Bræðrabandið - 01.07.1984, Page 15
í hinni nýtískulegu borg Eindhoven
sem telur 200.000 íbúa eru stórir hlutar
fólksins kaþólskir sem koma saman í 33
kirkjum. Mótmælendur sem eru í minni
hluta skiptast í 25 mismunandi trúfélög.
Aðventsöfnuðurinn í Eindhoven byrjaði í
kringum 1940 með 8 meðlimi og óx ekkert
fram til 1964. En tíu árum síðar 1974
voru safnaðarmeðlimir orðnir 38 og á
undanförnum 10 árum hefur meðlimatalan
tvöfaldast.
Nú er fyrirhugað að byggja þar ekki
aðeins nýja kirkju heldur útbreiðslu-
miðstöð eins og sjá má af hugmynd um
bygginguna á myndinni sem fylgir þessari
fréttaklausu. Ætlunin er að þarna geti
læknir haft aðsetur sitt, tannlæknir og
sjúkraþjálfari sem munu bjóða upp á
fræðslu og fyrirbyggjandi þjónustu sem
miðar að betra og heilbrigðara lífi.
Einnig mun verða þarna heilsuvörubúð og
bókabúð. Þá verður þarna möguleiki á
ýmis konar námskeiðum og samkomum og
reiknað er með að einhver starfsemi fari
þarna fram á hverjum degi vikunnar.
Eindhoven er þekkt sem höfuðstöðvar
Philips fyrirtækisins þar sem 40.000
manns vinna. Ljósaperan mun vera sú
framleiðsla sem Philips er einna
þekktastur fyrir og þesss vegna er
Eindhoven oft kölluð borg ljóssins. Það
er von aðventista að þessi útbreiðslu-
miðstöð muni færa borgarbúum ljós og
verða sannkölluð miðstöð ljóssins.
<— i*jh .
Teikning af fyrirhugaðri útbreiðslu-
miðstöð í Eindhoven, Hollandi