Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1953, Qupperneq 36
né minna en 310 manns úr henni. Nú vitum við or-
sökina til þessarar aukningar, en Gorgas gat ekki
vitað það. Um mörg ár liafSi lítiS flutzt inn af fólki
til Havana, vegna þess hve illt orð bærinn hafði á
sér fvrir óhollustu. Gula sóttin var því búin að sýkja
flesta, sem þar áttu heima, og fáir bættust við, sem
ekki höfðu tekið veikina áður. En þegar fréttir bár-
ust um, hve mikil breyting hefði á orðið um heilsu-
farið, fór fólk að fiykkjast til eyjarinnar, og með
þvi fékk gula sóttin nýja næringu. Hvorki meira né
minna en 25000 manns fluttist inn til Havana árið
1900.
Ameríski landstjórinn, Leonard Wood, hafði stvrkt
Gorgas drengilega i baráttunni við sóðaskapinn í
borginni, og báðir urðu fyrir jafnmiklum vonbrigð-
um, þegar gula sóttin hélt áfram að geisa eftir sem
áður.
En einn læknir, sem Gorgas hafði ráðið til sín,
var ekki hissa. Það var Carlos Finlay, sem var einn
af þremur sérfræðingum, sem hafði það hlutverk að
rannsaka livert nýtt tilfelli, sem grunsamt var. Finlay
hafði áður en herferðin hófst verið sannfærður um,
að hún mundi ekki bera árangur gagnvart gulu sótt-
inni. Mörgum árum áður en Gorgas kom til Havana
hafði hann sannfærzt um, að baráttuna gegn gulu
sóttinni ætti að heyja gegn ofurlitilli mýflugu, sem
þá var kölluð Stegomyia fasciata, en nú er kölluð
Aedes aeggpti. Af mýflugum er sagt, að til sé um
3000 tegundir. Það þurfti áreiðanlega glöggskyggni
til að geta bent á þessa sérstöku tegund af öllum þeim
aragrúa, sem fyrir var í Havana. Þótt ýmsir aðrir
hefðu stungið upp á þvi, að mýflugur bæru veikina,
var dr. Finlay sá eini sem sá, hvaða teg'und það var,
sem var hættuleg.
En þótt dr. Finlay hefði gert allt, sem honum gat
hugkvæmzt til þess að sýna fram á, að þessi mý-
fluga bæri veikina, vantaði hann ávallt einn hlekk
(34)