Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Síða 11
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 11
Kaupum KB
banka á FIH
lokið
KB banki hefur eignast
allt híutafé FI-Holding sem
á danska bankann
FIH, að þvíer
fram kom í til-
kynningu í Kaup-
höllinni í gær.
Kaupverðið, sem
nemur 7,3 milljörðum
danskra króna, hefur verið
greitt seljanda FIH, Swed-
bank. Kaupin voru að
mestu fjármögnuð með út-
gáfu víkjandi skuldabréfa
og hlutafjárhækkun til for-
gangsréttarhafa. Með kaup-
unum rúmlega tvöfaldast
stærð efnahagsreiknings
KB banka.
Áhugaleysi á
útboði tryggt
Eins og við var að bú-
ast bárust engin tilboð til
íbúðalánasjóðs í útboði
sjóðsins vegna endur-
kaupa húsbréfa. Segir í
fréttatilkynningu að nú
hafi sjóðurinn sinnt sín-
um skyldum samkvæmt
samningi um viðskipta-
vakt hús- og húsnæðis-
bréfa. Með samningnum
hefur íbúðalánasjóður
skuldbundið sig til að
efna til endurkaupaút-
boða á markflokkum
hús- og húsnæðisbréfa
að minnsta kosti árs-
fjórðungslega. Með því
að setja fyrirvara um að
lágmarksávöxtunarkrafa
tilboða mætti ekki fara
niður fyrir vexti bréf-
anna tryggði sjóðurinn
að enginn áhugi yrði fyr-
ir þessu endurkaupaút-
boði, að því er Greining
Landsbankans segir.
Fasteignir
komnar á flug
Að mati Greiningar-
deildar KB banka mun
hækkun vísitölu neyslu-
verðs í október vera 0,6%.
Það felur í sér að 12 mán-
aða verðbólga mun hækka
lítillega frá síðastliðnum
mánuði og fara upp í 3,5%.
Litlar lfkur eru á að verð-
bólgan muni ganga niður á
næstu mánuðum en svo
virðist sem fasteignamark-
aðurinn sé komin á flug og
vænta megi verulegrar
hækkunar á fasteignaverði í
mánuðinum sem mun
leiða til allt að 0,2% hækk-
unar á vísitölu neysluverðs
í september.
Innbrot í
hús og bát
f fyrradag var tilkynnt
til lögreglunnar í Keflavík
um tilraun til innbrots í
hús í Grindavík. Ekkert
virtist hafa verið tekið og
skemmdir voru litlar.
Einnig var tilkynnt um
innbrot í bát sem stóð
uppi við Iðavelli 4 í Kefla-
vflc. Hafði hurð á stýris-
húsi verið brotin upp og
þaðan stolið áttavita,
GPS-staðsetningartæki
og kortaskjá. Einnig hafði
verið rótað til í hirslum
og borð brotið í lúkar. Þá
tilkynnti íbúi í fjölbýlis-
húsi við Mávabraut um
innför í herbergi sitt.
Hafði verið stolið þaðan
myndbandstæki og
leikjatölvu. Engin sýnileg
merki voru um innbrot.
Þreifingar standa nú yfir milli Granda hf og Tanga hf á Vopnafirði um kaup þeirra
fyrrnefndu á meirihluta í Tanga. Vopnafjarðarhreppur og heimamenn hafa nú
meirihluta í fyrirtækinu eftir kaup á hlut Eskju hf í fyrirtækinu fyrir rúmu ári.
Grandi gæti þar með verið kominn mjög nærri svokölluðu kvótaþaki.
Seilst í skuldum vafið
fjöregg Vopnfirðinga
Samkvæmt staðfestum heimildum DV hafa viðræður milli
heimamanna á Vopnafirði og forsvarsmanna Granda staðið yfir
um nokkurt skeið. Ef af kaupunum verður kaupir Grandi hlut
Vopnaíjarðarhrepps og heimamanna sem nú eiga rúman helm-
ing alls hlutafjár fyrirtækisins. Svo virðist sem björgunaraðgerð-
ir Vopnfirðinga fyrir ári síðan hafi ekki gengið eftir.
Heimildir DV herma að viðræður
Vopnfirðinga og Grandamanna hafi
staðið um nokkurt skeið en í fundar-
gerð sveitarstjórnar Vopnarfjarðar-
hrepps frá því 2. september kemur
fram að viðræður hafi staðið við
„nokkra aðila" um hugsanlega að-
komu að rekstri ellegar kaupum á
meirihluta í fyrirtækinu.
Enginn skilyrði um stað-
setningu
Samkvæmt sömu heimildum
hafa Vopnfirðingar ekki sett það
fram sem kröfu í viðræðum við
Granda að Tangi verði áfram með
höfuðstöðvar á Vopnafirði, enda
ólíklegt að slíkir samningar haldi ef
reynsla annarra sveitarfélaga af slfku
er skoðuð. Forsvarsmenn Tanga
binda þó að sögn miklar vonir við
áform Grandamanna um aukna nýt-
ingu á fiskimjölsverksmiðju staðar-
ins en fullyrt er að fyrir Granda-
mönnum vaki að landa upp-
sjávarafla sínum á Vopnafirði ef af
kaupunum verði, en eftir samruna
HB og Granda hefur skipið yfir að
ráða þremur uppsjávarveiðiskipum.
Hefur það vakið óskipta athygli
aðila í sjávarútvegi að undanfarið
hafi skip Granda einmitt landað afla
í fiskimjölsverksmiðju Tanga. Segja
sömu aðilar það leið Granda í gegn-
um árin að landa fyrst og kaupa svo.
Björgunaraðgerð fyrir ári
Það er einungis tæpt ár síðan
Vopnfirðingar töldu sig hafa náð
óvissu um atvinnumál staðarins fyr-
ir vind. íbúar höfðu þá lagst á eitt
ásamt bæjaryfirvöldum við að fjár-
magna tæplega milljarðshlut Eskju
hf á Eskifirði sem náð hafði meiri-
Hefur það vakiö
óskipta athygli adila í
sjávarútvegi að und-
anfaríð hafí skip
Granda einmitt land-
að afla ífískimjöls-
verksmiðju Tanga.
Segja sömu aðiiar
það leið Granda í
gegnum árin að landa
fyrst og kaupa svo.
hluta í fyrirtækinu ári áður við há-
vær mótmæli heimamanna. Kaupin,
sem fjármögnuð voru að hluta til
með loðnukvóta fyrirtækisins og
lántöku sveitarsjóðs, voru þá tahn
hafa tryggt fyrirtækið á forræði
heimamanna.
Forstjóra brigslað um svik
Snemma varð þó ljóst að skuld-
setning og erfiðari rekstur gerði
kaupin erfið. Fyrirtækið varð fyrir
miklum biilinykk þegar fyrrum for-
stjóri þess, Friðrik Mar Guðmunds-
son, færði Loðnuvinnslunni á Fá-
skrúðsfirði óvænt kolmunnalandan-
ir færeyskra skipa sem fram til þess
höfðu landað á Vopnafirði. Friðrik
Mar hætti skyndilega störfúm eftir
kaup Eskju á bréfum Tanga. í kjöl-
farið sakaði stjórnarformaður
Tanga, Ólafur Ármannsson, Friðrik
Mar um svik.
Ólafur Ármannsson, stjórnarfor-
Vopnafjorður Björgunaraðgeröum heima-
manna á fjöreggi staðarins var fagnað fyrir ári
Skuldsetning og erfið rekstrarskilyrði hafa nú '
gertaðenguvonirVopnfirðingaumaðTangihf. I
I 'í+'áfmm ,e'gU heinr,amanna. HB Grandi hefur I
þó, samkvæmt heimiidum DV, thyggju að nýta
\enn frekarfiskimjölsverksmiðjunaá Vopnafirði.
maður og einn eigenda Tanga, vildi
lítið gefa uppi um viðræður fyrir-
tækjanna nú, sagði þreifingar í gangi
og málið myndi skýrast mjög fljótt.
Hann vildi sömuleiðis h'tið gefa upp
um með hvaða hætti salan yrði,
hvort fyrirtækin rynnu saman eða
Grandi keypti hluta þess.
Nálgast kvótaþakið
Ef af kaupunum verður mun HB
Grandi styrkja enn frekar kvóta-
stöðu sína auk þess sem hlutur
þeirra í kvóta utan lögsögu mun
hækka.
HB Grandi er þegar stærst í
kvótaeign talið en Tangi hf á nú í
kringum eitt prósent af heildar-
þorskígildiskvóta á íslandsmiðum.
Samkvæmt því yrði heildarkvóta-
eign HB Granda eftir kaup á Tanga
um níu prósent af kvótanum innan
lögsögu en heildarþorskígildiskvóti
innan og utan lögsögu yrði þá ehefu
og hálft prósent.
Samkvæmt þessu nálgast HB
Grandi óðum kvótaþakið svo-
kahaða sem gerir ráð fyrir því að
eignarhlutur eins fyrirtækis í heild-
arþorskígfldiskvóta innan og utan
lögsögu skuli ekki vera hærri en 12 af
hundraði. Ef af kaupunum verður
mun HB Grandi því verða kominn
um hálfu prósenti frá því marki.
heigi@dv.is
Nýr forstjóri HB Granda Sturlaugur
Sturlaugsson og hans menn hjá HB
Granda, kvótahæstu útgerð Islands,
hyggja áenn frekari stækkun meðkaup-
um á Tanga hfá Vopnafirði.
Listmunauppboð í Lækjargötu á laugardaginn.
Damien Rice styrkir
Damien Rice, heimsþekktur írsk-
ur þjóðlagasöngvari og Islandsvinur,
er meðal hstamanna sem styrkja
börn Sri Rahmawati á listmunaupp-
boði sem haldið verður á laugardag-
inn. Sri Rahmawati var sem kunnugt
er myrt á hrottafenginn hátt af fyrr-
um sambýlismanni sínum í Stór-
holtinu í Reykjavík síðastliðið sum-
ar. Damien Rice er í hópi fjölmargra
hstamanna sem gefa listmuni til
uppboðsins en Sri lét sem kunnugt
er eftir sig börn, þar af eitt kornungt.
Þau hafa dvahð hjá skyldfólki sínu
hér á landi eftir dauða móður sinn-
ar. Damien Rice hefur komið hingað
tfl lands í tvígang og í bæði skiptin
haldið tónleika fyrir troðfuflu húsi.
Meðal þeir listamanna sem gefa
gripi á uppboðið tfl styrktar börnum
Sri má nefna, auk Damiens Rice: Kjartan Guðjónsson, Línu Rut og
Sigrúnu Eldjárn, Pétur Hahdórsson, Björgu Þorsteinsdóttur svo fái séu
Jóhann G. Jóhannsson, Hauk Dór, nefndir.
börn Sri
Uppboðið fer fram í Iðu, áður
Top Shop, í Lækjargötu 2 og hefst
klukkan 15 á laugardaginn.
Túba, gong, tam-
tam og klassík
Túba, gong, tam-tam og klassík
er meðal þess sem í boði er hjá Sin-
fóníuhjómsveit áhugamanna á
sunnudag í Seltjarnarneskirkju.
Þetta eru fyrstu tónleikar sveitar-
innar á þessu starfsári sem er það
fimmtánda í röðinni. Hljómsveitin
er skipuð tónlistarmönnum sem
hafa atvinnu af öðru en tónhst.
Stjórnandi sveitarinnar er Ingvar
Jónsson, en einleikarar á þessum
tónleikum verða þeir Roine Hult-
gren ogÁrni Áskelsson. Fjörið hefst
klukkan fimm.