Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1953, Qupperneq 80
milli Bordeaux og Casablanca, en síðan milli Reykja-
víkur, Leith og Kaupmannahafnar. „Katla“ var leigð
til flutninga við Ameríku. „Jökulfell“, hið nýja frysti-
skip S.Í.S. (smíðað í Svíþjóð), kom til landsins í apríl.
Var það siðan mestan hluta ársins i ávaxtaflutningum
við Mið- og Suður-Ameríku. 30 íslenzkir ferðamenn
fóru til Finnlands í júlí, en 30 finnskir ferðamenn
ferðuðust um ísland á sama tíma. M.s. „Hekla" var um
sumarið í Skotlandsferðum á sama hátt og áður.
Slysfarir og slysavarnir. Alls létust 77 islendingar
af slysförum á árinu. Af þeim drukknuðu 32, í flug-
slysum fórust 22, en 11 í umferðarslysum. Allmargir
vélbátar fórust, og nokkra menn tók út af togurum og
vélbátum. Flugvélin „Glitfaxi“, sem var að koma frá
Vestmannaeyjum, fórst í nánd við Reykjavík 31. jan.
og 12. apríl fórst flugvél með tveimur íslendingum og
einum Breta í nánd við Sheffield i Englandi. Allmörg-
um innlendum og erlendum sjómönnum var bjargað
úr sjávarháska fyrir atbeina Slysavarnafélags íslands
og hjálparsveita þess. I marz vann Sigurgeir Ólafsson,
bátsmaður á togaranum „Elliðaey“ frækilegt björg-
unarafrek. Varpaði hann sér til sunds i stórviðri og
sjógangi og bjargaði háseta, er fallið hafði útbyrðis.
Stjórnarfar. Stjórn Steingrims Steinþórssonar sat
að völdum allt árið. Hinn 8. júlí fór fram aukakosning
i Mýrasýslu vegna brottfarar þingmanns kjördæmis-
ins, Bjarna Ásgeirssonar, til Noregs. Kjörinn var fram-
bjóðandi Framsóknarflokksins, Andrés Eyjólfsson í
Síðumúla.
Alþingi afgreiddi mörg lög á árinu, m. a. um dýrtið-
arráðstafanir, útflutningsverzlun, gjaldeyrismál og
iðnaðarbanka.
Útvegur. Heildaraflinn var 371 000 tonn (árið áður
323 000 tonn). ísfiskur var 52 000 tonn (árið áður
32 000), hraðfrystur fiskur 93 000 tonn (árið áður
57 000), saltfiskur 03 000 tonn (árið áður 99 000) harð-
fiskur 6 800 tonn (árið áður um 500), niðursoðinn
(78)