Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Sport DV
Þeim fer fjölgandi sem hafa áhyggjur af dvínandi vinsældum handboltans í land-
inu. Jóhannes Bjarnason, þjálfari handboltaliös KA, er einn þeirra. Telur
Jóhannes breytinga þörf hið fyrsta áöur en illa fari. Snúa þurfi vörn í sókn, meðal
annars með því að henda núverandi riðlafyrirkomulagi fyrir róða.
„Ég vil fá aftur deildar-
keppni eins og hún var
áður. Fyrsta deild, önn■
ur deild og svo hugsan-
lega utandeild á lands-
byggðinni."
„Áhugi almennings á handbolta fer minnkandi ár frá ári og er
brýn þörf á að taka á því máli hið allra fyrsta," segir Jóhannes
Bjarnason, þjálfari handboltaliðs KA á Akureyri. Hann hefur
sterkar skoðanir á stöðu íslenska handboltans og hefur miklar
áhyggjur af þeim minnkandi áhuga sem hann segir áberandi í
handknattleik í dag.
Þvert á það sem er að gerast hjá
öðrum Evrópuþjóðum hefur áhugi
landands á handbolta farið hratt
niður á við. Segir Jóhannes ástæður
þessa margar. Fyrst og fremst sé um
að ræða það skipulag sem sé á ís-
landsmótinu í dag.
Tvær ástæður
„Ástæðurnar eru að mínu viti sér-
staklega tvær. Fyrst er að nefna það
gríðarlega framboð sem er af öðru
íþróttaefni í fjölmiðlum. Ekki líður
dagur án þess að í sjónvarpi séu leik-
ir og þættir um knattspyrnu. Henni
er gert afar hátt undir höfði, meðal
annars á kostnað handboltans. Það
þýðir hka að þeim fækkar sem koma
á leiki í handboltanum. Fyrir
nokkrum árum mátti búast við allt
að 15 þúsund manns horfðu á stóra
leiki KA liðsins hér fyrir norðan. Nú
þykir tíðindum sæta ef þúsund
áhorfendur sýna áhuga. Það er gríð-
arleg breyting sem hefur mildl áhrif
á fjárhagsstöðu allra hða sem ekki
var þó beysin fyrir."
Hina megin ástæðuna segir Jó-
hannes vera það fyrirkomulag sem
notað er í handboltanum í dag.
„Þessi riðlakeppni er einfaldlega
ekki að gera sig. Með því á ég við að
minni spenna er fyrir leiki þar sem
hver og einn leikur skiptir minna
máh heldur en áður var þegar ein-
föld deildarkeppni var staðreynd.
Nú er suður- og norðurriðill og ut-
andeild.
Nýliðun er nánast útilokuð
Það sér hver maður að nýliðun í
greininni er nánast útilolcuð. Detti
einhverjum í hug að koma á fót liði í
dag getur fyrsti leikur hðsins orðið á
móti HauJotm að ÁsvöUum eða móti
FH í Kaplakrika. Það gengur aldrei.
Ég vU fá aftur deUdarkeppni eins og
hún var áður. Fyrsta deUd, önnur
deild og svo hugsanlega utandeUd á
landsbyggðinni. Þannig fyrirkomu-
lag gæfi nýliðum tækifæri á að vinna
sig upp hægt og bítandi og hver veit
nema slík nýliðun sé það sem hand-
boltinn þarf á að halda."
Jóhannes viU ekki meina að
ábyrgðin á dvínandi vinsældum
handboltans hggi eingöngu hjá
Handknattleikssambandi íslands.
Taka þarf höndum saman
„Þar vinna fáar hendur mörg góð
verk og verið getur að þeir séu of
önnum kafnir. En ekki má gleyma
því að HSÍ er ekkert annað en félög-
in sjálf og það hefur ekkert upp á sig
að beina fingri að einstökum aðU-
um. Staðreyndin er að handbolti á
undir högg að sækja og nauðsynlegt
er að snúa vörn í sókn með einhverj-
um hætti. Mínar hugmyndir lúta að
breytingum á fyrirkomulaginu sem
ég viU meina að hafi neikvæð áhrif
þótt verið geti að öðrum finnist eitt-
hvað aUt annað. Það verður aUa vega
að koma á umræðu um málið áður
en í óefni er komið. Fjölmiðlaum-
fjöUun er annar handleggur. Það er
tU dæmis eitthvað athugavert við að
vináttuleikur fslands við Ítalíu hafi
fengið gróflega sama tíma í fjölmiðl-
um og hálft tímabihð í íslenskum
handbolta. Með fullri virðingu fyrir
fótboltanum þá verða handbolta-
áhugamenn að rísa upp á afturfæt-
uma og klóra í bakkann."
Hissa á uppsögn landsliðs-
þjálfarans
Afsögn Guðmundar Guðmunds-
sonar sem landsliðsþjálfara í hand-
bolta kom Jóhannesi í opna skjöldu.
„Ég verð að viðurkenna að það
kom mér á óvart. Guðmundur er án
efa einn af okkar bestu þjálfurum og
atvinnumaður fram í fingurgóma.
Þrátt fýrir að gengið undan farið hafi
ekki verið eins og best varð á kosið
hefur íslenskra liðið þó tekið þátt í
flestum stórkeppnum sem fram
hafa farið. Það er meira en til dæmis
Norðmenn sem þó eiga fullt af góð-
um leikmönnum. Þeir komast ekki
einu sinni á þessi mót sem við höf-
um tekið þátt í.“ albermdv.is
FH-ingar mæta þýska liðinu Alemania Aachen í Evrópukeppninni í Þýskalandi í dag:
Möguleikarnir á að komast áfram eru mjög litlir
Nýliðið keppnistímabilið hér á
landi var það besta í sögu Fimleika-
félags Hafnarfjarðar. Sá stóri kom í
hús, liðið komst í undanúrslit bikars
og síðast en ekki síst sló FH út velska
liðið Haverfordwest og skoska liðið
Dunfermline, í forkeppni Evrópu-
keppni félagsliða og náði þar með
einum besta árangri íslensks félags-
liðs í Evrópukeppni, frá upphafi.
DV-Sport sló á þráðinn til Heimis
Guðjónssonar í Þýskalandi og að að
venju var hljóðið gott í kallinum.
„Það er flott veður hérna, tuttugu
stiga hiti og aðstæður allar hinar
bestu," segir Kafteinninn og segir
aðspurður að stemmningin í hópn-
um sé ffn.
„Þetta er nánast örugglega síðasti
leikur okkar á þessu keppnistíma-
bili. Þó maður útiloka aldrei neitt
verður að segjast eins og er að
möguleikarnir á að komast áfram
eru mjög litlir. Það mun þó ekki
koma í veg fyrir að við mætum til
leiks af fullum krafti enda er mark-
miðið að ljúka þessu tímabili á eins
jákvæðum nótum og mögulegt er."
Heimir segir leikskipulagið koma til
með að breytast.
„Við verðum vamarsinnaðri, sjá-
um hvað setur en stefnan er aö
halda hreinu," segir Heimir sem er
ekki búinn að ákveða hvort hann
ætli að leggja skóna á hilluna eftir
leildnn.
„Ég er ekki búinn að ákveða mig.
Nú kemur frí eftir langt og strangt og
gott tímabil og manni veitir ekkert af
því. Síðan verður ákvörðun tekin
fljótíega í framhaldinu," sagði
Heimir Guðjónsson. sms&dv.is
Grani ekki 1
Þýskalands
Jónas Grani Garðarsson, frai
herji FH, fór ekki með liðinu tíl
Þýskalands í seinni leikinn við
Aachen, vegna botnlangakasts.
„Ég var mjög
slappur nóttina
áðuren farið
yarútogeft-^ , ■
að ég ..
færi f upp-
SkUlð °g «£. í
slepptí ferð-
inni," sagði
Jónasí
samtali við dSftr* -
DV. Grani "
taldi líklegt
að hann kæmi til æfinga eftir 21
3 vikur.
Litli bróðir
Rooney líka
hjá United
Wayne Rooney þarf ekki að
hafa áhyggjur af einsemd hjá
Manchester United því litli bróðir
hans, John Rooney, gerði nýlega
skólasamning við liðið. Forráöa-
menn United-liðsins binda miklar
vonir við John, sem er aðeins 13
ára gamall. „John er frábær leik-
maður og það sést langar leiðir að
knattspymublóð rennur í æðum
hans," sagði talsmaður United-
liðsins og bætti viö að fólk ætti
ekki að láta sér koma á óvart þó
að bræðurnir léku saman fyrir
Manchester í úrslitum Evrópu-
keppninnar.
Ungur Bllki
til Englands
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmað-
ur úr 3. flokki Breiðabliks, var til
reynslu í síðustu viku hjá breska
liðinu Preston North End. Gylfi
spilaði tvo leiJki meö liðinu og
stóð sig prýðilega í báðum leikj-
um. Hann skoraði eitt mark í 3-1
sigri á Port Vale. Hinn leikurinn
var gegn Tranmere. Skoraði Gylfi
sömuleiðis eitt mark í þeim leík
sem lyktaði með jafntefli, 4-4.
Gylfi þykir mikið efni. Hann hefur
æft með bæði U-15 ára landslið-
inu og 16-18 ára landsliðlnu.
Bretar hrífast greinilega að Gylfa
sem mun einnig vera til reynslu
hjá 1. deildar líði Reading í byrjun
næsta mánaðar.
Bayern til
Kína
Þýska knattspymuliöiö Bayem
Munchen hyggst halda tíl Kína í
vetur til að leika gegn Shangliai
og Beijing. Að sögn Uli Hoeness,
framkvæmdastjóra Bayern, áttu
leikimir upphaflega að fara fram
á síðasta ári en þcim var ffestað
vegna HABL-vírusins, sem þá
herjaði á Kína og kostaði um 800
manns lífið. „Við erum einnig að
leíta að kínverskum leikmanni,"
sagði Hoeness. „Við sendum full-
trúa á Asian Cup fyrr á þessu ári
sem fylgdust grannt með gangi
mála."