á sínum
tíma söng hið sígilda dægurlag
Traustur vinur. Aðeins Jónína
Bjartmarz sýndi Kristni móralskan
stuðning innan þingflokksins en
það var með því að sitja hjá við
afgreiðsluna. Björgmundur segir að
vissulega séu framsóknarmenn
slegnir vegna þessa.
„Norðvesturkjördæmi er í raun-
inni búið að missa besta þingmann-
inn. Við lítum þannig á að þau mál
sem Kristinn hefur barist fyrir séu
flestöllum flokksmönnum hugleik-
in. Hann hefur verið að berjast fyrir
hinn almenna flokksmann," segir
Björgmundur.
Hann segir að Kristinn eigi gott
bakland á meðal flokksmanna; ekki
aðeins á Vestfjörðum heldur um allt
land.
„Stór hópur mun berjast fyrir
upprisu BCristins. Framundan er
bæði kjördæmisþing og flokksþing
og þar munu menn láta í sér heyra
og segja álit sitt á þessum gjörningi,"
segir Björgmundur.
Hjálmar Árnason hefur lýst því í
fjölmiðlum að samband Kristins við
þingflokkinn hafi verið eins konar
kulnað ástarsamband og skilnaður
óumflýjanlegur. Björgmundur blæs
á þessi ummæli eins og hvert annað
bull.
„Pólitík er ekki ástarsamband.
Hún snýst um að koma hugmynd-
um og hugsjónum í framkvæmd.
Forysta þingflokksins er að gefa
okkur langt nef. Kristni er
úthýst vegna skoðana,
ekki bara sinna eigin,
heldur hins almenna
flokksmanns. Mér
finnst aðdáunarvert
að hann skuli ætla að
starfa áfram í þing-
flokknum. Þetta
sýnir glöggt hans
mikla styrk sem
stjórnmála-
manns," segir
Björgmundur.
rt@dv.is
Fókus er risinnu
Allt um djammiön
tónlistinai bióin
pp frá dauöum-
menningun tiskui
oq miklu meira til
■ Á! ■%, , ^ * 1 < /
»♦ wL t 4Í1L i Hf 1v / /
á.„ M m%x ■ /
í \j\_Æ ’-' ~ iHri iTr”nl
I