Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Síða 24
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI.
í þriðja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina »T i h« (tungl
i hásuðri), og i töblunni á blaðsíðu (17) er sýnt, hvað klukkan er
eftir islenzkum meðaltima, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri
í Rftykjavík. En vilji menn vita, hvað klukkan sé eftir íslenzkum
meðaltima, þegar tunglið eða sólin eru í hásuðri á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu«
á Reykjavíkurtölunni. Verður hún — 4 mínútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 mín. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavik. T. d. er
Raufarhöfn urn sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 mín. og 5. júlí er sól i hásuðri frá
Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er þvi tungl i hásuðri frá Flatey
kl. 5 47 e. m. (5 43 + 0 04 = 5 47).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur i almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl i hásuðri. en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að elns eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum i Reykjavik. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig(
norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvík stendur
á heilli stundu. Leiðréttingin er pósítíf (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er þvi lögð við tíma sólarlagsins i Rvík,
en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiðréttingin negatíf
(—), verður að taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sólargangur 3. mai á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2*/a stigi norðar en Rvík.
Penna dag er sólargangur i Reykjavík 16 st. 56 mín. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2*/> stig norður og sólargang 16 st. er + 16
mín. en fyrir 17 st. + 23 mín. og fyrir 16 st. 56 min. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 23 mín. Lengdarleiðréttingin er — 24 mín.
í Reykjavík .... su. 3 58 sl. 8 54
Breiddarleiðrétting . — 23 +23
Lengdarleiðrétting . — 24______— 24
ÁRaufarhöfn . . . . su. 3 11 sl. 8 53
Annað dæmi: Sólargangur 15. nóv. í Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stigi vestar og 1*/* stigi norðar en Rvík. Sólargangur i Reykjavik
er 6 st. 28 mín.
í Reykjavík.........su. 8 58 sl. 3 26
Breiddarleiðrétting . +12 — 12
Lengdarleiðrétting . + 4______+ 4
í Flatey................. 9 14 sl. 3 18
(22)