Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Sport DV
Kobe
kjaftaskur
Kobe Bryant sagði til Shaq-
uilles O'Neal, fyrrum félaga síns
hjá Los Angeles Lakers, þegar lög-
regla yfirheyrði hann varðandi
nauðgunarmálið á síðasta ári.
„Bryant sagði okkur hvað einn
samherja hans gerði undir sömu
kringumstæð-
um," sagði
Doug %.
Winters, ■
rannsókn- ir ) ) i
arfulltrúi f pi < 1
hjálögregl- *1 \
unni í Den-
ver. „Hann
fullyrti að V j
Shaquille /
O'Neal I
hafi borgað
konum allt að
eina milljón
doliara fyrir að
þegja yfir kynlífsathöfhum þeirra.
Bryant sagði enn fremur að hann
kæmi vel fram við konur og þyrfti
þ.a.l. ekki að hafa áhyggjur." Perry
Rogers, umboðsmaður ShaquiUes
O'Neai, sagði ummæU Bryants fá-
ránleg. „Svona bregst örvænting-
arfuU manneskja við sem er búin
að mála sig út í hom. Þetta er
varla svara vert," sagði Rogers og
bætti við að umbjóðandi sinn
væri búinn að vera giftur f tæp tvö
ár og hefði aldrei komist í kast við
lögin hvað kynferðisáreitni varða.
Taricco í
bann
Mauricio Taricco, varnarmaö-
ur Tottenham, hlaut þriggja leikja
bann fyrir gróft brot á Damian
Duff í leik gegn Chelsea. Leikur-
inn fór fram í apríl á síðasta tíma-
bih en ekki var dæmt í málinu fyrr
en í fyrradag. Tarrico missir af
leikjum Tottenham gegn Everton,
Portsmouth og Bolton.
Valsmenn til
Sviss
Valsmenn mæta svissneska
liðinu Grasshoppers í annarri
umferð EHF keppninnar í hand-
knattleik. Stjóm Valsmanna brá á
það ráð að selja heimaleikinn og
verða því báðir leikimir háðir f
Sviss. Fyrri leikur Uðanna fer fram
föstudaginn 8. október og seinni
leikurinn strax daginn eftir.
Grasshoppers er f annarri deUd f
Sviss og eru Valsmenn taldir
sigurstranglegri.
Youri tíl
Blackburn
Mark Hughes hófst strax
handa í nýju starfi sínu sem
knattspyrnustjóri hjá Blackbum.
Hughes nældi sér í Youri Djorka-
eff sem hefur æft með Fulham
upp á síðkastið. Hann segir komu
hins franska Djorkaeffs vera mik-
Uvæga fyrir Blackbum. „Hann er
leikmaðurinn sem við þurfum,"
sagði Hughes. Djorkaeff sagði að
nokkur félög hafi sett sig í sam-
band við sig en hugmyndir Hug-
hes um það hvemig nýta mætti
leikmanninn, hafi orðið til þess
að Blackburn varð fyrir
valinu. Hann segist
hafa heilmikið fram
að færa fyrir félagið. T *
„Ég hef saknað þess
að leika á Englandi.
Þrátt fyrir að ég sé
að nálgast lokin á
mínum ferli, er ég
fuUur sjálfstrausts Ea
og tel mig muna
styrkja lið Black-
bum,“ sagði Ðjorka-
eff, eftir að gengið var
frá samningnum.
Rooney vor
Stuðningsmenn Man. Utd voru búnir að bíða óþreyjufullir eftir
fyrsta leik undrabarnsins Waynes Rooney með Man. Utd. Roon-
ey meiddist á EM í sumar og hafði ekkert leikið í þrjá mánuði
er hann gekk út á Old Trafford á
þriðjudag er United tók á móti
Fenerbahce í Meistara-
deildinni. Sökum meiðslanna
voru væntingar í garð Rooneys
ekki miklar. Þó var ekki að sjá að
hann væri að spila sinn fyrsta leik eftir
löng meiðsli því strákurinn fór hreint út sagt á
kostum og skoraði þrjú mörk í öllum regnbogans
litum.
Það má með sanni segja að aUra
augu hafi verið á Rooney. Hann
hefur mUdð verið í sviðsljósinu
síðustu vikur vegna framhjáhalds
með vændiskonum. Því var að sjálf-
sögðu mikU pressa á honum þar sem
hann kostaði félagið 27 mUljónir
punda og er honum ætlað að hleypa
nýju lífi í leik Uðsins.
Þessi 18 ára gutti sýndi mikla
stUlingu og stóðst undir öUum
væntingum. Það var engu líkara en
að hann væri að leika sér með
félögum sínum því ekki sást á
honum stress og hann gerði hinar
ýmsu hundakúnstir sem fengu
áhorfendur á Old Trafford tU þess að
taka andköf.
Leikurinn sjálfur var ein
flugeldasýning og endaði með 6-2
sigri United og leikur liðsins minnti
um margt á leik liðsins 1999 er
United vann þrefalt. Síðan þá hefur
botninn aðeins dottið úr spUi Uðsins
en stuðningsmenn United sjá fram á
bjartari tíð með einhverja efni-
legustu knattspyrnumenn heimsins,
Wayne Rooney og Cristiano
Ronaldo, fremsta í flokki.
Ótrúlegur
Wayne Rooney gaf ekki kost á
viðtafi eftir leikinn en fjölmargir sáu
ástæðu tíl að hrósa drengnum í
hástert í leikslok og bresku blöðin
fóru lofsamlegum orðum um
strákinn í umfjöllun sinni í gær.
„Hann var ótrúlegur," sagði Sir
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd. „Það
sjá aUir hæfileikana sem strákurinn
hefur. Ég man ekki eftir að hafa séð
aðra eins frumsýningu hjá nokkrum
leikmanni. Þessi ffammistaða í dag
er nákvæmlega ástæðan fyrir því að
við keyptum hann tU félagsins.
Hann á bara eftir að verða betri."
HoUenski
markahrókurinn Ruud Van
Nistelrooy var aldrei þessu vant í
aukahlutverki í MeistaradeUdinni
hjá United, en hann átti eina
stoðsendingu á Rooney og
táningurinn hafði greinUega mikU
áhrif á Nistelrooy því hann sást gefa
boltann á Rooney í fínu færi þegar
hann hefði annars aUtaf skotið á
markið.
„Þetta var stórkostlegt. Strák-
urinn er 18 ára og á svo sannariega
bjarta framtíð fyrir sér," sagði
Nistelrooy sem hefur sett nokkur
markamet fyrir United en hann
hefur fuUa trú á því að Rooney muni
slá þessi markamet hans.
Slær öll mín met
„Ef hann heldur svona áfram
mun hann slá öU mín met. Ég óska
honum aUs hins besta og vona svo
sannarlega að hann eigi eftir að slá
öU met sem tU eru hjá félaginu. Það
fögnuðu honum aUir í klefanum
eftir leUdnn. Hann sýndi lfica mikinn
karakter því það er með ólfldndum
að svona ungur maður geti staðið
sig þetta vel."
Eins og áður segir þá minnti þessi
ffammistaða á takta liðsins árið
1999. Það veit stjórinn manna best
og hann hefur fulla trú á því að Uðið
sem hann hefur undir höndum í dag
geti gert álíka góða hluti og liðið
1999.
„Þetta er
hugsanlega besti leik-
mannahópur sem ég hef
haft síðan ég kom tíl
félagsins," sagði Ferguson.
„Ástæðan er sú að við
eigum svo mikið að góðum
ungum leikmönnum sem ■
eiga aðeins eftir að verða
betri. Ég get gert stórfið úr
þessum strákum á nokkrum
árum."
Dýr þrenna
Þrátt fyrir að stuð-
ningsmenn United hafi glaðst í
gær þá var lítU gleði hjá
breskum veðbönkum, en þeir
eru taldir hafa tapað um einni
rnUljón punda á þrennunni hans
Rooneys. Veðbankar gáfu
tuttugu á móti einum að
Rooney myndi skora þrennu í
sínum fyrsta leik með United.
Það voru nokkur þúsund
manns sem settu pening hjá
Coral veðbankanum á það að
Rooney myndi skora þrennu og
þeir mokgræddu er aukaspyrna
Rooney sigldi í netið. Talsmaður
fyrirtækisins var ekki kátur er
blaðamenn ræddu við hann í gær.
„Þegar Rooney skoraði þriðja
markið þá slökktum við ljósin tíl að
spara rafmagn. Ekki veitir af því við
stórtöpuðum á þessari þrennu. Fólk
mun mæta hingað með hjólbörur tU
þess að sækja peningana sína."
henry@dv.is
„Þegar Rooney skoraði þriðja markið þá
slökktum við Ijósin til að spara rafmagn. Ekki
veitir afþví við stórtöpuðum á þessari þrennu.
Fólk mun mæta hingað með hjólbörur til þess
að sækja peningana sína
Horfið þið á þvl ég ætla að kenna ykkur hvernig á að gera þetta strákar Gary Neville, Ryan Giggs og Gabriet Heinze fylgjast með afaödáun þegar Wayne Rooneyskorarþriðja mark sitt
gegn Fenebahce beint úr aukaspyrnu. Mörkin þrjú voru engin pot heldur gullfaleg og I öllum regnbogans litum. Reuters