Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Side 10
7 0 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 Fréttir DV Hugi Halldórsson er dæmi um mann sem hefur komist áfram affrumkvæði og krafti. Hann er óhræddur við að gera grín að sjálfum sér sem er for- senda þess að geta gert grín að öðrum. Hugi þykir einnig hvers manns hugljúfi og er ekki mikið fyrir að stökkva á nefsér. Hugi Halldórsson mætti hafa í huga að kapp sé best með forsjá. Hann á það til að taka of mörg verkefni að sér og gefast svo upp þegar á móti blæs. Þó Hugi geti átt sin skemmtilegu augna- blik er ekki djúpt á kvikunni hjá honum. „Hann er grallari. Helvíti hress og hugmyndaríkur en á það til að vera helvíti neikvæður. Reyndarhafa flestir frægustu grínistar sög- unnar hafa verið þung- lyndissjúklingarog eit- urlyfjasjúklingar. Það getur bara verið til góða. En galli? Hugi er helvíti latur. Það er ekki mikill drifkraftur í honum." Eyvindur Karlsson, fyrrum vinnufélagi. „Hugi er bara einstaklega uppá- tækjasamur, hugmyndaríkur og fyndinn gaur. Stórskemmtilegur l alla staði. Hann heldur reyndar með Manchester United, stór- galli, og svo er hann með furðu- legar pólitískar skoðanir og allt ofmikið keppnis- skap. Hann feryfir öll vel- sæmismörk i því." Þorkell Máni umboðsmaður. „Sem félaga hans í gríninu finnst mér hann hreinlega ekki nógu fyndinn. Þátturinn gekk ekki vel.Allavega fengu hans hæfileikar ekki að njóta sín þar. Þetta er mjög hress strákur. Hans helsti kostursem grínisti er aö hann er óhræddur við að taka áhættu eins og sást þegar hann var með strákunum í 70 mínútum." Jón Mýrdal grínisti. Hugi Halldórsson er fæddur 6. febrúar 1981. Hann hefur undanfarið starfað á sjónvarpsstöðinni PoppTíví. Fyrstsem að- stoðarmaður í þættinum 70 mínútum en slðar með sinn eigin þátt sem heitirJing Jang. I slðustu viku dró hins vegar til tlð- inda þarsem Hugi hætti sem þáttastjórn- andi - að hans sögn varþetta ofmikil vinna. Hugi hefur stundað nám I lögfræði I Háskólanum. Hann er ógiftur og á engin börn. Magnús Hjartarson er síungur þrátt fyrir aö hafa bráðum lifað full 76 ár. Hann hefur starfað sem leigubílsstjóri í rúma hálfa öld en lætur nú af störfum af kröfum ríkisins sem vill ekki eldri bílsstjóra 1 leigubílana. Hann má þó keyra rútu svo lengi sem heils- an leyfir og grínast með að hann ætti ef til vill að fá sér eina tveggja hæða. Bannað að keyra leigubíl en má kevra rútu „Ég mun nú keyra áfram þó vissulega megi ég ekki taka farþega í bílinn hjá mér, verð að nota rúturnar til þess bara,“ segir Magnús Hjartarson leigu- og rútubílsstjóri, sem mun hætta akstri leigubíla af kröfu ríkisins vegna aldurs um næstu áramót. Þó að eftir þann tíma megi Magn- ús ekki taka upp farþega í fi'na Bens- inn sinn mun lög ekki banna honum að aka rútubíl með margfalt fleiri far- þega svo lengi sem hann fái ökuskír- teinið sitt endurnýjað. Þetta finnst Magnúsi kúnstugt enda segir hann erfitt að réttiæta það að menn eigi sökum aidurs að vera lengur hæfir til aksturs rútubíla en leigubíla, ef aldur eigi þá einhvern tíma að ráða því. 56 ár á Stöðinni „Ég hef nú sagt það í gamni við fé- iagana að ég ætti kannski að kaupa stóru tveggja hæða rútuna hans Sæ- mundar í Borgamesi. Þá gæti ég keyrt löglega með 80 farþega en mér væri stranglega bannað að keyra með fjóra í leigubflnum," segir Magnús. Magnús er sáttur við ævistarfið undir stýri enda enda spannar það rúma hálfa öld, eða 56 ár. Magnús hóf störf sem atvinnu- bflsstjóri árið 1950, en hann var þá tvítugur. Fyrst keyrði hann á bifr eiða- stöðinni Bifröst við Hverfisgötu þar sem hann gat keyrt bfl án meiraprófs, en amerískur kóladrykkur varð þess svo valdandi að Magnús fór í meira- prófið. „Mér var svo boðinn vinnu hjá Bimi í Vffilfelli," segir Magnús og hagræðir derhúfunni. Alvörubflstjór- ar verða að eiga slíkar. „Hann var svo ánægður með hvurs lags reglumaður ég var að hann sendi mig á fullum launum á mánaðarlangt meiraprófs- námskeið, kallinn," segir Magnús. Keyrði upp að eldgosi „Það er auðvitað margs að minn- ast eftir öll þessi ár en af því að maður er nú í fjölmiðlum er nú ekki úr vegi að minnast á frægðarför sem ég fór með blaðamann og ljósmyndara Moggans þegar Hekla gaus 1970,“ segir Magnús og bætir við að blaða- Farþegi Magnúsar Magnús fór eitt sinn alla leið til Rómar frá Þýskalandi á nýjum Bens f þeirri von að fá hann blessaðan. Hefði betur slepptþvlenda kom Róm til Magnúsarþegar Páfinn settist upp I hjá okkar manni I Reykjavik. „Ég hefnú sagt það í gamni við félagana að ég ætti kannski að kaupa stóru tveggja hæða rútuna hans Sæmundar í Borgar- nesi. maðurinn sem þá hafi verið með í för hafi seinna sest í stól ritstjóra, kannski í kjölfar ferðalagsins með Magnúsi. „Við mættum bænd-unum sem voru öskugráir í framan á grjót- börðum bflum á leiðinni uppeftir og alltaf sagði ljósmyndarinn lengra og lengra meðan blaðamaðurinn varð stöðugt hræddari. Við fórum svo al- veg upp að gosinu á bflnum, en bara tveir út; ég og ljósmyndarinn," segir hann. Magnús hefur einnig tekið að sér það verkefni að keyra páfann þegar Propper maður, Magnús Magnús erreffilegur með derhúfuna við bilinn. Númer 70 hjá BSR og sá fyrsti sem fékk sér einkanúmer merkt stöðinni. Þarfþó að hætta að taka farþega von bráðar af kröfu ríkisins en má enn keyra rútur. hann kom hingað til lands. Nokkrum árum áður hafði Magnús ekið til Rómar í þeim tilgangi að fá leigubfl sinn blessaðan. Nú hefur honum verið meinað að aka leigubfl og verður að halda sig við rúturnar. helgi@dv.is Soroptimistar viðurkenndir Bæjarstjóri Fljótsdals- héraðs, Eiríkur Björn Björg- vinsson, kynnti á bæjar- ráðsfundi í síðustu viku frið- arsamn- ing sem hann undirritaði við Evr- ópusamband Soroptimista þann 10. febrúar um að Fljótsdalshérað viður- kenndi friðarsamning þeirra, eins og fram kemur á egilsstadir.is. En Soroptimistar eru alþjóðleg samtök um hagsmuni kvenna í stjórnunarstöðum sem láta sig málefni líðandi stundar varða, svo sem þróunar og barnaaðstoð og önnur mannúðarmálefni. Hróöur Bláa lónsins eykst Tuttugu húðlæknar í Lóninu Bláa Lónið var valin besta heilsulind í heimi árið 2005 af breska tímaritinu Condé Nast Traveller. Á föstudaginn hélt svo þýskur húðlæknir, Dr. Ulirch Amon fyrirlest- ur á ráðstefnu um Bláa lónið Lesendur Conté Nast Tra- húðsjúkdóma í Bláa veller iBretlandi segja Lónið bestu lóninu. Dr. Amon kom heilstJ-og ^éngariM Iheimi. ásamt fjölda þýskra húðlækna í leið- angur í Lónið að kynna sér vörur þess og meðferðir. „Það voru lesendur blaðsins sem völdu Bláa lónið bestu heilsu- og lækningalindina í heiminum, en það eru einhver hundruð eða þúsundir staða sem við skutum aftur fyrir okkur," segir Grímur Sæmudsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins. „Við vorum með tuttugu þýska húðlækna sem veru að kynna sér uppbyggingu okkar í sambandi við lækn- ingaþjónustu við psorasis, en við erum að byggja nýja lækningaaðstöðu fyrir húðsjúklinga. Svo voru þeir að kynna sér vörurnar sem unnar eru úr hráefnum náttúru- perlunnar, Bláa lónsins. Þessir aðilar hafa verið að nota þessar vörur fyrir sína skjólstæðinga í Þýskalandi og hefur það reynst mjög vel. Dr. Amon er einn fremsti húðsjúkdómalæknir Þýskalands og hefur verið að gera rannsóknir á vörunum sem hafa skilað frábærum árangri, og fundur- inn var haldinn hér til kynningar á þessum rannsóknum," segir Grím- ur. Mikil reiði vegna geðsjúklings í Bretlandi Hótaði að drepa en gekk laus Mikil reiði ríkir nú í Bretíandi eft- ir að geðsjúklingur stakk saklausan mann til dauða. John Barre.tt skráði sig sjálfur á geðsjúkrahús þar sem hann sagðist heyra raddir sem sögðu honum að drepa. Læknar leyfðu honum að ganga frjáls um garðinn á meðan þeir ræddu mál hans en Barrett notaði tækifærið og kom sér í burtu. Hann keypti sér hníf og beið eftir fórnarlambi sínu í runna. Hann hefur nú verið hand- tekinn en lýsti atburðarrásinni í ró- legheitunum. „Ég hafði ákveðið að fórnarlambið skyldi ekki vera barn, kona eða öldruð manneskja," sagði Barrett sem réðist á fimmtugan karl- mann. Morðinginn hafði áður rekist á poppstjörnuna Simon Fowler. Geðsjúkur John Barrett bað um hjálp vegna radda sem sögðu honum að drepa. „Hann sagði að ég væri heppinn," sagði Simon. „Þetta hefði getað ver- ið ég.“ Talið er að um 40 morð á ári í landinu geti verið rakin til svipaðra mistaka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.