Bræðrabandið - 01.04.1984, Blaðsíða 5

Bræðrabandið - 01.04.1984, Blaðsíða 5
orðið, hélt hún áfram að lesa, með því að nota vasaljós. En þegar rafhlöðurnar voru búnar, lét hún loksins frá sér bókina og lagðist til svefns. í dögun sáum við að hún var byrjuð að lesa bókina aftur. Og hún hélt áfram að lesa. Að lokum sagði hún eiginmanni mínum að hún yrði að skila bókinni, þar sem hún væri bráðlega á förum. "Alls ekki!" sagði hann við hana "þú verður fyrst að tala við konuna mína!" Svo ég fór til að athuga hvort hún vildi ekki eitthvað að borða, áður en hún færi. Hún sneri sér að mér og með grátstafinn í kverkunum sagði hún mér, að fyrir þremur mánuðum hefði sonarsonur hennar lent í bílslysi þar sem þrír af vinum hans hefðu dáið. En hann slasað- ist og lá á sjúkrahúsi. Hún sagði að hann hefði farið að hugsa um kraftaverk- ið, að lífi hans hafði verið þyrmt, og að þegar hún hafði heimsótt hann, hefði hann sagt: "Amma, viltu fá bók um Oesú handa mér. Mig langar til að þekkja hann." Hún sagði mér, að í þrjá vikur hefði hún beðið um hjálp til að finna bók, sem hún gæti gefið barnabarni sínu! Ég gat ekki leyft henni að skila mér bókinni! Við föðmuðum hvor aðra, hlæjandi og grátandi, samtímis því að kveðjast. Ég gat alls ekki trúað því að það væri bara lokið þriðja degi af fríinu okkar. Hve okkur þótti gaman! Á föstudagsmorgni vorum við ennþá á bílasölusvæðinu. Það var ekkert um að vera, svo ég fyllti axlartöskuna mína af bókunum Vegurinn til Krists og Desire of Ages. Eiginmaður minn kyssti mig til uppörvunar um leið og ég fór út um dyrnar og hvarf inn í mannþröngina. Ég fór að biðja í hljóði, þar sem ég smeygði mér á milli fólksins. "Oesús, mig langar til að deila þessum dásamlegu bókum með öðrum. Viltu leiða mig til þess einstaklings sem mun hafa mest gagn af því. Ég treysti þér. Amen". Ég gekk fram á mann í hiólastól. Nei, hann hafði engann áhuga. Ég gekk um dálítið lengur, en ég virtist alls ekki geta fundið neinn sem hafði áhuga á því sem ég var með. Mannþröngin varð meiri og fólk ýtti á hvert annað á alla kanta, til að komast áfram. Mér fannst ég hafa lent í þröng, þar sem mér var ýtt í öfuga átt við þá sem ég hafði ætlað mér að fara. Eða var það Oesú sem leiddi mig? Eftir að hafa gengið sem samsvarar um það bil tveim húsalengdum, gekk ég fram á gamlan, hvíthærðan mann, druslu- legan til fara, ógreiddan og sem virtist einmana. Ég sagði við sjálfa mig: "Æ,nei,Drottinn, ekki hann!" En svo mundi ég að ég hafði beöið Guð um að leiöa mig, svo ég hagræddi töskunni á öxl mér og lagði leið mína um hina ýmsu króka, á milli hinna ýmsu bílahluta, sem einu sinni höfðu tilheyrt bílum stoltra eigenda, í kringum árið 1920. Ég stakk hendinni ofan í töskuna mína, og bauð gamla manninum eintak af hvorri bók. Mér datt ekkert í hug að segja, en tautaði að lokum: "Mig langar til að deila með þér tveim af uppáhalds- bókunum mínum." Hann rétti fram óhreina hendi og tók við bókunum. Ég flýtti mér í burtu. "Komdu til baka! Ó, gerðu það, komdu aftur hingað!" hrópaði hann. Ég sneri við. Tár runnu niður kinnar hans og hakan titraði. "Ó!" hrópaði hann. !" Guði séu lof og þakkir fyrir að þú komst loksins!" Hann faldi andlitið í höndum sér og grét 5

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.