Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Page 18
18 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005
Neytendur 0V
í DV á mánudögum
Endurnýjaðu orku þína
Reyndu einhver af þessum
brögöum tilaöfá aukna orku inn í
lífþitt
1. Vendu þig á að byrja hvern
dag með því að fara með setningar
sem minna þig á kosti þína sem
manneskju til dæmis, „ég er sterk,
skemmtileg og orkurík manneskja“
eða „ég er yfirveguð, einbeitt og
skapandi," allt eftir því hvar kostir
þínir liggja. Til að muna þetta er
gott að venja sig á að segja þetta á
meðan þú tannburstar þig, eða
söngla þetta í morgunsturtunni.
2. Skipulegðu ákveðna tíma sem
þú notar til að gera smá hlé á vinnu
hveturfólktil að senda inn hugmyndir á netfangið heilsa@dv.is og kaerilaeknir@dv.is effólk vill beina spurningum til Katrínar Fjeldsted. Heilsusíðan birtist í D"V á mánudögum.
Guðni Gunnarson er líkamsræktarfrömuður og hönnuður RopeYoga, sem er að gera
allt vitlaust hér á landi sem og hjá mörgum stjörnum kvikmyndaiðnaðar Bandarík-
tíl að takast á við janna. Hann hefur nú lokið við að þjálfa Brandon Routh, næsta Súperman og segir
offltu barna Í gríni og alvöru að næst á dagskrá sé að sigra heiminn.
Nú til dags glíma margir við það
vandamál að bamið þeirra er of
feitt. Það getur verið erfitt að horf-
ast í augu við vandamálið en best er
að taka á því strax áður en það
verður of seint fyrir bamið.
1. Geröu þetta að fjöl-
skyldumáli. Heilsa
kemuröllum viöog
það er mikilvægt að
báðir foreldrar taki
þátt i að setja gott for-
dæmi. Það þýöir ekki
að annað sé að kenna
þvl að borða hollan
mat á meðan hitt ligg-
url sófanum með
snakkpoka.
2. Talaðu opinskátt
viö barnið þitt um löngun þlna til að hjálpa,
ekki til að særa. Útskýrðu vandamálið fyrir
barninu þinu og fáðu þaö til að koma sjálft
með hugmyndir.
3. Gerðu þérgrein fyrirþvlhvernig barninu
þinu llður. Kannski er það að nota mat til að
líða betur eða þaö er kvlðið eða þunglynt.
Talaðu opinskátt um þetta við barnið þitt og
fáðu sérfræðingshjátp efþarf.
4. Settu heilsu ibrennidepilinn istaö líkam-
legs útlits. Reyndu að láta barninu ekki líða
eins og það líti ekki rétt út. Gerðu mikið úr
kostum hreyfingarog líkamlegrar þjálfunar.
5. Forðastu átök varðandi mat. Foreldrar
eiga að kenna hvað ergóð næring en ekki
skamma barnið fyrir að borða óhollan mat.
Settu þvl frekar ramma með heilsumat. Til
dæmis er hægt að segja:„l eftirrétt máttu fá
epli, peru eða appeisinu, þú ræður." Blítt við-
mót sem þó er fast fyrir getur verið mjög
áhrifamikið.
6. Auktu athafnasemi fjölskyldunnar. Hugs-
aöu um hversu mikið samvera fjölskyld-
unnar snýst um tölvuleiki, sjónvarp og að
borða úti. Farið frekar öll saman í göngutúr
eða útað hjóla. Ykkur mun öllum líða betur.
7. Dragðu úr óhollum mat á heimilinu. Það
er algjör óþarfí aö fara út íöfgar heidur er
' þetta bara spurning um að takmarka.
Kauptu meira afávöxtum og grænmeti og
hafðu þaö sýnilegt.
8. Settu gott fordæmi. Láttu barnið þitt sjá
þig hreyfa þig reglulega og borðandi hollan
mat. Láttu barnið einnig sjá þig höndla
stress á jákvæðan hátt.
9. Næröu sjálfsálit barnsins þíns. Það eiga
allir likama og það er enginn fullkominn.
Hjálpaðu barninu að koma auga á persónu-
lega styrkiþess.
10. Viðurkenndu mistökþln þegarþú gerir
þau. Það eru ekki til fullkomnir foreldrar og ef
þú gerir mistök eða hljómar dóm-
hörð/harður við barnið þitt, biðstu þá fyrir-
gefningar. Sýndu þvi að þú sért nógu sterk
manneskja til að sjá galla þina og barnið
mun einnig verða þannig.
ilið eyðum alltol mikilli
orku í að vera hrædd
„RopeYogað þarf aðeins meiri
tíma en hlaup og eróbikk og allt það
kjaftæði. Það þarf að sinna fólki í lík-
amsræktarstöðvum eftir að maður
hefur keypt kort og gefa því meiri
gaum. Við sem emm að kenna
RopeYoga erum fyrst og fremst að
hvetja fólk til að taka ábyrgð á lífi
sínu og heilsu. Fólk byrjar þá að nota
RopeYogað sem farartæki til að auka
orku sína en svo getur það farið að
nota það til að efla vitundarástand
sitt," segir Guðni Gunnarsson, einn
af frumkvöðlum íslands á sviði lfk-
ams- og heilsuræktar.
Guðni er nú nýlega kominn á
heimili sitt í Los Angeles þar sem
hann vinnur að því að gæta að formi
og sálarlífi fína og fræga fólksins auk
þess sem hann kynnir fólk fyrir þeim
töfmm sem hann segir búa í Rope-
Yoganu.
Nýlega kom Guðni fráÁstralíu en
þar hefur hann
unnið hörð-
um hönd-
um að því að
koma nýst-
irninu
Brandon
Brandon Routh næsti
Súperman Guönisegirað
I það þurfi að Ifta til fleiri
þátta en llkamans þegar það
á að koma manni Ijafn gott
form ájafn stuttum tlma.
Routh, í form með hjálp RopeYog-
ans svo hann geti tekist á við hlut-
verk ofurmennisins Clark Kent í
næstu kvikmynd um Súperman.
Mestri orku eyðum við í
hræðslu
Það vekur furðu margra að fag-
menn í kvikmyndaiðnaði Holly-
wood hafi kosið að nota yoga til að
koma manni í form ofurmennis. En
Guðni svarar því þannig til að Rope-
yogakerfið sé sniðið að því að styrkja
hug, sál og líkama í einu vetfangi.
Fólk verði að gera sér grein fyrir því
að heilsuræktin ein svali ekki þörf-
um fólks til fulls.
„RopeYogað er heildræn heilsu-
rækt ef við lítum á líkamann sem
verkfæri og maður fær mesta nýt-
ingu út úr honum ef maður sinnir
honum. Orka vinnst úr mat og í
samræmi við öndun og hreyfingu
verður til orka. En hvað eigum við að
gera við þessa orku og hvernig beit-
um við henni? Mest orka fólks fer í
viðnám, eða hræðslu. Flest fólk er
nefnilega dauðhrætt allan daginn
vegna þess það treystir sér ekki. Það
veit af fenginni reynslu að við stönd-
um við svo lítið af þeim áædunum
og ásetningi sem við ædum okkur.
Við erum alltaf að ljúga og svíkja
okkur sjálf og þar með verðum við
fyrir vonbrigðum sem leiða til þess
að við förum að bæla okkur sjálf og
þar með hættum við að taka þátt í
stórum hluta af okkar tilvist vegna
þess okkur h'ður illa í návist við okk-
ur sjálf."
Tilveran breytist
Hann segir að RopeYogað gangi
meðal annars út á að taka þetta
hræðsluástand föstum tökum með
að það markmiði að fólk getí horft á
sjálft sig, sagt sér sannleikann og far-
ið að sinna sér með auðmýkt og
Guðni Gunnarsson frumkvöð-
ull í líkamsrækt Segir fólk eyða
alltofmikilli orku í að vera hrætt.
Þessu taki RopeYogað á.
kærleika. Þannig geti fólk hætt að
refsa og skammast í sér og farið að
sinna sér af alúð og umliyggju. Með
því breytíst tilveran. Þá geti fólk
vaknað til vitundar, haft ásetning og
markmið og traust á sjálfu sér. Þar
með minnki óttinn í tilvenmni með
þeim jákvæðu afleiðingum að orka
og ánægja aukist.
„í raun og veru erum við skoðun
auk þess sem við vinnum með lík-
ama fólk þá fáum við það til að taka
ábyrgð á þeim hryðjuverkum sem
vinna stanslaust gegn okkur sjálfum.
Þar með verður fólk orkumeira og
hugrakkara og tilvera þess fer að
breytast.“
Stjörnurnar eru eins og við
Guðni segir að oft gleymist að
vinna með það sem hann kallar
miðjuna í fólki. Þessu hafi Bryan
Singer, leikstjóri nýju Súperman-
myndarinnar, þó gert sér grein fyrir
enda sé leikarinn Brandon Routh
aðeins 25 ára gamall og þegar koma
eigi manni í jafn gott form og þörf er
á til að takast á við hlutverk ofur-
mennisins þurfi að líta til fleiri þátta
en hkamans. Því ef maður setur ekki
traustan sökkul undir hús er hætta á
því að eitthvað brotni jafnvel maður
leggi vinnu í aht annað.
„Stjörnur Hohywood eru rétt eins
og annað fólk aUtaf að glíma við ótta.
Ég er svo lánssamur í mínu starfi að
ég hef verið að vinna með fólki sem
viU taka ábyrgð á sínu lífi. Ef maður
vinnur stóran happadrættisvinnig
verður maður að kunna fara með
peningana og eins er með orku
fólks," segir Guðni, tUbúinn tU að
sigra heiminn.
Þeir sem láta gata geirvörtur og kynfæri eru of stoltir til að leita læknis
Bera harm sinn í hljóði
146 karlmenn og konur voru
höfð tíl rannsóknar f bandarískum
háskóla en þau áttu það sameigin-
legt að hafa látið gata geirvörur og
kynfæri. Af þeim höfðu 43% látíð
gata geirvörtur sínar, 25% kynfærin
og þess fyrir utan voru 32% með
göt á báðum stöðum. Meirihluti
þeirra áttu við einhver heUsufars-
vandamál að stríða í kjölfarið en
mjög fáir leituðu tíl læknis í kjölfar-
ið.
Algengustu kviUarnir hjá þeim
sem höfðu látíð gata geirvörtur sín-
ar voru mikU eymsli (37%), erting í
húð (21%) og sýking (21%). Af þeim
karlmönnum sem létu gata kynfæri
sín lentu fjórir af hverjum tíu í
vandræöum með losun þvags.
Þó svo að rúmur helmingur
þeirra sem lentu í vandræðum hafi
rætt við þann sem sá um götunina
um vandann leituðu einungis 3%
til læknis. En langflestir voru
ánægðir með lokkana sína og hið
sama má segja um maka þeirra.
Janet og Justin Hún er með fallegan lokk I
geirvörtu sinni. Skyldi hún hafa komist sárs-
aukalaust ígegnum þaö?