Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
BBC aftur
í loftið
íslendingum
gefst nú aftur kost-
ur á að hlusta á
Breska Ríkisútvarp-
ið (BBC) eftir að endurvarp
á stöðinni hófst að nýju á
tíðninni FM 94,3. BBC
World Service útvarpar
fréttum og fréttatengdu
efni allan sólarhringinn og
nýtur fádæma trausts og
virðingar. Endurvarpið er á
vegum 365 ljósvakamiðla
og nær yfir höfuðborgar-
svæðið og Faxaflóa.
Hálfbróðir
Saddams
handtekinn
Sabawi Ibra-
him Hasan, hálf- 6
bróðir Saddams *
Husseins, hefur
verið handtek-
inn. Hasan var á
lista Bandaríkj-
anna yfir 55 eftir-
sóttustu glæpa-
menn heimsins.
Ekki fæst uppgefið hvar og
hvenær það átti sér stað. Nú
ganga aðeins 11 lausir af 55
en í spilastokkinum sem bú-
inn var til markaði Hasan
tígulsexuna. Hann starfaði
sem ráðgjafi forsetans.
Of stór þotaí
framleiðslu
Risaþota sem nú er í
smíðum hjá fyrirtækinu
Airbus í Seattíe í Bandaríkj-
unum á að komast í loftið á
næsta ári. Fáir flugvellir í
Bandaríkjunum ætía þó að
breyta völlunum sínum svo
risa vélin hafi nægt pláss til
að komast í loftið eða
lenda. Vélin, A380, mun
geta flogið með 555 far-
þega. Hún er jafri löng
Boeing 747 en þar sem
vængirnir eru mun lengri
þarf hún mun meira pláss.
Aðeins fjórir flugvellir ætía
að gera nauðsynlegar
breytingar svo vélin geti
lent hjá þeim.
„Héðan að austan eralltgott
að frétta, sól og fínt veður,“
segir Guðmundur Árni Árna-
son, bústjóri á Skriðufelli I Jök-
ulsár-
hllðog
Landsíminn
vélsleðakappi.„Ég hefnú lltið
komist á sleða I vetur, enda
snjóinn hreinlega vantað
þetta áriö og bara eitt mót
haldið sem ég komst ekki á.
Fínt að frétta héöan afSkriðu-
felli þar sem ég er meö 34 kýr
og 40 geldneyti. 5vo hefég
gripið i byggingarvinnu á
Reyðarfirði með bústörfunum
en þar er nóg að gera og mik-
ið byggtþessa dagana."
Öryggisfyrirtækið InPro býður sveitarfélögum að koma rekstri slökkviliða þeirra í
hendur einkaaðila. Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri InPro, segir markmiðið
að koma öllum 60 slökkviliðum landsins undir sama hatt.
Brunabíll Með sameiningu
sveitarfélaga næðist hagræði
og samræming I stjórnun, for-
vörnum, búnaði og þjálfun,
segir Gestur Pétursson.
„Hugmynd okkar felst í að gera einkaaðilum kleift að eiga og
reka slökkvilið," segir Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri In-
Pro ehf. í bréfí til bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs.
„Við erum búnir að vera að vinna
að þessu síðan í haust og höfum
bæði gert lagalegar og fjárhagslegar
úttektir,“ segir Gestur Pétursson við
DV. „Við fórum ekki að ræða þetta
fyrr en við vorum orðnir vissir í okk-
ar sök um grundvöllinn fyrir þessu."
Sextíu slökkvilið verði eitt
Gestur segir að í landinu séu rek-
in samtals um 60 slökkvilið. Það yrði
mikil framför að sameina þau í mun
meira mæli en þegar sé orðið. Hug-
mynd InPro byggi á sem víðtækastri
sameiningu.
„Markið er landið allt. Þannig
næðist hagræði og samræming í
stjórnun, forvömum, búnaði og
þjálfun," segir Gestur og bendir um
leið á að InPro sé ekki að finna upp
hjólið hvað snertir einkarekstur
slökkviliða. „í Ðanmörku em 65 pró-
sent brunavarna í höndum einka-
aðila. Og það em þegar rekin slökkvi-
lið hérlendis hjá álverinu í Straums-
vík og fýrir Norðurál og járnblendi-
verksmiðjuna á Grundartanga."
Heiðarleg tilraun
„Astandið er alls ekki slæmt í dag
„Markið er landið allt.
Þannig næðist hag-
ræði og samræming í
stjórnun, forvörnum,
búnaði og þjálfun."
en það má alltaf gera gott betra og
það er okkar markmið," segir Gestur.
„Þetta er eins og með íþróttamann
sem náð hefur settu marki með tilte-
knu æfingaprógrammi og svo skiptir
hann um prógramm til að ná enn
lengra en byggir á traustum grunni.“
Að því er Gestur segir, ætlar InPro
sér ekld það hlutverk að reka slökkvi-
lið heldur einungis að vera eigandi
ásamt fjárfestum. í fyrmefndu bréfi
hans tÚ Fljótsdalshéraðs segir að
hugmynd InPro byggi meðal annars
á því að stækka tekjugrundvöll
slökkviliðanna.
„Við höfum meðal annars mótað-
ar hugmyndir um skiptingu þess
virðisauka sem skapast I rekstrinum
á milli hagsmunaaðila og mun sú
lækkun hafa í för með sér kostnaðar-
lækkun," segir í bréfinu. Ekkert sveit-
arfélag hefur enn ákveðið að hug-
mynd InPro verði hrint í fram-
kvæmd.
„Við bjuggumst auðvitað ekki við
að menn myndu stökkva á þetta án
þess að hugsa sig vandlega um. Og ef
mönnum líst ekki á þetta, þá gerðum
við að minnsta kosti heiðarlega til-
raun," segir Gestur.
Áhyggjur slökkviliðsmanna
Að sögn Gests starfa f dag 14
manns hjá InPro, meðal annars fyrr-
verandi slökkviliðsmenn. Starfssvið-
ið snúi að öryggis- og vinnuumhverf-
ismálum hjá fyrirtækjum.
„Við erum í fyrst og fremst í for-
vömum og viljum einmitt að þunga-
miðja slökkviliðanna færist yfir á for-
vamimar. Slysatíðni hjá fyrirtækjum
sem við vinnum fyrir hefur lækkað
um 40 til 50 prósent," segir Gestur.
Að sögn Gests hafa fulltrúar InPro
þegar rætt við alla helstu hagsmuna-
aðila, meðal þeirra á kjarafélag
slökkviliðsmanna. „Við höfum átt
einn fund með þeim þar sem við
kynntum þeim okkar hugmyndir og
hlustuðum á þeirra sjónarmið. Stór
spuming hjá þeim er auðvitað
hvernig réttindi þeirra yrðu tryggð.
Og því höfum við verið að vinna í og
vinnum áfram í," segir Gestur.
gar@dv.is
Radíó Reykjavík lýsir yfir striði á hendur Stefi
„Þetta em fjárkúgunaraðferðir og
ekkert annað," segir Jón Hlíðar Run-
ólfsson, eigandi Radíó Reykjavík.
Stef hefur neitað að gera samning
við Radíó Reykjavík vegna eldri
skulda stöðvarinnar við samtökin.
Þær skuldir urðu til í tíð Guðmundar
Týs Þórarinssonar en nú hefur nýr
eigandi tekið við.
Hann hefur kært Stef til Sam-
keppnisstofnunar og Ríkislögreglu-
stjóra.
„Ef einhver reynir að fá mann til
samninga gegn því að maður borgi
skuldir þriðja aðila er um fjárkúgun
að ræða," segir Jón Hlíðar. Hann
segist í upphafi hafa keypt rekstur
stöðvarinnar en rift samningum
þegar í ljós kom slæm skuldastaða
stöðvarinnar. Jón Hlíðar keypti í
kjölfarið tæki og tól stöðvarinnar,
nafnið og fékk úthlutað nýrri tíðni.
Með því telur Jón að hann hafi
losnað undan allri ábyrgð við Stef.
„Þeir höfttuðu hins vegar að gera
við mig samning en ég ákvað samt
að fara í lofið. Ég borgaði Stefi gjöld
fyrir febrúarmánuð og tel mig því
ekki að vera gera neitt ólöglegt," seg-
ir Jón Hlíðar.
Svo staðan er þessi: Stef neitar að
semja við Radíó Reykjavík nema
stöðin borgi gamlar skuldir Mumma
í Mótorsmiðjunni, fyrrum eiganda
stöðvarinnar. Jón Hlíðar segir skuld-
irnar hafa verið meiri en Mummi lét
hann vita af þegar hann hafi keypt
stöðina. „Kannski vissi hann ekki af
þeim," tekur Jón Hlíðar
þó fram.
Jón segist hafa kært
Stef til Samkeppnis-
stoftiunar á fimmtu-
daginn og ætíi að
kæra til Ríkislög-
reglustjóra í dag.
„Þetta er hrein
og klár fjárkúgun
og ekkert annað,"
segir Jón Hhðar
um starfsaðferðir
Stefs.
simon@dv.is
Guðmundur Týr Þórarinsson fyrrum eigandi
Radíó Reykjavfkur Skildi við stöðina í skulda-
bagga sem núverandi eigendur reyna að losa sig úr.
Radíó Reykjavík Stefneit-
ar að gera samning við stöð-
ina vegna eldriskulda.
Kæra Stef til Ríkislögreglu-
stjóra fyrir fjárkúgun