Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Side 21
DV Menning FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 21 M Wte meanmg Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Hugvísindaþing haldið Hugsað upp- hátt í Háskólanum Idag klukkan 13 verður efnt til stefnu i nafni guöfræði- og heimspekideildar Há- skóla Islands undiryfirskriftinni Hugvís- indaþing 2004. Verðurþingað íaðal- byggingu Háskóla Islands við Suðurgötu. A þinginu beina um sextíu fræðimenn I bókmenntafræði, guð- fræði, heimspeki, mál- vísindum, sagnfræði sjónum að íslenskri • og erlendri menn- ingu ínútíðog for- tlð. Þingið verður sett í Hátíð- arsalnum í aðalbyggingunnl klukkan 13 af Páli Skúlasyni rektor og stendur til kl17á laugardag. Það eru allir velkomnir og aðgang- ur er ókeypis. Þingið er styrkt afMáli og menningu, JPV útgáfu og Hinu is- lenska bókmenntafélagi. Þingiðer flokkaö i nokkrar deildir eftir efnum og fer þvífram í nokkrum afstærri stofum í gömlu aðalbyggingarinnar. Þvi erætlað aðgefa glögga yfírsýn yfir nokkur þau efnisem eru til rannsóknar! deildum hugvísinda og guðfræði og gefst al- menningi þvi einstakt tækifæri til að kynna sér störfíslenskra hugvísinda- Adagskrá Hér kennirýmissa grasa. Fyrri hluta föstudags verður rætt um listir og trú, trúarleg minni í Sjödægru Jóhannesar úr Kötlum, sálma sem kirkjulist, mikilvægi sjónarí trúarreynslu og játningum, og þörfina fyrir hið heilaga. Á sama tima verður málstofa um Jónsbók, hina fornu lögbók íslendinga. önnur málstofa tekur fyrir sjálfsvitund og ættarvitund Vestur-lslendinga og í hinni þriðju er brennidepillinn sambýli þýskrar og íslenskrar tungu. Eftir kaffi Að loknu eftirmiðdagshléi verður tek- inn fyrir heiðinn skáldskapur eða kristinn með Sonartorrek Egils sem stökkbretti. I annarri málstofu skoöa menn hvern- ig bankar hafa breytt samfélagsþróun hér á landi á liðnu árhundraði og ihinni þriðju eru óllk tungumál skoðuð: tákn- mál, hvernig íslenska læristsem annað mál og hvernig reglur i tungumálum verða bestkenndar. Laugardagsskemmtun Þingiö heldur áfram kt.11 á iaugar- dag. Kristni og kvennahreyfing verða reifaðari fjórum fyrirlestrum, riddara- bókmenntir ræddar og landnámið og kristnin skoðuö. Þá verður þýski heimspekingurinn Kant skoðaður í samtlðarspegli, átök f frumkristni tekin fyrir í fimm fýrirlestrum, fslenskt mál að fornu og nýju rætt f langri málstofu. Lýðræði krufiö með sér- stöku tilliti til umræðu í nýútkomnu hefti Ritsins sem er timarit Hug- visndastofn- unar. Bók- Frumsýning á sígildri sögu H.C. Andersen Litla stúlkan með eldspýturnar Söngleikurinn Litla stúlkan með eldspýt- urnar eftir Keith Strachan, Leslie Stewart og Jeremy Paul verður frumsýndur í Islensku óperunni á morgun kl. 14.00. Sönglelkurinn er byggður á sögu H. C Andersen sem flest- umerkunn. Lítil stúlka er sendútá vetrarkvöldi til að selja eldspýtur. Hún fær að kenna á grimmd og andúð en gleymir sér þó annað slagið við dagdrauma. Hún er móðurlaus og á föður sem vill ekkert með hana hafa. Hún þráir að látin amma hennar komi til hennar um jólin. Tónlistin i verkinu er falleg og grlpand! og nær til allra. Sýningin er samstarfsverkefni Flóðs og fjöru, söngskólans Domus Vox, Islensku óp- erunnar og H.C Andersen sjóðsins í tilefni þessaðá næsta ári eru 200 ár liðin frá fæð- inguskáldsins. Um fimmtlu sviðslistamenn koma að verkinu og þar afþrjátiu á aldrin- um átta ára til tvitugs. Með hlutverk litlu stúlkunnar fer Þórunn Arna Kristjánsdóttir, en önnur hlutverk eru i höndum Ivars Arnar Sverrissonar, Vals Freys Einarssonar, Birnu Hafstein, Ólafiu Hrannar Jónsdóttur, Cuðlaugar Elísabetar Ólafsdóttur og Ingrid Jónsdóttur. Leikstjóri erAstrós Ounnarsdóttir, dramatúrg Hafliði Arngrimsson, söngstjóri er Margrét Pálmadóttir og tónlistarstjórn er i höndum Stefáns S. Stefánssonar en verkið þýddi Cisli Rúnar Jónsson. Elin Edda Arnadóttir sér um búninga og leikmuni. Sýningar verða á laugardögum og sunnudögum í Islensku óperunni og eru fyr- ir alla aldurshópa. Helstu leikendur Þórunn Anna, Ivar, Guðlaug, Ingrid, Ólafia, Birna og Valur. Ný alþjóðleg ljósmyndasýning opnar á laugardag i Þjóðminjasafninu með sýningar- gripum úr mörgum heimshornum. Efni hennar sýnir að öll viljum við skreyta myndir af þeim sem eru okkur kærir. JLa Fyrsta ljósmyndasýningin á nýhönnuðu sýningasvæði í endur- byggðu Þjóðminjasafni hefur nú verið tekin niður, en þar voru til sýnis elstu ljósmyndir sem þekktar eru hér á landi. í hennar stað er komin upp ný sýning sem hlotið hefur alþjóðlega viður- kenningu frá Van Gogh safninu í Amsterdam og verður opin fram á nýárið. Þema hennar er okkur vel kunn- ugt: Gleym mér ei - Ljósmyndun og endurminningar. Flestir þekkja dæmi úr umhverfi sínu um ljós- myndir sem hafa verið skreyttar á einhvern hátt. Hárlokkar eru algeng skraut á myndum af okkar nánustu, en siðurinn að skreyta myndir er þekktur frá upphafi ljósmyndunar og á sýningunni hefur Geoffrey Batchen, ljósmyndafræðingur og prófessor í New York, dregið saman dágott sýnishorn af skreyttum ljós- myndum og við sýningu hans hefur bæst nokkuð af íslenskum myndum sem eru skreyttar. Að festa sína á mynd Þegar ljósmyndun kom til sög- unnar árið 1839 gerði tæknin flestum kleift, í fyrsta sinn, að eignast myndir af fjölskyldu sinni, sjálfum sér og vin- um. Tæknin hafði byltingarkennd áhrif. Margir töldu málverk og teikn- ingar heyra sögunni til. Mörgum var ljósmyndin bara tæknilegt fágæti, augnablik fest á mynd. Háum sem lágum þótti skorta á myndina og sá siður spratt upp víða að bæta ein- hveiju áþreifanlegu við hana til að auka tiifinningalegt gildi svo mynd yrði meira en minjagripur um þann sem hún sýndi. Vindlahringir og fiðrildi Margt var nýtt til að auka við myndir. Textar, blóm, skrautbönd, pappírsskraut svo sem vindlahring- ir, ljósmyndir af fiðrildavængjum og jafnvel mannshár. Þá voru ljós- myndum fundnir geymslustaðir. Nælur, hálsmen, silfurskríni og rammar sem voru algengastir. Á Vesturlöndum skapaðist sú hefð að taka portrett af fólki með aðra ljósmynd af látnum ástvinum því til sönnunar að þeir hefðu ekki gleymst. Dæmi um allar þessar út- færslur eru á sýningunni. í flestum tilvikum er ljósmyndarinn óþekktur. Víða þekkt fyrirbæri Minningabættar myndir þekkt- ust ekki bara á Vesturlöndum, bæði á Indlandi og í Mexíkó var hefð fyrir myndbótum af því tagi. Indverskir ljósmyndarar máluðu ljósmyndir sínar svo þær hefðu yfirbragð mál- verks. í Mexíkó á fýrri hluta 20. aldar tíðkaðist myndgerð Ijósmynda í þrí- vídd, sem var kölluð Fotoscultura. Mörg form minningarbættra mynda hafa tíðkast hér og gera enn. Sýnishorn slíkra mynda úr Þjóð- minjasafninu og einkaeigu eru á sýningunni sem opnar á morgun. Þegar þetta þú sérð Sýningarskrá var gefin út í tengsl- um við sýninguna í Amsterdam í rit- stjórn Geoffrey Batchen. Batchen hélt fýrirlestur á vegum minningar- sjóðs Ásu Wright og Þjóðminjasafns- ins í mars síðastliðnum sem hann kallaði Þegar þetta þú sérð og hefur hann verið gefinn út í bæklingi á ís- lensku. Bæði rit Batchen eru til sölu í safnbúð Þjóðminjasafns íslands. Glæsileg iðnhönnunarsýning opnar í sölum Marel í Garðabæ í dag með fjölbreytta íslenska hönnun bæði unna hér heima og fyrir erlenda framleiðendur. Sýningin dregur fram úölhæfni og styrk íslenskra hönnuða. Transforme Opinberir aðilar áttu upptökin að sýningunni. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra vildi að sett yrði upp sýning í samvinnu við virt gallerí í París, VIA, og var sýningin opnuð í apríl síðastliðnum. Fjörutíu hönnuðir, listamenn og fyrirtæki áttu verk á sýningunni og er hún ein umfangsmesta sýning sinnar tegundar sem sést hefur um árabil. |’SS| Marel hýsir sýninguna í skála sfnum í Austurhrauni 9 í Garðabæ, en venjulega er rýmið nýtt undir ffamleiðslugripi Marel. Vill fyrir- tækið „sem er leiðandi í nýsköpun og markaðssetningu erlendis á há- tæknibúnaði, beina kastljósinu að þeim tækifærum sem svo sannar- lega geta gerst í framtíðinni" segir í sýningarboði. Opnar Valgerður sýninguna síðar í dag. Aðsókn í París Sýningin fékk ft'na aðsókn í Par- ís. Fimm þúsund gestir sóttu VIA heim og umfjöllun um íslenska hönnun var töluverð í fagblöðum og tímaritum. Það voru hjónin Steinunn Sigurðardóttir, hönnuð- ur, og Páll Hjaltason, arkítekt, sem sáu um sýningarstjórn en langt er síðan jafnfjölbreytilegu úrvali af gripum hefur verið safnað saman eftir íslenska hönnuði. Athygli vekur hversu ólík verkefni þeirra hafa verið. Húsmunir, skartgripir, brúkshlutir, gerviútlimir, snjó- flóðavarnir, tölvuleikir, plagöt, föt, textíll. Úrvalið er mikið. Blár, hvítur, rauður Glæsileg sýningarskrá var gefin út í París, hönn- uð af Ámunda Sigurðssyni. Er henni kaflaskipt eftir fánalitunum og er afar ffóðlegt yfirlit um iðnað og list sem mörgum er dulin. Vissu menn að hönnuðir okkar vinna fyrir fjölda erlendra fyrir- tækja, rétt eins og þeir fram- leiða vörur sjálfir eða í samstarfi við innlenda aðila. Þá eru verk til þróunar mörg í sýningunni og beina sjónum fram á við. Hér er á ferðinni hópur hönnuða sem margir eru ungir að árum, enda sýningin kölluð Ný kynslóð ís- lenskra hönnuða. Hverjir eru á ferðinni? Laizé, forstjóri VIA, hefur sótt nýnæmi á liðnum árum til Japans og Alsír. íslendingarnir sem eiga lS53k * verk í Garðabæn- um til 1. desember eru meðal ann- arra: Bergþóra Guðnadóttir fyrir 66°Norður, Daníel Magnússon fyrir 101, Dögg Guðmunds fýrir sitt eigið fyrirtæki, Landslag ehf fýrir Siglufjörð, Katrín Pétursdóttir og Michael Young fyrir Svenska möbler, Erla Óskarsdóttir á tvo gripi á sýningunni, Sigga Heimis fyrir Ikea - svo bara nokkur nöfn séu nefnd. Þar er margt fallega hugsað að sjá og finna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.