Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Side 19
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 7 9 Klárar Cowher dæmið? Hinn skapheiti þjálfari pittsburgh, Bill Cowher, er líklegur til að fara alla leið með slna menn I ár._____ Manning bætti met Youngs Peyton Manning, leikstjóm- andi Indianapolis Colts, lét sér ekki nægja að slá snertimarkamet áLmSm% DansMarinoá L ” 'tp tímabilinu heldur sló J * '4 hann einnig met i,, Steves . . /,11 \ Young ■ ;s/{$ „pass rating." Þá em lagðar saman tölur jJ yfir heppnaðar og misheppnaðar sendingar, hversu oft ^ v leikstjómandinn kastar 1 boltanum frá sér JjijmFf o.s.fn'. Með þessu J/ öfiufæst ákveðin tala Jr sem kallað er * „pass rating". Það telst vera frábær árangur að Wtt. vera yfir 100 í pass |BI: rating og met Young frá 1994 var 112,8. Manning gerði sér lítið f\TÍr og endaði tímabilið með 121,1 í pass rating sem er einstakur árangur og annað met hjá honum í ár sem væntanlega verður seint slegið. Kærður fyrir hótanir Monte Reagor, tækiari hjá Indianapolis Colts, var í gær kærður fyrir að ofsækja og hóta f>Trum kæmstu sinni. Stúlkan segir að Reagor hafi ítrekað hringt í hana með hótanir um limlest- ingar félli hún ekki frá ákærum á hendur honum vegna vangold- iima meðlagsgreiðsla. Þau eiga saman tveggja ára gamlan son og Reagor hefur hingað til neitað að greiða meðlag með drengnum þótt hann sé með nóg af peningum á milli handanna. Brett barði Bears Hinn ótrúlegi leikstjómandi Green Bay Packers, Brett Favre, gekk írá Chicago Bears í fyrri hálfleik á sunnudag og kom sínum mönnum í gírinn fyrir úrslitakeppnina er Packers slátraði Björnunum frá Chicago, 31-14. „Við vorum að mæta þeim í þriðja sinn í vetur. Við þekktum þá því vel og þeir okkur en það breytti engu,“ sagði Favre eftir leikinn en hann var að spila sinn 205. leik í röð. „Ég hugsaði með sjálfum mérað eftir 200 /jnjBgi íeiki “ eitthvað 1 aðgerast IS |í" en ég held áfram að sleppa við ga meiðsli. Við erum klárir í úrslitakepp- nina og Minnesota , mun fá óblíðar mót- ,, tökur á heimavelli J okkar um næstu helgi.“ Þess má | JfKf : getaaðleikur fc.áj-" ájgff' Green Bay og tKÍ' Minnesota verður tfm sýnduríbeinni \ *■* útsendingu á Sýn um næstu helgi og. Það var líf og fjör í NFL-deildinni á sunnudag þegar lokaumferð deildarinnar fór fram og liðin slógust um sæti í úrslitakeppninni. Mikil dramatík var í mörgum leikjum og lið með 50% árangur náðu inn í úrslitakeppnina. Bulger bjargaði Rams Síðustu liðin til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina voru New York Jets, St. Louis Rams og Minnesota Vikings. Jets fðru áfram þrátt fyrir tap í framlengingu gegn Rams en Rams skaut sér áfram með sigrinum. Minnesota tapaði fyrir arfaslöku liði Washington Redskins en slapp samt í gegn. Þessi lið munu væntanlega ljúka keppni strax um næstu helgi ef þau hysja ekki ærlega upp um sig buxurnar. Bæði Minnesota og St. Louis státa af 50% árangri en þau unnu átta leiki og töpuðu átta. Þetta er aðeins í annað sinn í sögunni sem þetta gerist en Dallas og Detroit komust í gegn með 50% árangur 1999. Þessi lið byrjuðu tímabilið frábærlega en hafa verið slök seinni hlutann og verða því seint talinn líkleg til afreka. Til að mynda tapaði Minnesota sjö af síðustu tíu leikjum sínum en þetta er annað árið f röð sem liðið missir allt niður um sig seinni hlutann. Bjargvætturinn Bulger Dramatískasti leikur deildarinnar var viðureign Jets og Rams en þar sigraði Rams í framlengingu. Leikstjórnandi Rams, Marc Bulger, fór á kostum í leiknum og kastaði boltanum 450 metra og bjargaði tímabilinu hjá sínu liði. Mörg af heitustu liðum deildarinnar í dag komust þar af leiðandi ekki áfram. New Orleans vann fjóra síðustu leiki sína en það dugði ekki til. Carolina vann fimm leiki í röð en tapaði tveimur af síðustu þremur og sat eftir með sárt ennið. Buffalo var búið að vinna sex leiki í röð en tapaði fyrir feiknasterku liði Pittsburgh í lokaumferðinni og það þrátt fyrir að Steelers hafi hvílt marga af sínum lykilmönnum um helgina. Lykilmenn hvíldu Fjögur lið hafa skarað fram úr í vetur - Pittsburgh Steelers, New England Patriots, Philadelphia Eagles og Indianapolis Colts. Þetta eru langsterkustu lið deildarinnar og eitt þeirra mun klárlega standa eftir sem sigurvegari í Superbowl 6. febrúar næstkomandi. Þau voru öll búin að tryggja sitt sæti fyrir helgina og gátu því leyft sér að hvíla lykilmenn. Indianapolis hvfldi bæði besta leikmann deildarinnar, leikstjórnandann Peyton Manning, og hlauparann sinn, Edgerrin James, og töpuðu þar af leiðandi fyrir Denver, 33-14. Þessi lið munu mætast aftur um næstu helgi og þá stillr Colts upp öllum sínum sterkustu mönnum. Vesen á Eagles Philadelphia Eagles hvfldi líka lykilmenn og þar að auki eru þeir með fleiri lykilmenn í meiðslum sem gæti haft mikil áhrif á gengi liðsins í úr- slitakeppn- inni. Þeir leyfðu Cin- cinnati að flengja sig, 38-10, og Bengals kláruðu því tímabilið 8-8 og er nokkuð síðan þeir náðu álíka árangri. Pittsburgh kláraði deildina með besta árangur allra liða, 15-1, og styrkur liðsins sást best um helgina er þeir hvfldu sína bestu menn en sigruðu samt sjóðheitt lið Buffalo, 29-24. Steelers tapaði sínum öðrum leik á tímabilinu en hefur síðan unnið 14 í röð undir styrkri stjórn h nýliðans Ben Roethlisberger og eru líklegir til afreka. Þeir hafa mannskapinn til að fara alla leið en stóra p spurningin er hvort Big Ben hafi taugar til þess að standa sig í úrslita- keppninni gegn URSLITAKEPPNI NFL Þessi lið mætast {1. umferð: Laugardagur: Seattle Seahawks-St. Louis Rams San Diego Chargers-NY Jets Sunnudagur: Indianapolis Colts-Denver Broncos GB Packers-M. Vikings Belnt á Sýn. Þessi lið sitja hjá í 1. umferð: Pittsburgh Steelers New England Patriots Philadelphia Eagles Atlanta Falcons reyndum liðum eins og New England Patriots sem hef- ur unnið deildina síðustu tvö ár. henry@dv.is Hetja Rams Marc Bulger fór á kostum um helgina og sendi sina menn áfram Leikstjórn- andi Rams, Marc Bulger, fór á kostum í leiknum og kastaði boltanum 450 metra og bjargaði tímabilinu hjá sínu liði. Hörð barátta um einstaklingstitlana í NFL-deildinni Mikilvægt skref hjá Curtis Martin Vick í vanda Michael Vick, leikstjórnandi Atlanta Falcons, þarfað ná meiri stöðugleika isinn leik efFalcons á að að fara langt I úrslitakeppninni. Baráttan um hlaupatitil NFL- deildarinnar var æði hörð. Fór svo að lokum að Curtis Martin, hlaupari NY Jets, hljóp einum metra lengra en Shaun Alexander hjá Seattle Seahawks. Það er eitt gott skref og ansi mikilvægt. Edgerrin James, hlaupari Indianapolis Colts, hefði hæglega getað blandað sér í þennan slag en hann var látinn hvfla í leiknum gegn Denver. Martin og félagar í Jets lentu í framlengingu gegn Rams og þar hljóp Martin 24 metra sem skaut honum á toppinn. Manning hvíldi Peyton Manning hvfldi fyrir lokaleikinn gegn Denver rétt eins og félagi hans, James, og fyrir vikið skutust Culpepper og Green fram fyrir hann með flesta kastmetra á tímabilinu. Þeir komast þó ekki ná- lægt þeim 49 Flestar metrar Curtis Martin hjá Jets hljóp flesta metra allra I NFL-deildinni. snertimarks-sendingum sem Manning kastaði í ár og sló um leið 20 ára gamalt met Dans Marino. Hann hefur sett stefnuna á að slá næst met Marinos yfir flesta kastaða metra á einu tímabili en það met er vel yfir 5000 metrar. Mohammad greip mest Mushin Mohammad, útherji hjá Carolina, skilaði flestum metrum allra í gripnum boltum, 1405, og Joe Horn, hjá New Orleans, kom skammt á eftir með 1399. Indianapolis Colts átti manninn sem náði að skella flestum leik- stjórnendum í vetur en alls fengu leikstjórnendur deildarinnar 16 sinnum flugferð í jörðina frá Dwight FLESTIR KASTMETRAR D. Culpepper, Mlnnesota 4717 T. Green, Kansas 4S9I P. Manning, Indianapolis 4557 J. Plummer, Denver 4089 | B. Favre, Green Bay 4088 FLESTIR HLAUPAMETRAR C. Martin, NY Jets 1697 S. Alexander, Seattle 1696 C. Dillon, New England 1635 E. James, Indianapolis 1548 T. Barber, NY Giants 1518 H ■ Freeney. Bakvörður Baltimore, Ed Reed, stal flestum boltum á leiktíðinni eða alls níu. Tony Gonzalez, innherji Kansas City, var síðan sá leikmaður sem greip flesta bolta á leiktíðinni, 102. Slikum árangri hefur innherji aldrei náð áður í NFL-deildinni. henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.