Bræðrabandið - 01.07.1984, Síða 14
um svæðið og framkvæmir eftirlit og
fyrirbyggjandi aðgerðir.
Er við vígðum þessa sjúkrastöð og
vorum umkringd fulltrúum yfirvaldanna,
þorpsbúum og höfðingjum þeirra þá var
læknirinn þarna þeqar að hjálpa fólki.
Dr. Filipe Valente frá Portúgal kom
ásamt konu sinni og tveim litlum börnum.
Olof Sóreide, einn af tveim bræðrum sem
fóru frá eigin fyrirtæki til þess að
hugsa um aðra og þjóna í Ghana og Togo
geta nú snúið heim. Verkinu er lokið og
verkstjórinn Símon Hameney og smíðurinn
Kokou Gbete, sem Olof þjálfaði munu
hugsa um bygginguna sem væri hún þeirra
eigin sem hún og reyndar er því þeir
áttu sinn hlut í að byggja hana.
NIGERIA: Hér starfrækir Aðventsöfn-
uðurinn Aba heilsugæslustöðina og
munaðarleysingjaheimili. Við komum
þangað í Toyota langferðabifreið um 700
km veg þar eð menn nígeriska flugfélags-
ins voru í verkfalli.
Þarna í Aba beið okkar enn ein
opnunarhátiðin, en raddir margra vatna
frá rigningartímanum sem var snemma á
ferðinni hér um bil drekkti öllum
hátíðarhöldunum. Kirkja í nágrenninu
bjargaði okkur og athöfninni.
SIDA og FINNIDA (Finnland) gerðu
mögulega þessa byggingu heilsugæslu-
stöðvarinnar og munaðarleysingjaheimil-
isins ásamt fjárframlögum félagsmála-
deildar Imo fylkisins og örlátum
framlögum úr opinberum sjóðum og frá
Aðventsöfnuðinum.
Það hafði reynst erfitt að fá
vegabréfsáritun fyrir starfsfólk til
þess að vinna í þessari heilsugæslustöð
sem læknar og hjúkrunarkonur. Við
vonumst til þess að nýja herstjórnin
muni fljótlega veita sjálfboðaliðum
okkar vegabréfsáritun.
Munaðarleysingjaheimilið er mannað
af innfæddum starfsmönnum. Ákaflega
duglegur og hæfur hópur ungra kvenna sjá
um 30 börn sem mæðurnar hafa yfirgefið.
Þessi nýju húsakynni munu gera störf
þeirra miklu auðveldari. Ungur bygg-
ingameistari, Arne Bull Nielsen frá
Danmörku hefur lokið verki sínu hér.
Hann koma öðru sinni til þess að ljúka
þessu verki. Hann og þeir sem unnu með
honum geta verið stoltir. Glæsileg
heilsugæslustöð mun brátt þjóna fjöl-
mennu og þéttbýlu héraði.
Fólk að hjálpa fólki. Við, meðlimir
eftirlitsnefndarinnar frá þróunarsam-
vinnustofnunum og söfnuðinum, vorum
gagntekin af þessari þjónustu sem veitt
er bæði af fastráðnu starfsfólki og
sjálfboðaliðum.
Það var einnig hrífandi að sjá
árangurinn af starfi safnaðarins sem
uppfyllir svo vel og ljúflega dagskipun-
ina sem er gefin af herra safnaðarins að
prédika, kenna og lækna. ■
Aba heilsugæslustööin
í Imo fylki, Nigeríu
14