Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005
Fyrst og fremst 3>V
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
Mikael Torfason
Fréttastjóri:
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
50000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 n
Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550
5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is -
Auglýsingan auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
Dreifing: Pósthúsið
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
Hv^ð vej§t þú um
1 Hversu stór er
eyjan, miðað við ísland?
2 Hversu margir eru íbúar
eyjarinnar?
3 Til hvaða þjóðaflokks telst
mikill meirihluti íbúanna?
4 Hvað heitir nyrsti hluti
eyjarinnar?
5 Hversu margir íbúar þar
eru taldir hafa látið lífið eftir
jarðskjálftann á dögunum?
Svör neðst á síöunni
Kristján I
1448-1481
öldum saman var
„danski kóngurinn" æðsta
yfirvald á íslandi en lands-
menn greindu ekki alltaf
mjögá
milli
þeirra
einstak-
linga sem
í hásæt-
inu sátu.
ísland
komst
undir
Dana-
kónga
þegar
Kalmarsambandið komst á
milli Noregs, Danmerkur
og Svíþjóðar en rofnaði síð-
an og Noregur fylgdi þá
Danmörku í ríkjasambandi.
Dana vantaði kóng og buðu
hinum þýska Adolf 8. her-
toga í Schleswig-Holstein
hásætið en honum fannst
hann of gamall (48 ára) og
bauð í staðinn fram ungan
frænda sinn, Kristján her-
toga í Oldenburg í Norður-
Þýskalandi. Hann varð
fyrsti Kristjáninn sem varð
Danakóngur. Kristján réði
einnig Svíþjóð um tíma en
mátti svo sætta sig við Nor-
eg og Danmörku. Hann dó
1841 og arftaki hans var
sonur hans, Hans.
Danakóngar
Prestur
Málið
Prestar hafa mikiö að gera
um jólin eins og alkunna er.
Oröið „prestur" er komiö úr
grlsku, þarsem „presbyter-
os“ þýðir„öldungur“ í merk-
ingunni„gamall og um-
fram allt vitur maður".
„Séra" er aftur á
móti einfaldlega
sá gamli titill sem
enn viðgengst í Bretlandi á
aöalsmönnum,„sir" eða
„sire". Þannig voru prestar
ávarpaðir afþvi þeir voru
mektarmenn í veraldlegum
skilningi en ekki afþví þeir
voru i nánum tengslum við
Guð almáttugan.
Svörviðspumingum:
1. Tæplega fimm sinnum stærri - 2. Fjöru-
tíu milljónir - 3. Malaja - 4. Aceh eða
Akhtje - 5. Að minnsta kosti 80 þúsund.
Árið mitt á DV
Fyrir rétt rúmu ári síðan, þegar mér
bauðst afar óvænt að taka við starfl rit-
stjóra hér á DV ásamt Mikael Torfa-
syni, þá einsetti ég mér að starfa hér á blað-
inu svona á að giska þrjú, fjögur ár; fara síð-
an að líta í kringum mig eftir nýjum störf-
um. Nú hefur það gerst fyrr en ég ætlaði að
ég mun hverfa á brott þar sem mér hefúr
boðist að sjá um nýja útvarpsstöð sem í
burðarliðnum er af því sama fyrirtæki og
rekur DV.
Það er tilboð sem gamail útvarpsmaður
getiu ekki hafnað en það er þó hreint ekki
með neinni ánægju sem ég hverf úr starfl
héráDV.
Já, blaðið hefúr verið umdeilt. Jú, við
höfum gert einhver mistök sem ég hefði
alveg viljað sleppa við. En um leið er það
bjargföst vissa mín að með því afturhvarfi tíl
gamalla og gróinna hefða í íslenskri blaða-
mennsku sem einkennt hefur DV síðastliðið
ár, ekki síður en svipmót nýjustu strauma í
blaðamennsku heimsins, þá hafi verið tekin
rétt steflia. Það sæmir mér auðvitað ekki að
hrósa xun of á þessum eigin tflnamótum
blaðinu sem ég hef átt þátt í að móta en ég
get samt ekki stilit mig um að árétta að sú
stefna blaðsins að kalla hlutina sínum réttu
nöflium og fjalla um líf fólksins í landinu á
sem allra breiðustum grunni, hún er að
mínu viti hin eina rétta fyrir blað af þessu
tagi.
Og ég held að þetta síðastliðna ár hafi blað-
inu miðað vel áleiðis í að finna fjölina sína,
eins og þar stendur, þótt auðvitað sé það í
raun ekki mitt að dæma þar um. En von mfn
er sú að áfram verði haldið á sömu braut og
enn betur unnið þótt sjálfúr hverfi ég nú
burt til annarra starfa.
Persónulega munu mér verða mikils virði
þau samskipti sem þetta rúma ár hefúr fært
mér við gífurlegan fjölda fólks sem blaðið
hefúr leitað til eða leitað hefúr tii blaðsins,
ýmissa erinda, og þó umfram allt góð kynni
af því öfluga liði starfsfólks sem á ritstjóm
DVvinnur.
Illugi Jökulsson
Arið að ðætti Múrsins
VIÐ FÓRUM RÁNSHENDI um Múrinn.is
og birtum hér stóran hluta af uppgjöri
vefritsins fyrir nýliðið ár:
FJÖLMIÐLAFÁR ÁRSINS: Þegar
ríkisstjómin lagði fram fjöl- fagjsd
miðlalög og ijölmiðlar fengu 'vsSsS
loksins eitthvað áhugavert að
fjalla um: Sjálfa sig.
BREYTINGARTILLAGA ÁRSINS:
Fjórða breytingartillaga
stjómarflokkanna við eigið
íjölmiðlafrumvarp. Eða var
það kannski fimmta breyting-
artillagan?
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA
ÁRSINS: Þjóðaratkvæða-
greiðslan sem aldrei varð þar
sem Davíð tók fjölmiölafrumvarpið,
yfirfór kommusetninguna og kallaði
þaðnýlög.
Akvæði ársins: 26. grein stjómarskrár
íslands um synjunarrétt forsetans sem
hver einasti íslendingur veit auðvitað
fuilkomlega hvemig á að túlka.
LÝÐRÆÐISPOSTULI ÁRSINS:
Halldór Blöndal í atkvæða-
greiðslu um fjölmiölamálið:
NÞar sem ég ann sönnum lýðræðis-
háttum, fijálsri fjölmiðlun og heil-
brigðri skoðanamyndun segi ég já.i
Skömm sé íþrótta-
fréttamönnum
Viða á netinu
verður vart mikill-
ar reiði yfir þvi að
Kristin Rós Há-
konardóttir hafi
ekki verið valin
iþróttamaður árs-
ins þrátt fyrir frá-
bæran árangur á
árinu, meðal ann-
ars á ólympíuleik-
um. Dæmi er þetta hér:
„Enn kemur landlæg karlremba is-
lenskra iþróttafréttamanna berlega i
Ijós. Kristin Rós, þessi kyndilberi
íþróttamennskunnar i sinni tærustu
mynd, manneskja sem iðkar iþrótt
------—------- sína afeinurð og
krafti án nokkurr-
ar ábatavonar,
lýtur enn i lægra
, haldi fyrir ein-
- hverjum atvinnu-
q körlum sem
sprikla fyrir sirka
miljónkall á viku
eða dag eðamán-
uði eða hvað.
Þessi fyrirmynd annarra i hennar að-
stæðum, þessi mikli sigurvegari yfir
sjálfinu sem aðrir og aðstæður hafa
skapað henni, þessi mesta iþrótta-
kona sem við Islendingar höfum eign-
ast lýtur enn í lægra haldi fyrir þeim
fordómum að fatlaðir iþróttamenn
séu„bara" fatlaðir íþróttamenn. Þvi
meiri sem fötlunin er, þeim mun aðdá-
unar- og verðlaunaverðara er afrekið,
að mínu ófatlaða og karllæga mati.
Skömm sé islenskum (karl-
rembujiþróttafréttamönnum, enn
einu sinni."
„Najad", ókunnur höfundur á spjall-
vefEgils Helgasonar á Vísi.is.
Manneldi ársins:
Þegar Guðni
Ágústsson
hvatti öll börn
P| tilaðborðaSS-
pylsur. Enda eru
það vistvænar
pylsurafham-
ingjusömu
pylsudýri.
Fyrst og fremst
MATAREITRUN ÁRSINS: Guðrún
ögmundsdóttir og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borðuðu
saman kvöldverð en hálftíma
síðar var Guðrún orðin svo veik að
Ingibjörg Sólrún varð að taka sæti
hennar á þingi og halda uppi merkj-
um Samfylldngarinnar í fjölmiðla-
málinu. Júsénkó og díoxín, hvað?
N0NAME ANDLIT ÁRSINS: Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir.
EIGINMAÐUR ÁRSINS: Kristinn
Bjömsson.
ORSAKASKÝRING ÁRSINS:
Sú kenning Bjöms Bjama-
sonar að ólöglegt plíusamráð
hafi verið Stalín að kenna.
DÓMARI ÁRSINS: Jón Steinar
Gunnlaugsson sem skipaður
var hæstaréttardómari af fjár-
málaráðherra eftir langa og málefna-
lega umhugsun.
MEÐMÆLI ÁRSINS: Bréfið sem
nokkrir velviljaðir hugsjóna-
menn skrifuðu til stuðnings
Jóni Steinari en bmtust svo inn á
skrifstofú hans og sendu það úr hans
eigin tölvu.
r
RÆKJA ÁRSINS: Alffeð Þor-
steinsson sem tókst að fella
risarækjueldi undir starf-
semi Orkuveitu Reykjavíkur sem
nú veitir hita, rafmagni, vatni, ljós-
leiðara og rækjum inn á hvert heimili.
LJÓSMYNDARI ÁRSINS: Astþór
Magnússon sem myndaði
æsispennandi vinnudag
blaðamanna DV í gegnum
gluggana í SkaftahKð.
MISMÆLIÁRSINS: Þegar Hjálm-
ar Ámason sagðist vilja end-
urskoða stuðning íslendinga við
írakssm'ðið - eða ekki - eða kannski.
VIÐEIGANDI STEFNUMÁL ÁRSINS: Stuðn-
ingur Hjálmars Amasonar við vetnis-
væðingu íslands. Vetni er nefnilega
sérlega eðlislétt lofttegund.
TRÚMANN ÁRSINS: Ámi Magn-
ússon sem gleymdi embætt-
istöku forseta íslands vegna
þess að hann þurfti að vitna hjá
Hvítasunnusöfnuðinum.
TEPPAKAUPENDUR ÁRSINS: ís-
lensku ffiðargæsluliðamir f
Kabúl sem eyddu klukkustund
í fullum herklæðum við teppakaup.
FRASIÁRSINS: „Shit happens."
ÚTLENDINGAVINUR ÁRSINS: Hin góðlát-
legu lög Bjöms Bjamasonar þar sem
meðal annars em rýmkaðar
heimildir til lífsýnatöku og
húsleitar hjá útíendingum.
Svo ekki sé minnst á að út-
lendingur þarf að vera orðinn 24 ára
til að giftast íslendingi og dvelja með
honum á íslandi því að eldra fólk
gengur ekki í hentugleikahjónabönd.
ÚTLENDINGUR ÁRSINS: Bobby
Fischer. Eini maðurinn sem
kemst (kannski) til íslands
framhjá þröngri smásjá út-
lendingaeftirlitsins.
FORSÍÐA ÁRSINS: Prentvélar
Moggans vom stöðvaðar og
skipt um forsíðu þegar sá
heimsviðburður varð að ís-
lenskir sprengjusérfræðingar „fúndu“
sinnepsgas í Irak. Gasið reyndist svo
vera skyldara venjulegu dijón-sinnepi
en efnavopnum.
FRÉTTAHAUKUR ÁRSINS: Ásgeir
Sverrisson, yfirmaður er-
lendra frétta á Mogganum,
telur að auðvitað verði blaðamenn
alltaf að trúa því sem utanríkisráð-
herra segir um frak. Það hefur jú allt
reynst satt hingað til eða...
LANDAFRÆÐIKENNARI ÁRSINS:
Davíð Oddsson upplýsti
landsmenn um að friður
ríkti í 795 byggðarlögum af 800
í írak sem væri mjög friðsælt að með-
altali. Þetta blasir auðvitað við, er það
ekki?
FORSJÁRHYGGJA ÁRSINS: Tillaga
Samfylkingarinnar um að
banna sælgætis- og gosaug-
lýsingar fyrir níu á kvöldin til að
vemda böm fyrir óæskilegum áhrif-
um slíkra auglýsinga. Næsta ffumvarp
mun ganga út á að binda fyrir augun á
bömunum þegar þau fara í Kringluna.
GLEÐIÁRSINS: Tryllingsleg gleði
Péturs Blöndals yfir 1%
skattalækkun sem auðvitað
skilar flestum peningum til .
þeirra sem hafa hæstar tekjur.
Viðbrögð Péturs við hækkuðum skóla-
gjöldum og komugjöldum á sjúkrahús
festust hins vegar ekki á filmu.
KLEYFHUGI ÁRSINS: Dagný Jónsdóttir
sem var á móti skólagjalda-
^ frumvarpinu í fjölmiðlum,
með því í menntamála-
nefiidinni en sat svo hjá við
sjálfa atkvæðagreiðsluna í þinginu.
BJARTSÝNI ÁRSINS: Að reisa stærstu
stíflu í Evrópu ofan á misgengi.
ÖRLÆTI ÁRSINS: Framlag
Kristjáns Jóhannssonar til
fjársöfiiunar handa krabba-
meinssjúkum bömum. Hann borðaði
jú aðeins venjulegan heimilismat á
meðan hann dvaldi hér á landi.
SKREPPITÚR ÁRSINS: Þegar Jónas skaust
til Norðfjarðar fyrst hann var hvort eð
er kominn austur að Gullfossi.
MANNELDIÁRSINS: Þegar GuðniÁgústs-
son hvattí öll böm til að borða
SS-pylsur. Enda em það vist-
1 vænar pylsur af hamingju-
sömu pylsudýri.
VfSINDAHEIMSPEKI ÁRSINS:
Ágúst Ólafur Ágústsson skil-
greindi markaðslögmálin í I
anda miðaldaguðspekinga
eða empírista 19. aldar. Þau em
„algild alveg eins og náttúrulögmálin.
Þau em algild."
LEIÐRÉTTING ÁRSINS: Skýrsla
framtíðarhóps Samfylkingar-
innar um skólamál hvarf með
dularfúllum hættí af netinu en
í henni var hvatt eindregið til einka-
rekstrar í skólakerfinu. Mogginn náði
samt að birta skýrsluna.
ÖNNUR LEIÐRÉTTING ÁRSINS:
Björn Bjamason breytti full-
yrðingum á heimasíðu sinni
þegar í ljós kom að þær
stönguðust á við gjörðir ríkisstjómar-
innar í fjölmiðlamálinu.
ÞRIÐJA LEIÐRÉTTING ÁRSINS: FréttatQ-
kynningin um sinnepsgasfundinn í
írak hvarf af heimasíðu utanríkis-
ráðuneytísins, jafit óvænt og sinneps-
gasið.
RÉTTLÆTI ÁRSINS: Héraðsdómari á
Reykjanesi taldi manni það til máls-
bóta sem beitt hafði eiginkonu sína
grófu ofbeldi að hún hefði reitt hann
til reiði. Hver getur efast um slíkt
samfélag?