Bræðrabandið - 01.07.1984, Page 17

Bræðrabandið - 01.07.1984, Page 17
lífi verða, verða hafnir upp frá þessari jörðu, áður en henni verður eytt í eldi. "Vér munum ekki allir sofna, en allir munum vér umbreytast í einni svipan, á einu augabragði við hinn síðasta lúður, því að lúðurinn mun gjalla og hinir dauðu munu upp rísa óforgengilegir, og vér munum umbreytast." Því að sjálfur Drottinn mun með kalli, með höfuðengilsraust og með básúnu Guðs stíga niður af himni, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa, síðan munum vér, sem lifum, sem eftir erum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu, og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma. (1Kor 15.51 ,52 og 1Þ4.16-18). ■ STJÓRNMÁLAMENN OG DÓMSDAGUR Trúir Reagan Bandaríkjaforseti og Caspar Weinberger varnarmálaráðherra hans því að dómsdagur sé í nánd? Að allt muni enda í kjarnorku-tortímingu? Nýlega birtust greinar í The Guardian og í Washington Post þar sem búið var að tína til ýmis orð Reagans sem hann hafði látið falla í þessa átt svo og Weinberger. I minnst fimm skipti hefur Reagan látið í ljós þá skoðun sína, á s.l. fjórum árum, að okkar kynslóð muni upplifa "Harmageddon" og að það allt muni byrja með styrjöld í Miðaustur- löndum. í kosningabaráttunni 1980 kom Reagan forseti fram í sjónvarpsviðtali þar sem hann sagði að þörf væri á "andlegri endurnýjun". Síðan sagði hann skyndilega: "Vel má vera að okkar kynslóð lifi Harmageddon". Við hóp Gyðinga í New York sagði hann: "ísrael er eina sterka lýðræðisríkið í Mið- austurlöndum sem við getum reitt okkur á í þeim heimshluta þar sem Harmageddon gæti orðið." Leiðtogi "Moral Majority" (Sið- ferðislega meirihlutans), Oerry Falwell, sem studdi forsetann dyggilega, segir að Reagan sé sama sinnis og hann sjálfur í trúmálum. Og hér eru nokkrir spádómar hans: "Innan sextíu ára verður eins konar tortímingarskelfing. Sovétríkin munu farast í þeirri skelfingu. En hinir kristnu í Sovétrí kjunum munu á því andartaki verða hrifnir upp til himins." Og "Við trúum því að rússar muni ráðast inn í Miðausturlönd, sérstaklega gegn ísrael og þá mun kjarnorku-tortímingar- skelfing ganga yfir heiminn." THOMAS DUNBEBIN, ARTIST í okcóber í fyrra, þegar Band- aríkjaþing hafði framlengt veru banda- rísku sjóliðanna í Líbanon, sagði Reagan: "Ég kem aftur að spádómum Gamla Testamentisins og táknunum sem segja fyrir um Harmageddon. Skyldum við ekki vera sú kynslóð sem mun lifa þetta? Ekki veit ég hvort þið hafið verið að rannsaka spádómana nýlega, en þið megið trúa mér að þeir lýsa þeim tímum sem við lifum á." Nemandi við Harvard háskólann spurði Caspar Weinberger: "Trúið þér að það verði heimsendir og að það verði annað hvort verk Guðs eða mannanna?" Weinberger svaraði: "Ég hefi lesið Opinberunarbókina. Já, ég trúi því að það verði heimsendir og ég vona að það verði verk Guðs. Á hverjum degi hefi ég það á tilfinningunni að tíminn sé að renna út." g Úr Tidens Tale nr.4 1984 17

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.