Barnadagurinn - 19.04.1934, Qupperneq 15
BARNADAGURINN 1934.
15
En bærinn okkar er einkennilegur. Hann er hvorki
byggður fyrir böm né bíla.
Göturnar eru of þröngar fyrir bílana og það vantar
land undir þá. Húsin standa of þétt og of nálægt götu,
vegna bamanna. Það vantar opin svæði fyrir börnin, með
viðeigandi útbúnaði. Satt er það, lóðimar hér í bæ eru
dýrar. En moldin er aldrei of góð fyrir góðan gróður, og
landið aldrei of dýrmætt fyrir bezta gróðurinn — börnin.
Fyrra atriðið er afsakanlegt, vegna þess, að bílar eru
ný fyrirbrigði, en síðara atriðið varla, vegna þess, að börn
hafa fæðst og munu fæðast.
Alvarlegasta viðfangsefni vort er nú: Bömin á göt-
umii og bílamir.
I dag er Reykjavík barnanna, eins og myndin sýnir.
I. J.
DagheimiliS Grænaborg.
Dagheimilið starfaði í fyrra frá 1. júní til 15. sept. 87
börn dvöldu alls á heimilinu og rúmlega helmingur þeirra
dvaldi þar alveg frítt, frá kl. 9—6 daglega. Fengu börnin
fæði eftir nútímakröfum og umsjá kunnáttumanna.
Myndirnar hér eru frá dagheimilinu í Grænuborg.
Fylgist vel með
á barnadaginn!
Takið eftir
skr úðgöngnnni!
Sækið
skemmtanirnar!
Kaupið ,Sólskin6
Allir með merki
barnadagsins!
Meyj a-
skemman kl. 8.
Banzinn kl. 91
Austurbæj ar skólinn
auglýsir hér í blaðinu merkjasolu 6. maí til ágóða
íyrir ferðasjðð fullnaðarprófsbarna skólans. Skól-
inn hefir vegna starfsemi barnadagsins frestað
merkjasölunni til þessa tíma. Vildum vér, að börn
skólans fengju að njóta þess, þegar þau bjóða
merki sín.
Dagheimili „Sumargjafar“
starfar eins og að undanförnu frá 1. júní n. k.
Upplýsingar fást hjá framkvæmdaráði Barna-
vinafélagsins,
Steingrími Arasyni, form., SÍmi 4341,
ísak Jónssyni, féhirði, sími 2552,
Arngrími Kristjánssyni, ritara, sími 2433.