Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 Fréttir DV Framsók fólkic í landim Nýtt fram- soknarfélag í Kópavogi Framsóknarmönnum og konum hefur verið að fjölga mikið í Kópavogi síðustu misseri, eins og ffam hefur komið í fréttum. f bænum starfa nú tvö kvenfélög, þau Freyja og Brynja en nýjasta viðbótin í flóru framsókn- armanna í bæjarfélaginu kemur frá menntaskólan- um á staðnum, en þar hef- ur verið stofriað framsókn- arfélag Menntaskóla Kópa- vogs. Stofnfundur félagsins var haldinn í síðustu viku og var hann fjölsóttur af nemendum skólans. Óvæntur halli á vöru- skiptum Vöruskipti við útíönd reyndust neikvæð um 3,3 milljarða króna í jan- úar samanborið við 0,3 milljarða í afgang í sama mánuði í fyrra. Niður- staðan kemur á óvart og er slæm tíðindi fyrir ytri stöðu þjóðarbúsins. Spáð hafði verið 1 til 3 milljarða króna afgangi. Spáskekkjan skýrist al- farið af minni útflutningi en hann dróst saman um 16% á milli ára. Mun minni útflutningur var af sjávarafurðum en búast mátti við samkvæmt aflatölum. Einnig var minni útflutningur iðn- aðarvara en búast mátti við. Greining íslands- banka segir frá. Bensín á Drangsnesi Bensínafgreiðsla er haf- in aftur á Drangsnesi við Steingrímsfjörð eftir að Skeljungur lokaði bensín- afgreiðslu sinni síðasta vor. Vandræðaástand var í þorpinu, líkt og fféttavefur- inn Strandir.is greinir frá. En nýju dælur Oh'ufélagsins Essó taka öll kort og eru Drangsnesingar að vonum kátir. Samkvæmt lögum greiöir Tryggingastofnun ellilífeyri vistmanna inn á reikninga stofnananna í stað einkareikninga vistmanna. Margrét Margeirsdóttir, formaður félags eldri borgara, segir mannréttindi brotin og vill að ráðherra og Trygginga- stofnun breyti lögunum. Hún vill sjá peningana renna til einstaklinganna en ekki stofnanna sem þeir dvelja á. Ráðherra segist viljugur að skoða málið. Ríkið sviptir aldraða elliheimilum fjárræði Aðalfundur Félags eldri borgara ályktaði sérstaklega um málið nýverið þar sem þess var krafist að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að greiðslur ellilífeyris renni til vistmannanna sjálfra en ekki stofnananna eins og nú er. Nýkjörinn formaður félagsins segir málið snúast um mannréttindi fólks á elli- og dvalarheimilum og fjárhagslegt sjálfstæði sama fólks. „Þarna er í rauninni verið að taka fjárræði af því fólki sem dvelur á þessrnn stofnunum," segir Margrét Margeirsdóttir, formaður félags eldri borgara í Reykjavík. „Þetta snýst í raun um það að fólki fái að halda hvort tveggja mannréttindum og reisn fram á efri ár.‘‘ Allt á reikning elliheimila Margrét segir málið margreifað innan félagsskapar eldri borgara þar sem enginn ágreiningur sé um að breyta lögunum og „endurheimta þannig fjárræði vistmanna á stofn- unum eins og elliheimilum," eins og hún orðar það. Nú sé það þannig að ellilífeyrisgreiðslur frá Trygginga- stofnun renni beint til stofnananna en vanhagi vistmenn um peninga geti þeir sótt um svokallaða vasa- peninga hjá Tryggingastofnun til viðbótar. Það telur hún niðurlægj- andi. „Auðvitað væri miklu eð- mmm am « Wogra að sama gilti um þetta eins og hjá fötíuðum," segir Margrét. „Fatlaðir fá greiddar sínar Skoðar málið Jón Kristjánsson heil- brigðisráöherra segist ekki getað lofað þviað lögunum verði breytt en er vilj- ugur tii að skoða máiið bætur inn á eigin reikning sem þeir greiða svo af til sambýlanna en þó ekki meir en svo að þeir halda hluta af bótunum fyrir sig,“ segir hún. Niðurlægjandi Margrét segir að á undanfömum ámm hafi ítrekað verið komið á framfæri mótmælum við lögin en án árangurs. Hún segist fagna því að loksins sé komin af stað umræða um aðbúnað og ekki síst kjör ellilífeyrisþega á íslandi og þá ekki sfst þeirra sem dvelja á stofnunum. „Þetta er auðvitað niðurlægjandi fyrir fólk sem er kannski búið að fá sinn ellilífeyri til ráðstöfunar í fleiri ár en missir hann svo við það eitt að flytja úr eigin húsnæði og inn á til dæmis dvalarheimili fyrir aldraða," segir Margrét sem spyr hvers vegna fullorðnu fólki sé ekki treystandi fyr- ir eigin fé þó það dvelji á stofnunum. Jón viljugur til skoðunar Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segist áður hafa heyrt af and- stöðu við lögin. Hann býst við að samráðsnefnd um málefni aldraðra, sem koma mun saman í næsta mánuði, muni skoða það í kjölfar ályktunar Félags eldri borgara og um- ræðu um málefni sama hóps í samfélaginu. Aðspurður um hvort hann hyggðist beita sér per- sónulega fýrir því að lögun- um yrði breytt segir Jón: „Ég er viljugur til að skoða málið í samráði við alla aðila en ég er ekki tilbú- inn að lofa því hér og nú að það verði gert.“ helgi@dv.is ,Þarna er í rauninni verið að taka fjárræði af því fólki sem dvelur á þessum stofnunum." Formaður eldri borgara Vill að lögum um greiðslur til elli- lífeyrisþega sem dvelja á stofn- unum verði breytt og hætt að greiða til elliheimilanna. Segir málið snúast um mannlega reisn og mannréttindi. Björgum Bobby - hann á það inni hjá okkur! Svarthöfði er stoltur af mann- gæsku íslenskra stjórnvalda. Hvar sem fólk sætir ofsóknum og niður- lægingu láta Davíð, Halldór og félag- ar til sín taka með ráðum og dáðum. Þeirra vegna má segja að það sé ísl- enska þjóðin í heild sinni sem stígur á stokk, ræskir sig og mótmælir ein- arðlega því óréttíæti sem minnstu og þjáðustu bræður okkar í heimsþorp- inu þurfa að þola. Þetta hefúr verið svona lengi. Píanósnillingurinn Vla- dimir Ashkenazy flúði pyntingar sov- éskra kommúnista. íslendingar skutu yfir hann skjólshúsi af ein- skærri hjartagæsku og hann þurfti & 5S* f > r- Svarthöfði ekki einu sinni að fá sér nýtt ah'sl- enskt nafii, eins og var réttilega skylda í þá daga. Næstur kom hand- boltamaðurinn Dúranóna sem kommarnir í Kúbu héldu föngnum. Hann bað um hæli og var farinn að gera góða hluti í íslenska landsliðinu daginn eftir. Það er yndislegt til þess að vita að íslensk stjórnvöld láti ekki blindast af hæfilefiotm umsækjenda og séu ekkert að velta því fyrir sér hvort viðkomandi geti gert þjóðfé- laginu gegn eða ekki. Nú er það skák- Hvernig hefur þú það? „Ég erótrúlega ánægöurmeð lífiö og tilveruna þessa dagana," segir Hrafn Krist- jánsson, þjálfari körfuboltaliðs Þórs á Akureyri en liðiö endurheimti sæti sitt í úr- valsdeildinni síðasta föstudag. „Ég er stoltur afsjálfum mér og strákunum mínum að hafa klárað það sem lagt var upp með í byrjun svoþetta er bara frábært," segir Hrafn og bætir við að liðið sé einungis skipað Islenskum leikmönnum. snillingurinn Bobby Fischer. Fyrir björg- unarafrek hans var ís- land óþekkt bænda- samfélag, en er nú risaveldi í skák í hug- um allra útíendinga, þökk sé Bobby. Hann hefur þurft að þola óloft og óætan mat í japönskum fangabúð- um mánuðum saman og fyrir ekki aðrar sakir en þær en tefla við erkióvin sinn Spazky í Júgóslavíu á tímum óaldarinnar þar. Sæmi rokk er farinn út til að sækja Bobby enda Fischer kominn með kennitölu (sem hægt er að sjá í gömlum Mogga) og eiginlega bara nú þegar orðinn íslendingur. Það verður engin smá kynning sem við fáum þegar Bobby verður kom- inn á klakann og byrjaður að spíg- spora um Smáralind og Perluna. 60 Minutes gera pottþétt innslag um málið og heimspressan fer yfir um, en það er auðvitað ekki málið heldur lútt að Bobby verður þá loksins frjáls. En látum ekki staðar numið hér. Eru ekki fjölmargir aðrir sem vér getum rétt hjálparhönd? Hvað með Pin- ochet, Michael Jackson og Saddam Hussein? Er það ekki skylda okkar að gera eitthvað fyrir þessa snillinga? Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.