Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Side 9
DV Fréttir
MÁNUDACUR 28. FEBRÚAR 2005 9
Tonn af kókaíni
Lögreglan í Perú hefur
lagt hald á eitt tonn af kóka-
íni og handtekið 21 mann-
eskju í
tengslum við
málið. Níu
Kólumbíu-
menn og sjö
Mexíkanar
eru á meðal
þeirra hand-
teknu en þeir eru allir viðloð-
andi fíkniefnahring í Tijuana
í Mexíkó. Lögreglan fann 990
kíló af kókaíninu á yfirgefn-
um stað í Lima. Efiiið átti að
senda til Bandaríkjanna og
Evrópu segir innanríkisráð-
herra landsins. Perú er næst
stærsti kókaínframleiðandi í
heimi á eftir Kólumbíu.
Tepoki úr
demöntum
Heimsins dýrasti tepoki
var sýndur í Bretlandi fyrir
helgi. Framleiðslan markar 75
ára afrnæli PG
Tips-te-fram-
leiðandans.
„Við vildum
gera eitthvað
sérstakt í til-
efni dagsins
tilaðminna
Breta á
hversu heitt
þeir elska
breska teið,“ sagði talsmaður
PG. Tepokinn var búinn til af
Boodles-skartgripaframleið-
andanum. Hann var þrjá
mánuði í framleiðslu en í
honum eru 280 demantar.
Hann verður gefinn á uppboð
og peningamir renna til
bamaspítala í Manchester.
Maður sá sem greinst hefur með áður óþekkt og öflugt afbrigði af HlV-veirunni
stundaði óvarin kynmök með fjölda manna mánuðina áður en smit hans kom í ljós.
Var undir áhrifum örvandi fíkniefna í villtum kynlífsorgíum áður en hann greindist.
Smitaður aí ofur-eyðni
átti mök við 100 menn
New York-búinn sem greinst hefur með áður óþekkt og öflugt
afbrigði af HlV-veirunni stundaði óvarin kynmök við 100 menn
mánuðina áður en smit hans kom í ljós.
Að sögn blaðsins New York Daily
News mun maður þessi, sem er á
fertugsaldri, hafa verið undir áhrif-
um svokallaðs „crystal meth“ í viilt-
um kynh'fsorgíum áður en hann
greindist. Heilbrigðisyfirvöld í New
York vinna nú hörðum höndum í að
ná sambandi við bólfélaga manns-
ins.
Fyrir helgina lagði dr. David Ho
hjá Aaron Diamond-eyðnirann-
sóknarstofunni á Manhattan gögn
um rannsóknarvinnuna í kringum
manninn. Nafni mannsins er enn
haldið leyndu en talið er að hann
hafi smitast af stökkbreyttu afbrigði
af hinni lífshættulegu HlV-veiru.
Lyfin duga ekki
Fram kemur hjá dr. David Ho að
þetta nýja afbrigði af HlV-veirunni
sé ónæmt fyrir 19 af þeim 20 lyfjum
sem nú eru notuð til að halda
veirunni í skefjum. Þar að auki
myndar veiran eyðni á aðeins ör-
fáum mánuðum en ekki árum eins
og fyrri afbrigði af henni. Sökum
þessa voru sterkt orðaðar aðvaranir
sendar út af heilbrigðisyfirvöldum í
New York fyrr í mánuðinum. „Við
vitum ekki enn hvort hér sé um eitt
einangrað tilfelli að ræða eða hvort
fleiri séu þama úti smitaðir af þessu
afbrigði," segir dr. David Ho í sam-
tali við New York Daily News.
Mikil leit að bólfélögum
Thomas Frieden yfirmaður heil-
brigðissviðs New York-borgar segir
að heilbrigðisyfirvöld leggi nú mik-
inn þunga á að hafa uppi á fyrrver-
andi bólfélögum mannsins sem
„V\ð reynum að finna
út hverjir bólfélagar
hans voru og hvetjum
þá til að koma i grein-
ingu"
smitaður er. „Þetta er algert for-
gangsatriði hjá okkur í augnablik-
inu,“ segir Frieden. „Við reynum að
finna út hverjir bólfélagar hans voru
og hvetjum þá til að koma í grein-
ingu“. Frieden vildi ekki gefa upp
hve marga af bólfélögum mannsins
þeir hefðu fundið.
Ekki nýtt að veiran breytist
Þrátt fyrir óttann um að ofur-
eyðniveira sé komin fram benda
sérfræðingar á að hröð þróun hjá
HIV-veirunni sé ekki nýtt fyrirbrigði
né sé það nýtt að veiran myndi
ónæmi fyrir lyfjum gegn henni.
Hugsanlega geti það verið að hin
hraða þróun hjá manninum frá
HlV-sýkingu og yfir í eyðni sé eitt-
hvað sem hafi með líkama hans
sjálfs að gera en ekki veiruna. En
yfirvöld taka enga áhættu og viður-
kenna að tilfelli þetta sé alvarlegt.
Játningar Arnolds Schwarzeneggers
Notaði stera og sér
ekki eftir því
Ríkisstjórinn,
kvikmyndastjarn-
an og líkamsrækt-
argúrúinn Arnold
Schwarzenegger
hefur viðurkennt
að hafa notað stera
á sínum yngri
árum. Schwarze-
negger, sem er sjö-
faldur Ólympíu-
gullhafi sagði í
sjónvarpsviðtali
ABC-sjónvarpsstöð-
inni að þrátt fyrir að
hann vissi núna hvaða
áhrif lyfin hefðu
myndi hann samt hafa notað þau og
að hann hefði enga eftirsjá.
„Ég sé ekki eftir neinu. Á þessum
tíma voru steramir nýir á markaðn-
um og við notuðum þá í samráði við
lækna. Við urðum að
prófa. Það er ekki
hægt að fara aftur í
tímann og skipta um
skoðun," sagði Arnold
en bætti við að hann
mældi alls ekki með
notkun fíkniefna. „Ég
mæli alls ekki með
ólöglegum efnum en
fólk ætti að vera
duglegra að nota
fæðubótarefni og
vítamín."
Ríkisstjórinn
sagðist einnig vilja
auka virðingu lík-
amsræktinnar. „Líkamsrækt heitir
likamsrækt en ekki „líkamsniðurrif‘.
Við verðum að hreinsa ólöglegu efn-
in út úr íþróttinni og auka notkun
þeirra löglegu."
Arnold Schwarzenegger „fg si
ekki eftir neinu. Á þessum tlma vo
sterarnir nýir á markaðnum og vit
notuðum þáí samráði við lækna.
Við urðum að prófa.“
Dennis Rader myrti fólk í þrjátíu ár
Fjöldamorðingi handtekinn
Lögreglan í Kansas í Bandaríkj-
unum hefur handtekið hinn 59 ára
Dennis Rader sem grunaður er um
að hafa myrt tíu manns á síðstu 30
árum. Fjöldamorðinginn hefur verið
kallaður BTK-morðinginn eftir að-
ferðunum sem hann hefur beitt en
hann batt fómarlömb sín, pyntaði
og myrti. Fyrsta morðið var framið
árið 1974 þegar Rader myrti foreldra
og tvö börn þeirra. íbúar í bænum
Wichita anda loksins léttar enda
hafa morðin haldið bænum í
heljargreipum. „Ég þakka guði fyrir
fyrsta daginn án BKT,“ sagði Charlie
Otero sem var 15 ára þegar foreldrar
hans og systkini vom myrt. „Nú
loksins þarf ég ekki að óttast að
hann muni læðast upp að mér eða
bíði eftir mér þegar ég kem heirn."
Dennis Rader Dennis Rader ergiftur
tveggja barna faðir.
Dennis Rader er giftur tveggja
barna faðir. Hann hafði sent lögregl-
unni nafitlaus bréf á 30 ára tímabil-
inu sem loksins vom rakin til hans
auk DNA sem fannst á vettvangi eins
morðsins.
Framlengt til 2. mars
Matreiðslumeistarinn Brian McBrÍde
Gesttir Perlunnar á Food&Fun 2005 var
Brian McBridc, einn besti matrciðsluinaður
Washington, . Hann blandar saman alþjóð-
lcgum áhrifum frá Aruba, London, Bostori
og Mexíkó. McBride er niargyerðlaunaður
matreiðslumaður, þckktur fyrir áhcrslu
á einfoldan og litríkan mat búinn tiJ úr
blöndu hágæða-hrácfna hvers lands.
Food&Fun matseðill
MAR.1NERAÐUR HÖRPUDISKUR OG SVIÐINN HÖRPUDISKUR
með sítrónu-mosto olíu, sjávarsalti og stökkri kartöflu.
GUFUSOÐINN LAX
með sveppum, smágerðum pok choy, kampavínssósu og kardimommuolíu.
SVIÐINN TÚNFISKUR,
fuglakjöt og foie gras, blómkáls purée, kálfakjöts jus
og sítrónugrass heurre blanc.
r-ROSINN MJÖLKURSÚKKULAÐI-PARFAIT
með bananasósu.
4.900 kr.
Inttifalið í vcrði cr vínkyntting fyrir tnaimtt.
Allt í steik
Hinn sívimæli Ailt í steilc matscðill
heldur áfram samhliða Food&Fun.
Hægt er ad panta nautalund Bernaisc,
lambafillet Bernaise, grísastcik eða
kjúkling.
Verð frá 3.990 kr.
Innifalið t verði cr vlnkynnittg f yrir matitut.
Sjávarrcttahlaðborðið
Sjávarréttahlaðborð Perlnnnar er
einstakt tækifcri til að upplifa
nýjungar i matargerö óliklcgustu
fisktegunda. Margverðlaunaðir
3. mars - 13. nxars
matreiðslumeistarar Perlunnar út-
búa yfir 30 tegundir heitni og
HRUN
Veitingahúsið Perlan -
kaidra fiskrétta. Iiér finna aliir
eitthvað við sitt hæfi.
Verð 4.300 kr.
Fyrir mat er kyntnttg á víttutn fra hinu fnvga Petcr Leltmati viuhúsi.
S: 562 0200 - Fax: 562 0207 - Netfang: perlan@perlan.is - Hcimasíöa: vvww.perlan.is
(ááiftú
■m
*íf