Barnadagurinn - 19.04.1934, Blaðsíða 7
BARNADAGURINN 1984.
7
„Barnadagiír ínn“.
Grein þessi er eftir frú Estrid Falberg Brekkan, konu
Friðriks Brekkan rithöfundar. Frú Brekkan er alin upp í
Gautaborg, og varð þar kunn sem ágætur kennari. — Nú
vinnur frúin það þarfa verk, að kynna æskulýðnum hér í
skólum höfuðstaðarins, sitt „málmi skærra mál“, sænskuna.
í grein þessari segir frú Brekkan frá fyrsta bamadegi í
Svíþjóð, sem var hafinn í Gautaborg fyrir um 30 árum.
Mun mörgum þykja gaman að fylgjast með frásögn frúar-
innar um það, hvernig frændur vorir taka á þeim málum.
í. J.
Sá 3. september 1907, var hátíðisdagur, sem eg aldrei
gleymi. Það var fyrsti „Bamadagurinn“, sem haldinn var
í Svíþjóð. Eg var þá skólatelpa, sem lagði af stað út í hring-
iðu hátíðahaldsins, og kreisti heilan tveggja-krónu-pening
fast í lófanum, því að hann var sannarlega auðæfi — og eg
hafði ekki einungis fullan rétt, til þess að eyða honum eftir
eigin geðþótta — heldur átti eg blátt áfram að eyða hon-
um, það mátti alls ekki spara hann undir neinum kringum-
stæðum!
„Gústaf Adolfs-dagurinn“ (7. nóvember) var annars
hátíðisdagur skólabamanna, og þá var maður vanur að fá
10 aura, til þess að gera sér glaðan dag fyrir. — En
þetta! Maðurinn fekk undir eins hugboð um, að „Barna-
dagurinn" væri nýung, sem fullorðna fólkinu, aldrei þessu
vant, þætti eitthvað varið í, úr því sparsamir foreldrar gátu
fengið af sér að láta okkur krakkana fá heilan tveggja-
krónu-pening hvert, og meira að segja banna okkur að
leggja hann í „sparibaukinn“.
Árið 1907 var enn þá hægt að fá talsvert fyrir pening-
ana, svo að eg gat tekið þátt í næstum öllu því, sem sérstak-
lega var ætlað börnum — keypt happdrættismiða og sæl-
gæti og lagt eins — og tveggja eyringa — auðvitað með
svolítilli aðgætni — í sparibauka, sem alls staðar var
hringlað með. Þar við bættist svo allt það, sem hægt var að
fá að sjá og heyra ókeypis. Því undir eins frá fyrstu byrjun
hafði „Barnadags“-hugmyndin unnið svo algerðan sigur,
að það var nóg af listamönnum: söngvurum, leikurum,
„fjöllistamönnum“ og ýmsum öðrum, er buðu fram krafta
sína og aðstoð — og fjölda margar sýningar fóru fram úti
á götum og torgum og kostuðu áhorfendur ekki neitt —
það er að segja — állt í kring hlupu unglingar í ýmis-
konar grímubúningum og hringluðu „Barnadags“-bauk-
um, og það hlaut þá að vera reglulegt dauðýfli, sem undir
þeim kringumstæðum gat stillt sig um að fórna smáskild-
ingunum í baukana.
Leikhús, hljómlistahús, kaffihús, — allt gekk undir
merki barnadagsins. Hin vinsæla „Barnadags“-nefnd gat
undir eins fengið hvern sem var, til þess að gera hvað sem
var, og oftast ókeypis. Dagblöðin, sem strax gengu í þjón-
ustú „Bamadagsins“, komu út með sérstökum „Bama-
dags“-blaðsíðum. Risavaxin auglýsingablöð og dagskrá há-
tíðisdagsins blöstu alls staðar við á plankagirðingum og í
sýningargluggum — listamennirnir teiknuðu kauplaust og
prentsmiðjumar prentuðu ókeypis. Kaupmönnum var það
strax ljóst, að þeir skyldu leggja fram sinn skerf, og þeir
kepptust um að setja stórar og dýrar auglýsingar í „Barna-
d'ags-dagblaðið“, sömuleiðis á dagskrána og sjálfa að-
göngumiðana. — í stuttu máli, „Barnadagurinn“ komst
Framh. á síðu 8.
IIIIIIIIIIHIIIIIIIIIlllllllllllIlHlllllIlllllllllllIIIIIiyilHHIIIIIIIIIIIHIIllIIIIIIIIIIHIIIhlllllllllllllHllllllllllIIIIIIIIIlIlHI'g
Battaliiio |
Austurstrceti 14 |
(uppi).
| Þar fást hattarnir og |
| húfurnar, sem allir
| krakkar vilja eiga. —
| ' GUNNLAUG BRIEM |
ÍIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1IIIII1III1III,1I1II,11I,1IIIII,1III111II11II1IIIIIIIIIB
Skólalitir.
Höfum nýlega fengið mjög mikið af allskonar vatnslita-
kössum. — Ódýrum litum í töflum, skálum og túbum, sem
einnig fást lausar. Kassar með 10-12 litum frá 75 aurum.
P e n s 1 a r, margar tegundir.
P a p p í r, í bókum og blokkum
Fáið ykkur litakassa fyrir sumarið.
,,MÁLARINN“.
Simi 1496. Bankastrætí 7.
Barna-
tryggingar
með þeim hœtti, að iflgjöld falla
niflur ef sá sem biður um trygg-
inguna (venjnlega faðir barns-
ins) fellur frd eða verður öryrki.
Leitið upplýsinga (látð getið ald-
urs yðarog hvenœr þérmynduð óska
úlborgunará trygýingarfénu).
Lífsábyrgðarfél. THULE h.f.
Aðalumboð fyr.r island
Carl D. Tulinius & Co.
Eimskip 21.
Simi 2424.
^ Allar nýj ustu
íslenzkar bækur
og mikið af erlendum bókum
og blöðum, fáið þið altaf hjá:
miRH
Bókaverzlun,
Austurstræti 1.