Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Page 28
JT1 J* í t CJ jJ í 0 j Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^mfnleyndar er gætt. ,—1 ,—' f \ ,-j
D5DDD
SKAFTAHLÍÐ24, 105REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS505000
• Amþór Jökull
Þorsteinsson
komst í fréttirnar
í vikunni þegar
hann strauk frá
lögreglu sem
flutti hann á milli
fangelsa. Eins og
DV greindi frá
var Arnþór Jökull
handtekinn eftir að hann gekk
berserksgang á pítsastaðnum
Dominos í Hafnarfirði. Nokkrir
Hafnfirðingar hafa sett sig í
samband við blaðið eftir það og
sagt frá ferðum Arnþórs. Mun
hann hafa komið við á kránni
A. Hansen og fengið sér bjór og
spurt hvort starfsfólk þar vissi
eitthvað af ferðum Barkar Birg-
issonar, sem fyrir skemmstu
réðst á gest á A. Hansen með
öxi. Starfsfólkið gat engin svör
veitt, sem var kannski öllum
fyrir bestu...
Var hún ekki meðvituð
um umhverfi sitt?
Jí Ujoác
Siv grunlaus um vítisengil Hélt
iiún væri með sninlum
Á heimasíðu Sivjar Friðleifsdóttur, fyrrverandi umhverfis-
ráðherra, er mynd af henni með Jóni Trausta Lútherssyni og
félögum úr vélhjólaklúbbnum Fáfiii. DV birti myndina undir
fyrirsögninni „Siv skemmti sér með vítisengli." Siv segist hafa
verið algjörlega grunlaus um að Jón Trausti tilheyrði þessum
samtökum.
„Nei, ég hafði ekki hugmynd," segir Siv Friðleifsdóttir
alþingismaður en vildi ekki tjá sig nánar um málið. Myndin var
tekin þegar Siv var kosin heiðurssnigill á hátíðarsamkomu
Sniglanna í Valsheimilinu. Siv skrifaði að venju um átburðinn á
heimasíðu sinni og lét mynd af sér í góðra vina hópi fylgja með.
Á myndinni sést hún ásamt meðlimum vélhjólaklúbbsins
Fáfnis. Þrír þeirra sem eru með Siv á myndinni réðust inn á rit-
stjómarskrifstofu DV í fyrradag. Bmtu og brömluðu og tóku
fréttastjóra kverkataki.
Á heimasíðunni skrifaði Siv í tengslum við hátíðarsamkom-
una í sumar að það væri alls ekki ónýtt að vera snigill. „Hvað þá
heiðurs-Snigill," bætti hún við. DV hafði samband við Sniglana
og spurði af hverju Fáfnis-menn hefðu verið á staðnum.
Þær upplýsingar fengust að hátíðarsamkoman hefði verið
öllum vélhjólamönnum opin. Fáfhis-menn væm þó ekki með-
limir í Sniglunum.
Það h'tur því út fyrir að Siv hafi haldið að hún væri að
skemmta sér með félögum sínum í Sniglunum þegar Jón
Trausti Lúthersson, sem stendur við hlið hennar, er þó betur
þekktur undir viðumefninu Vítisengill íslands.
1 '~x.
[ Classic Sportbar Ármúla 5]