Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Hafnarfjörður
boðinn út
Hafnarfjarðarbær hefur
óskað eftir tilboðum í
bankaþjónustu fyrir bæinn
og stofnanir hans. Þetta
kemur fram á heimasíðu
bæjarins. Þar segir að um sé
að ræða nánast öll banka-
viðskipti önnur en lang-
tímalán. Hefð hefur verið
fyrir því að bærinn skipti við
Sparisjóð Hafnarfjarðar en
nú virðist breyting vera orð-
in þar á. Þeir bankar sem
hafa áhuga á að þjónusta
bæinn, sem reyndar er afar
skuldugur, eru sagðir geta
sótt útboðsgögn frá og með
deginum í dag.
Límdi óvart
afturaugun
Búddamunkur í
Bangkok sem h'mdi aug-
un á sér aftur hefúr feng-
ið hluta af sjóninni á ný.
Phra Khru Prapatwor-
akhun setti dropa úr lím-
túpu í augun á sér sem
hann hél vera augn-
dropa. Læknar náðu að
opna annað augað og
segja það óskaddað. „Ég
ætlaði að setja dropana í
augað til að íosa mig við
kláða," sagði munkurinn.
„Eftir smástund voru
augun orðin köld og límd
aftur.“ Munkurinn hafði
reynt að opna augun
með terpentínu sem
gekk illa þar sem efnið
brenndi í honum augun.
ísraelar hótar
Sýrlendingum
ísraelsmenn segjast ætla
að ráðast á sýrlensk „skot-
rnörk" ef nauðsyn krefji til
að hefna fyrir sjálfsmorðs-
árásina á næturklúbbnum í
Tel Aviv á föstudaginn. Hót-
unin kom frá varnarmála-
ráðherra ísraels sem telur
Sýrlendinga standa að baki
árásinni þegar fjórir lágu í
valnum. Áædun ísraels-
manna um að færa Palest-
ínumönnum stjórn á örygg-
ismálum Vesturbakkans er
einnig komin í uppnám
vegna málsins. Sýrlending-
ar vísa ábyrgð á árásinni á
bug.
Hjörtur Björnsson vaknaði örlagaríkan morgun á Sauðárkróki eftir partí í heima-
húsi við að húsið var alelda. Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga einum úr húsinu,
stúlka bjargaði sér með því að stökkva fram af svölum og Hjörtur komst lifandi út.
En vinur Hjartar, Elvar Fannar Þorvaldsson sem bjó í húsinu, lést í eldsvoðanum.
Síðustu mánuði hefur Hjörtur þurft að kljást við sorgina sem fylgir vinarmissi og
ásakanir um að hann hafi átt þátt í upptökum eldsins.
Grunaður um að hafa orðið
vini sínuai oi bana
„Vlð drukkum áfengl
en það var ekkert dóp
ígangh VIð vorum
ekkl f tvQlelðli"
Bruninn við Bárustíg
Eldurinn varð tvltugum
dreng að bana.
„Ég man ekki neitt," segir Hjörtur Bjömsson, tvítugur drengur á
Sauðárkróki. Hjörtur er einn af ungmennunum sem vöknuðu
eftir partí í byrjun desember við að kviknað hafði í húsinu. Einn
besti vinur Hjartar, Elvar Fannar Þorvaldsson, lést í bmnanum.
Lögregla hefur lokið rannsókn á eldsvoðanum og er Hjörtur enn
með stöðu gmnaðs manns. Hann er grunaður um að hafa orðið
vini sínum að bana.
„Þetta hefur verið mjög erfltt,"
segir Hjörtur um þá mánuði sem
liðnir eru frá eldsvoðanum. Ekki
aðeins hefur Hjörtur þurft að fást við
sorgina sem fylgir vinarmissi heldur
hefur hann legið undir grun um að
hafa kveikt eldinn. Auk Hjartar
sluppu tvö önnur ungmenni úr
brennandi húsinu.
Man ekkert
„Ég svaf við hliðina á Elvari,"
segir Hjörtur. „Við höfðum verið að
skemmta okkur kvöldið áður því
einn úr hópnum átti afmæli. Við
drukkum áfengi en það var ekkert
dóp í gangi. Við vorum ekki í svo-
leiðis."
Hjörtur segist ekkert muna eftir
morgninum þegar húsið brann.
„Nei, ég man ekkert fyrr en ég var
kominn út. Ég man varla eftir andlit-
unum fyrir utan eða svipnum á
lækninum. Ég held að minnisleysið
spili inn í að ég sé með stöðu grun-
aðs manns. En ég get ekki skýrt
þetta. Ég man bara ekki neitt."
Kjaftasögur í bænum
Hjörtur segist hafa leitað tfl sál-
fræðings eftir eldsvoðann og rætt
við prest. Hann hafi verið góður vin-
ur piltsins sem lést og lát hans hafl
fengið mikið á sig.
„Maður er stanslaust hugsandi
um þetta. Fjölskylda mín hefúr
hjálpað mér og vinir mínir. Verstar
eru samt sögurnar í bænum. í gær
heyrði ég einhvern tala um að ég
hefði dregið hann um gólflð og hellt
yfir hann bensíni. En lögreglan hef-
ur rannsakað það og þeir fundu ekk-
ert bensín í fötunum."
Sígarettuglóð
Tæknideild lögreglunnar hefur
komist að því að engin eldhvetjandi að fara að Kárahnjúkum að vinna.
efni hafi verið í stofunni þar sem Fortíðin ásækir hann fyrir norðan.
eldsupptökin voru. Það styður orð
Hjartar um að kjaftasögurnar séu
ekki sannar.
Samt sem áður er tahð víst að
eldurinn hafi verið af mannavöld-
um. Það hefur til dæmis verið látið
að því liggja að kviknað hafi út frá
sígarettuglóð.
Að sögn Hjartar er það ekkert
ólíklegt - enda hafi flestir í teitinu
reykt þessa nótt.
Erfið staða
Bjöm Mikaelsson, yfirlögreglu-
þjónn á Sauðárkróki, sagði fyrir
helgi að málsgögn hefðu verið send
ríkissaksóknara. Það verður því
ljóst eftir nokkrar vikur
hvort Hjörtur verður
ákærður í málinu
eður ei.
Sjálfur seg-
ist Hjörtur
vona að nið- $
urstaða fáist í
þennan
harmleik
sem fyrst.
Það sé
erfitt að
vera gmn-
aður um
slíkt voða-
verk í smá-
bæ eins og
Sauðár-
krókur er.
„í dag
er ég til
dæmis
atvinnu-
laus. Það
er erfitt
að fá
vinnu
efúr
þetta,"
segir
Hjörtur
sem íhugar
—
Forsætisráðherra vakti hrifningu á landsþingi Framsóknarflokksins
Amerískur koss Halldórs
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra lýsti upp flokksþing Fram-
sóknarflokksins í gær þegar hann
kallaði eiginkonu sína og barnabam
upp á svið og smellti á þau
amersískum kossi undir dynjandi
lófataki og fögnuði fjölda við-
staddra.
Halldór hitti nýverið Bush
Bandaríkjaforseta, en heimsþekkt er
sú tilhneiging bandarískra forseta að
smella kossi á eiginkonu sína og
dætur fyrir framan fagnandi stuðn-
ingsmenn.
„Mér liggur aldrei neitt á,“ segir Kristján Hreinsson, skáid úr Skerjafírðinum.„En einhvern
veginn hef ég það á tilfmningunni að okkur sé skammtaður tími og eftir því sem við ber-
um meiri virðingu fyrírþessum tíma þvíbeturlíðurokkuríhonum."
Þykir þetta til marks um boðaða
fjölskyldustefnu Framsóknarflokks-
ins, sem meðal annars hefur birst í
því að nokkrar stórfjölskyldur hafa
barist innan kvenfélaga Framsókn-
arflokksins. Þar hafa mæður, dætur
og konur frammá-
manna flokksins sett
mark sitt á baráttuna.
Halldór fékk yfirburðar-
kosningu í formannsstólinn
með 78% atkvæða.
Halldór og konurnar Sigurjóna, eig-
inkona Halldórs, hlaut koss fyrir stuðn-
ing sinn. Og barnabarnið líka.