Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Side 11
DV Fréttír
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 11
Þrífa eftir
sandfok
Eyjabúar hófu í gær
hreinsunarstarf eftir mikið
sandfok sem verið hefur í
Vestmannaeyjum síðustu
daga. Bæði hús og bflar eru
þakin sandi. íbúarnir hafa
brugðist við þessu með því
að spúla hús sín með vatni
eftir að það lygndi. Slökkvi-
liðið hefur síðustu daga
keyrt á milli stofnana bæj-
arins og þvegið hús þeirra.
Mikið tjón var vegna veður-
hamsins en lögreglan fékk
tilkynningar um 27 tjón á
húsum og bifreiðum vegna
hans.
Þjóðvegur 1
opinn á ný
Búið er að gera við
brúna yfir Núpsvötn til
bráðabirgða og er Þjóð-
vegur 1 á milli Skeiðarár
og Lómagnúps því opinn
á ný. Umferð var hleypt
á brúna í gær en öku-
menn eru beðnir um að
fara varlega. Nokkra
daga í viðbót þarf til að
gera við brúargólfið að
fullu en hluti þess rifnaði
upp í óveðrinu sem
geysaði hérlendis fyrr í
vikunni. Flutningabflar
biðu beggja megin brú-
cuinnar í fýrrinótt eftir
því að viðgerð lyki.
Hitaveita
fyrirjól
Ráðgert er að tengja 50
hús við nýja hitaveitu Eski-
fjarðar fyrir 15. desember
næstkomandi. Vinna við
lagningu hitaveitunnar er
komin á fullt en það er fyr-
irtækið GV-Gröfur á Akur-
eyri sem vinnur verkið.
Fyrsti áfangi hitaveitunnar
nær frá borholunni í Eski-
fjarðardal út Dalbraut og
Strandgötu. Hitaveita er
óalgeng á Austfjörðum.
Svifaseinir
hestamenn
Hestmannafélagið
Dreyri situr eftir með sárt
ennið eftir styrkjaúthlutun
tómstunda- og forvarnar-
nefiidar Akraness. Á síðasta
fundi nefndarinnar var
gerð grein fyrir óánægju fé-
lagsmanna í Dreyra með
það að hafa ekki fengið
styrk við síðustu úthlutun.
Nefndarmenn segjast
harma að félagið hafi ekki
sótt um styrk. Styrkveiting-
ar hafa bara verið fyrir þá
sem skiluðu inn umsókn-
um.
Færum hringveginn
Undanfarið hefur farið frarn
nokkuð sérstök umræða hér austan-
lands vegna hugsanlegrar færslu
hringvegarins. í kjölfar opnunnar
jarðganga milli Fáskrúðsfjarðar og
Reyðarfjarðar næstkomandi haust
gefst samgönguráðherra einstakt
Sigríður Rósa
Kristinsdótlir
vill hringveginn um
jarðgöng í stað
fjallvegar
Skrifstofukonan segir
tækifæri til að stytta þann kafla á
þjöðvegi 1 sem nú er ekki bundinn
sÚflagi og um leið fosa þjóðveg 1 við
erfiðan fjallveg um Breiðdalsheiði,
sem oftar en ekki er ófær á vetrum.
Með tflkomu ganganna mun
leiðin mflli Fáskrúðsfjaröar og Reyð-
arfjarðar styttast um eina 30 kfló-
metra, auk þess sem Vattamesskrið-
um, einum hættulegasta vegarkafla
hér eystra, sleppir. Þjóðvegur 1
myndi, ef af yrði, lengjast um eina 10
kflómetra ef leiðin um firðina yrði
valin en um leið hefði allur kaflinn
bundið slitlag og háir fjallvegir
myndu ekld lengur verða farartálmi
á veginum. Þjóðvegur 1 um firðina
yrði með öðrum orðum heflsársveg-
ur en ekki sumar og „snjóléttsvetrar-
vegur" eins og nú er.
Málið er þó síður en svo einfalt
enda blandast inn í umræðuna
landsþekktur rígur Fjarðamanna og
Héraðsbúa sem allt of lengi hefur
staðið framþróun hér eystra fyrir
þrifúm. Sveitarstjómarmenn og al-
þingismenn verða að ldjúfa þennan
ríg og skoða málið út frá bættu um-
ferðaröryggi sem næst einmitt ffam
með breyttri legu þjóðvegar 1. Brett-
ið nú upp ermar, gott fólk.
Rannsókn á húsbroti þriggja manna úr vélhjólaklúbbnum Fáfni heldur áfram. Ná-
grannar Fáfnismanna segja stööuga umferð og hávær teiti einkenna bækistöð
þeirra við Efstasund.
í íbúðahverfi
Fáfnismennimir þrír sem réðust inn á ritstjórnarskrifstofu DV í
fyrradag mættu í yfírheyrslur hjá lögreglunni í gær. Þeir vildu lít-
ið tjá sig um ástæður þess að þeir gengu berserksgang; báru við
óánægju með að fjallað væri um meinta glæpi þeirra í DV.
Jón Trausti Lúthersson, for-
sprakki hópsins, hefur áður komist
í kast við lögin. í desember lenti
hann í átökum við lögreglumenn á
Leifsstöð með þeim afleiðingum að
einn lögreglumannanna meiddist
alvarlega. Sá lögreglumaður hefur
ekki enn lagt inn kæru á hendur
Jóni Trausta sem var á Leifsstöð í
fylgd félaga sinna úr Hells Angels.
Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir
hefur formlega sótt um inngöngu í
Hells Angels. Jón Trausú Lúthersson
er á fyrstu stígum þess að verða full-
gfldur meðlimur.
DV gerði sér ferð að bækistöð
Fáfhismanna í Efstasundi í Reykjavík
í gær. Jón Trausti var ekki á staðnum
en félagar hans tveir komu tfl dyra.
Þeir vildu ekkert tjá sig um atburði
gærdagsins. Þeir báðu blaðamann
að hafa samband við Jón Trausta
sem að þeirra sögn er forsprakki
hópsins.
Bækistöð Fáfnis Nágrannar kvarta undan
óþægindum.
Nágrannar Fáfnismanna í Efsta-
sundi segja mikfl lætí í kringum
Fáfhismenn. Stöðuga umferð og há-
vær teití.
Lögreglan heldur áffarn rann-
sókninni á innrás Fáfhismanna á rit-
stjóm DV. Vitni vom kölluð til yfir-
heyrslu í morgun og er málið litíð al-
varlegum augum. Fáfnismenn eiga
yfir höfði sér ákæm fyrir húsbrot, lflc-
amsárás, eignarspjöll ogh'flátshótun.
Jón Trausti Lúthersson Fáfnismaður Á ieið íyfirheyrslu hjá lögreglunni vegna kæru um
árás og húsbrot.
Þeir reyndu einnig að keyra blaða-
mann niður sem hafði hlaupið á eft-
ir þeim tfl að ná númerinu á flóttabfl
þeirra.
Jón Trausti Lúthersson sagði í
samtali við DV: „No comment."
Spurður hvort þeir myndu brjótast
inn aftur sagði hann: „No
comment." Og spurður að því hvort
hann sæi eftir þessu endurtók Vítis-
engill íslands: „No comment."
Greint var frá því í DV í gær að
lögreglumaður, sem Jón Traustí
nefbraut í Leifsstöð, hefði ekki þorað
að kæra vegna hótana hans. Lög-
reglumaðurinn hefur ekki gefið sig
fram.
simon@dv.is
Lögreglan í Keflavík handtók hóp fólks
vegna innbrota í bænum
Sex manna innbrota-
gengi handsamað
Lögreglan í Keflavík
handtók í byrjun vik-
unnar fimm menn og
eina konu á aldrinum
16 tfl 41 árs vegna
innbrota og þjófnaða
umdæmi Keflavíkurlög-
reglu að undanfomu. Málið,
sem snýst um innbrot í Fjöl-
brautarskóla Suðumesja og
geymslur fjölbýlishúsa í
bænum, er talið upplýst en
flestir hinna handteloiu em
að sögn góðkunningjar
lögreglunnar.
Fólkið var handtek-
ið síðastliðinn mánudag
eftír að lögregla komst á
snoðir um tengsl þess
við innbrotin. Hald var
lagt á þýfi á heimflum
hinna handteknu en
þar á meðal vom níu
F/kniefnagjaldmiðill Skjávarpi
og fartölvur voru meðal þýfis sem
lögreglan lagði hald á itengslum
við handtöku sex manns ÍKefla-
vlk s/ðastliðinn mánudag. Sllk
tæki eru vinsæl söluvara á svört-
um markaði og þá sem gjaldmið-
ill við kaup á fíkniefnum.
nýlegar fartölvur, skjávarpi og
flatir tölvuskjáir auk
þess sem haglaskot
og bflgræjur, sem
fullvíst þykir að
tengist innbrotum í
geymslur fjölbýlishúsa,
fundust við húsleitir.
Lfldegt þykir að inn-
brotin tengist á einn eða
annan hátt fjármögnun
fíkniefriakaupa en þýfið
sem fannst gengur jafnan
kaupum og sölum á svört-
um markaði í skiptum
fyrir fíkniefhi. Að sögn
lögreglunnar í Kefla-
vík telst málið upplýst
og því ekki langt að
bíða að ákærur verði
gefriar út á suma eða
allaíhópnum.
helgi@dv.is
Fyrirsætur með útþrá
Eskimó módel til Indlands
„Nú er eitthvað að gerast," segir
Andrea Brabin hjá Eskimó módel
um útrás fýrirtækisins. „Við emm á
leið til Indlands."
Eskimó módel hefur þegar stofn-
að útíbú í Síberíu, er með starfsstöð
í Brasilíu og lítur með von og eftir-
væntingu tfl Tékklands.
„Ég er búin að fara þrisvar til Ind-
lands til að undurbúa þetta og býst
við að hægt verði að opna alíslenska
fyrirsætustofu í Indlandi í febrúar,"
segir Ásta Kfistjánsdóttir, einn eig-
enda Eskimó módels ásamt Andreu,
Saga Film og Bjarneyju Lúðvíksdótt-
ur. „Þama er ört vaxandi markaður
sem er að opnast upp á gátt og við
sjáum ekkert nema möguleika,"
segirÁsta.
Eskimó módel hefur verið starf-
rækt í Reykjavflc um árabfl en lítfll
markaður og fámenni hefur staðið
fyrirsæmstofunni fyrir þrifum. Með
útrás á erlenda markaði sjá eigendur
fyrir sér vöxt sem byggir á reynslu og
kunnátm sem þegar hefúr byggst
upp hér heima.
„Við gerum ekki ráð fyrir að verða
með íslenska fyrirsætur í Indlandi til
Ásta Kristjánsdóttir Vaxandi markaðurí
Indlandi sem er að opnast.
Andrea Brabin Nú er eitthvað að gerast.
að byrja með. Stfla sem mest upp á
heimamarkað þama úti og notast þá
við indverskar fyrirsætur," segirÁsta
Kristjánsdóttir. Og undir orð hennar
tekur Andrea Brabin: „Okkur hefur
gengið vel í Brasilíu og búumst við
miklu í Indlandi þó ég hafi ekki
komist þangað út sjálf þar sem ég
hef verið í bameignarleyfi."