Bræðrabandið - 01.07.1984, Síða 18
KÆRLEIKURINN l’ VINNUFÖTUM
ósvikinn kærleikur er ekki bara
hughrif og tilfinningar. Sannur
kærleikur tekst á við vandamálin.
Slíkur kærleikur fer í vinnufötin.
Þetta reyndi Sharon K. Parker, í bænum
Onondago í Michigan þegar hún kynntist
Sjöunda dags aðventistum.
í mars árið 1982 eyðilagðist hús
hennar að miklu leyti í eldsvoða.
Fjölskyldan missti allt sem hún átti
nema náttfötin og rúmfötin sem þeim
tókst að taka með sér þegar þau flúðu út
úr brennandi húsinu.
Frú Parker, einstæð móðir, á eina
dóttur, Kitty, sem er 14 ára gömul. Auk
þess að hafa misst húsið sitt þjáist frú
Parker af sjúkdómnum MS.
En frú Parker var ákveðin í að
bjarga sér og sneri aftur í janúar 1983
ákveðin í að endurbyggja hús sitt. En
hún komst fljótlega að því að tekjur
hennar hrukku ekki til þess.
En hún gafst ekki upp og auglýsti
eftir hjálp í dagblaði. Merlyn Cooker
sá þessa auglýsingu og lagði málið fyrir
söfnuð Sjöunda dags aðventista í Oackson
í Michigan.
Buford Cook,safnaðarformaður þar og
smiður með 40 ára reynslu í byggingar-
vinnu náði saman hópi safnaðarmeðlima
til þess að hjálpa frú Parker og
jafnframt var byrjað að safna fjármunum
til verksins.
Þegar safnaðarmeðlimirnir ætluðu svo
að endurbyggja húsið kom í ljós að það
fékkst ekki leyfi til þess heldur varð
að rífa það niður og byrja á nýbyggingu.
Peningar hafa komið frá fyrirtækjum
og ýmsum íbúum bæjarins auk þess sem kom
frá safnaðarmeðlimum í söfnuðum okkar
í Oackson, Eaton Rapids, Lansing, East
Lansing, Delton og Urbandale.
BASAR!
FRÁ SYSTRAFÉLAGINU ALFA REYK3AVÍK
Hinn árlegi BASAR systrafélagsins
verður að Hallveigarstöðum 14. október
n.k. Við sendum góðar kveðjur og
þakklæti til allra sem hjálpuðu okkur
með basarinn í fyrra og treystum á góða
þátttöku sem fyrr.
Stjórnin.
18