Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Blaðsíða 89
Torfi var meðalmaður á hæð og gildleik og vel
á fót kominn, meðalmaður vel til burða, lipur, snar
og mjúkur, Ijósleitur og ívið toginleitur í andliti, ávalt
nef, ennið mikið, augu SDÖr og eygur vel, munnurinn
nettur, og ávöl kinnin, og mátti hann heita fríður
maður sjónum, jarpur á háralit; hvass að skilningi,
minnið gott, gáfur að öllu hinar iiprustu, og skáld
gott, hugprúður og hugdjarfur, og brá sér hvergi, þó
að fyrir lægi opinn dauði; gleðimaður og kom sér vel
með skemmtan sinni, og var hvarvetna hin mesta
fundaprýði; þreklundaður, hinn tryggvasti og bezti
vinur vina sinna, og þókti honum þeim ekkert of gott úr
úr eigu sinni, og gætti í hverjum stað, er hann var
staddur, þess, er mátti þeim tii heiðurs verða, í móti
hverjum sem eiga var (en þar í móti var hann
grimmur óvinum og hefnigjarn); allra manna þýð-
lyndastur og meðaumkunarsamur við alla, er áttu
við bágan kost að búa, eftir megni og þar sem
hann til náði. Hinir beztu vinir hans voru bræður
hans, Friðrik og Stefán, en kalt var mjög í milli Jóns
Eggertssonar,1) og voru þeir mjög óskaplíkir.
Torfi sigldi til Kaupmannahafnar2), komst þegar á
Garð, en er hann hafði tekið exarnen philologicum
og philosophicum [þ. e. upphafsprófin í háskólanum]
með beztu heppni, veiktist hann af kirtlasjúkdómi í
hálsinum, og fór hann þá á Friðriksspítala. Mig minnir,
að læknir sá, sem skar hálsinn, héti Cromer, en á
meðan hélt Torfi mundlaug undir, sem blæddi f, og
brá sér hvergi. En sár þau vildu seint gróa, og tók
einn kirtillinn við af öðrum. Reyndu Iæknar bæði að
1) Jón stúdent i Fagradal; hér við má geta þess, að jafnan
var heldur óástúðugt með þeim bræðrum Jóni í Fagradal og
síra Friðrik.
2) Torfi fæddist 1809, en varð stúdent úr heimaskóla frá sira
Helga G. Thordarsen, sem þá var prestur i Odda, síðar byskup;
sigldi Torfi þá til háskólans og leysti af hendi aðgöngupróf í há-
skólann haustið 1831, en ári siðar annað lærdómspróf, hvort tveggja
með fyrstu einkunn. Hann andaðist laust eftir nýár 1836.
(85)