Bræðrabandið - 01.07.1984, Page 5
ÚR SAFNAÐARHANDBÓKINNI
í söfnuði Sjöunda dags aðventista er
venjan að hafa kvöldmáltíðarathöfn einu
sinni í ársfjórðungi. Á þessari
guðsþjónustu fer fram fótaþvottarathöfn-
in og kvöldmáltíðin sjálf. Þessi athöfn
ætti að vera söfnuðinum og prestinum eða
saf naðarf ormannmum hin helgasca og
gleðiríkasta samkoma. Kvöldmáltíðar-
athöfnin er án efa ein af helgusutu
skyldum sem presti eða safnaðarformanni
er ætlað að framkvæma.
KVÖLDMALTIÐIN
3esús hinn mikli
endurlausnari þessa heims er heilagur.
Englarnir lýsa yfir: "Heialgur, heilag-
ur, heilagur, Drottinn Guð, hinn
alvaldi, hann sem var og er og kemur."
Þess vegna, þar eð Gesús er heilagur,
eru táknmyndirnar sem tákna líkama hans
og blóð einnig heilagar. Þar eð
Drottinn sjálfur valdi táknmyndir með
djúpa merkingu, táknmyndir ósýrðs brauðs
og ógerjaðs ávaxtar vínviðarins og
notaði hin fábrotnustu tæki til að þvo
fætur lærisveinanna ætti að gæta ítrustu
varkárni í að nota aðrar táknmyndir og
aðferðir (nema í mjög knýjandi neyðar-
tilfellum) svo að upprunaleg merking
athafnarinnar glatist ekki. Einnig hvað
snertir skipan athafnarinnar og hefð-
bundin hlutverk prestsins, safnaðar-
formannsins, safnaðarþjónanna og
safnaðarsystranna í kvöldmáltíðinni þá
ætti að gæta varúðar svo að eitthvað
frábrugðið og nýtt leiði ekki til þess
að gera hversdagslegt það sem heilagt
er. Einstaklingshyggja og sjálfstæði í
framkvæmd og venju gæti orðið tjáning
skeytingarleysis um einingu safnaðarins
og samfélag við þetta helgasta og
blessaðasta tækifæri. Löngun í til-
breytingu gæti gert að engu þátt
minningarinnar í þessari athöfn sem
Drottinn sjálfur stofnaði þegar hann hóf
þjáningargöngu sína.
Kvöldmáltíðarathöfnin er jafn heilög
nú á dögum og hún var forðum þegar 3esús
Kristur stofnaði hana. 3esús er enn
viðstaddur þegar þessi heilaga athöfn er
höfð um hönd. Við lesum: "Það er við
slík tækifæri, við athafnir sem hann
sjálfur hefur boðað til, sem Kristur
hittir fylgjendur sína og veitir þeim
þrótt með návist sinni." DA bls. 656.
TILKYNNING UM KVÖLDMÁLTÍÐARATHÖFN
í flestum söfnuðum fer þessi athöfn
fram á næst síðasta hvíldardegi árs-
fjórðungsins. Kvöldmáltíðarathöfn skyldi
tilkynna með minnsta kosti viku fyrir-
vara. Ritari safnaðarins, safnaðarþjón-
ar og safnaðarsystur ættu að taka niður
5