Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Qupperneq 32
32 MÁNÖDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 Lifið DV Á föstudaginn boðaði Tinna Gunnlaugsdóttir til starfsmanna- fundar og tilkynnti leikurum Þjóð- leikhússins að hún hygðist í dag, mánudag, segja upp samningum þeirra tíu leikara sem styst er síðan fengu fastráðningu við húsið. Mörg- um þótti tímasetningin nokkuð harkaieg en framundan voru sýn- ingar á öllum sviðum hússins yflr helgina og í flestum verkanna voru í burðarhlutverkum einstaklingar sem gátu tekið uppsögnina til sín. Yfirlýsing Tinna segir í yfirlýsingu til fjöl- miðla á föstudag að hér sé um stefnuyfirlýsingu að ræða og býður samningsaðilum leikara við Þjóð- leikhúsið uppí dans: „Uppsagnir leikaranna tíu er stefhuyfirlýsing um breytt ráðningarkjör leikara við Þjóðleikhúsið og miðar sú breyting að því að móta þá hefð að sjálfsagt þyki að ráða listamenn til tiltekins tíma í senn til að skapa æskilegan sveigjanleika í starfi Þjóðleikhússins og svigrúm við þjóðleikhússtjóra- skipti. Það er vilji til að þessi um- ræða verði tekin upp í kjaraviðræð- um við Leikarafélag íslands, sem fer með samningsumboðið fyrir leikara við Þjóðleikhúsið, en samningar þeirra eru lausir. Vegna sérstöðu Þjóðleikhússins þyrfti sú samninga- gerð að miða að því að hægt verði að bjóða upp á tímabundna samninga leikara til eins, tveggja eða þriggja ára í senn með þeim fyrirvara að segja megi þeim upp af hálfu annars hvors aðila áður en ráðning fellur sjálfkrafa úr gildi við lok samnings- tíma.“ Eins lengi og elstu menn muna... Uppsagnimar eru enn einn kafl- inn í langri sögu kjaradeilna við Þjóðleikhúsið. Þegar við stofhun þess komu upp deilur um ráðninga- fyrirkomulag, en Jónas Jónsson frá Hriflu, einn helsti baráttumaður þess að húsið yrði reist, var gagnrýn- inn á fastráðningarsamninga sem í upphafi voru til eins og tveggja ára. Talaði hann um ríkisleikara, en raunin varð sú að að tuttugu manna fastráðinn leikflokkur við húsið varð til þess að löng og stutt reynsla rann saman og úr varð samstæður leik- flokkur. f tíð Guðlaugs Rósinkrans komu upp einstök deilumál og voru mjög í „Stefnuyfirlýsing“ segir Tínna Gunnlaugsdóttir um uppsögn tíu leikara af fastráðn- ingasamningum Þjóðleikhússins. Hún boðar lausara samningskerfi við leikara sem henti betur rekstri hússins, svo starfskraftar verði ekki bundnir til langs tíma og leikstjórar eigi frjálsara val um hlutverkaskipan. Fundið er að tímasetningu til- kynningar hennar en í leikhúsheiminum er litið á aðgerðina sem tímabæra. Fast- ráðningar leikara og uppsagnir hafa löngum verið deilumál í stóru leikhúsunum. opinberri umræðu og oft furðu harkaleg miðað við það sem nú tíðk- ast. Fastráðni flokkurinn endurnýj- aðist hægt og æviráðningarkjör voru þegar á leið orðin sá rekstrarveru- leiki sem stjórnendur hússins bjuggu við. Hefðarréttur og svoköll- uð níutíu og níu ára regla sem voru viðmið í ráðningu og starfslokum ríkisstarfsmanna urðu fastar í rekstrinum. Stefán og Sveinn Þegar Sveinn Einarsson kom til starfa við leikhúsið 1972 sagði hann upp nokkrum samningum og urðu af því nokkrar deilur. Stéttarfélag leikara lagðist gegn þeim en Sveinn hafði sitt fram; sumir þeirra sem sagt var upp urðu áfram lausráðnir við húsið og hlutu á endanum fast- ráðningu. Þegar Stefán Baldursson kom til starfa við leikhúsið sagði hann upp hópi leikara og leikstjórum en þá voru komnar tvær fastar stöður þeirra við húsið. Varð af þeim upp- sögnum mikið fár og var um tíma útlit fyrir að deilurnar myndu ríða nýjum þjóðleikhússtjóra að fullu. Nýir tímar Aðstæður í starfsumhverfi leikara hafa breyst verulega. Enn er stór hluti stéttarinnar án fastrar vinnu en starfar í lausamennsku. Brottfall úr hópi menntaðra leikara er mjög hátt og margir eldri og yngri leikarar verða að sækja í önnur störf þó stök tímabundin verkefrú í auglýsingum, útvarpi og sjónvarpi, kennslu og kvikmyndum, haldi mönnum við. Hreyfing í stóru leikhúsunum á eldri leikurum er afar h'til og er það til baga fyrir bæði leikhúsin, stéttina og listgreinina. Meiri hreyfanleiki væri æskilegur. Starfsmenntun og reynsla eldri leikara er aftur bundin við fagið, fáir eiga kost á starfsferli utan leikhúss- ins nema sækja sér viðbótarmennt- un í allt öðrum geirum. Launakjör leikara við Þjóðleikhúsið voru lengi bundin við almenn kjör hjá öðrum hópum ríkisstarfsmanna þó grund- vöUur starfstíma væri aUt annar. AUt að helmingur vinnuskyldu gat verið bundinn kvöldvinnu og á sumum tímum ársins máttu leikarar þar fyrir utan skUa fuUum vinnudegi við æfingar, en þess á miUi gátu komið tímar þar sem engin voru verkefnin og starfsmenn gengu um iðjulausir. Tvö félög Fyrir nær tíu árum stofnuðu leik- arar við Þjóðleikhúsið nýtt stéttar- félag við hlið hins gamla, Félags íslenskra leikara. Það var tU að ná tU sín samningsréttinum við fjármála- ráðuneytið. Sumum fannst það skjóta skökku við. Leikarar eru nú með tvö stéttarfélög: FÍL fer með samninga við aUa aðUa aðra en Þjóðleikhúsið, Leikarafélag íslands semur við ríkið um kaup og kjör leik- ara þar. Yfirlýsing Tinnu miðar að því að losa um fastráðningarkerfið. Tíu uppsagnir eru innan þeirra marka að teljast hópuppsagnir en eins og yfirlýsing hennar ber með sér ætlar hún að sækja nýtt samningsfyrir- komulag um takmarkaða ráðningar- tíma tU stéttarfélagsins og ekki er ólfldegt að hún nái því fram. Má því ætla að hugur hennar standi tU að endurskoða fleiri samninga í leik- arahópnum, enda fúU ástæða tíl. Sú kyrrstaða sem ríkt hefur í langan tíma í ráðningum eldri leikara er óeðlUeg frá sjónarhól leikhúsgesta og óæskUeg listrænt séð. Rökin... Tinna segir í yfirlýsingu sinni: „Þjóðleikhúsið er ríkisstofnun með fjölda einstaklinga á launaskrá og eru flestir þeirra sem þar starfa fast- ráðnir ríkisstarfsmenn, með þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. Það má vissulega færa fyrir því haldbær rök að ákveðin kjölfesta f fjárhagsstjórnun sé nauðsynleg, enda er stofnunin rekin að stærstum hluta fyrir opinbert fjármagn og starfar innan fjárlaga. Hitt er ef til viU umhugsunarvert, en það er sú staðreynd að leikarar Þjóðleikhúss- ins skuli flestir vera á ótímabund- inni fastráðningu sem erfitt er að hrófla við nema kosta fil miklum tíma og fjármunum, að ótöldum þeim sársauka sem uppsagnir óhjá- kvæmUega valda í flestum tUfeUum. Þessi mótsögn felur í sér að það get- ur orðið vandkvæðum bundið fyrir nýjan þjóðleikhússtjóra að móta hið Ustræna starf, þar sem hann getur í raun fáu haggað og hefur lítið sem ekkert um það að segja úr hvaða hópi leikstjórar velja leikara þegar þeir skipa í hlutverk." Forvitni EðlUega er nokkur forvitni í sam- félaginu um hverjir þeir tíu eru sem fá uppsögn á samningi sínum í dag. Tinna segir réttUega að í uppsögn- inni feUst ekki listrænt mat. Það er ekki enn komið fram en mun skýrast þegar ljóst verður hverjir fá endur- ráðningu á næstu vikum. Losun á samningum mun leiða tU einhverra breytinga á leikflokkum landsins. Úthlutun LeikUstarráðs á föstudag þýðir að þar er þegar farið að skipast í hlutverk. Guðjón Pedersen, leik- hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, Magnús Geir Þórðarson og Hilmar Jónsson starfsbræður hans munu fara að festa sínar áætlanir í fram- haldi af þessu og eftirsóttir leikarar munu á næstu vikum fá tílboð um vænleg hlutverk, leikstjórar taka að gera kröfur og líklega mun þetta leiða tíl þess að kaupkröfur aukist fyrir yngri hluta leikara landsins. Leikarar við Þjóðleikhúsið mimu funda um þetta mál í dag og verður fróðlegt að sjá hvernig Tinnu gengur að sigla þann sjó sem framundan er. pbb&dvAs Sinfónían flutti á fimmtudag blandaða dagskrá með verkum eftir Jónas Tómasson, Philip Glass og Wolfgang Amadeus Mozart. Það var hinn frægi Rashé-kvartett sem blés í saxófóna í verki Glass og var Sigurður Þór Guðjónsson sæll með blásturinn. Bless Kárahnjúkar! Sinfóníettu sína nefnir Jónas Tómasson Kárahnjúka og segir að hún sé innblásin af íslenskri náttúru og að sumu leyti sé verkið saknaðar- óður um land sem hverfur undir vatn. Verkið er byggt á miklum and- stæðum og er ýmist leikið afar veikt eða mjög sterkt. Hinir sterku kaflar voru áhrifamiklir og kröftugir en hinir veiku voru framan af fremur sviplausir en urðu seinna athyglis- verðir, ekki síst þegar strengir voru plokkaðir og þegar skírskotað var greinilega til Jón Leifs. Hljómsveitin lék þetta prýðilega. Það kemur kannski málinu ekkert við en ekki sá gagnrýnandinn neina orðlagða umhverfisháka á þessum tónleikum. Hér var þó tækifærið til að segja bless við Kárahnjúka með tilheyrandi músikölskum söknuði. En kannski vilja umhverfishákar bara heyra ærandi rokkmúsik. Konsertinn fyrir saxófónkvartett og hljómsveit eftir Philip Glass er áheyrilegt verk, ljóðrænt og nota- legt, en er samt hálfþunnt að inni- haldi. Annar og íjórði kaflinn eru talsvert djassaðir, þriðji kaflinn er draumkenndur og lágvær og þar létu tenór og barítónsaxófónarnir vel til sín taka, en fyrsti kaflinn er þægilega flæðandi. Hljóðfallið og taktskipan eru fjölbreytt mjög og hljómsveitin, ekki sfst ásláttarhljóð- færin og selestan, leika oft hugvit- samlega með kvartettinum. Hlutverk kvartettsins er auðvitað áhugaverðasti þáttur verksins. Hann er fjölbreyttur og skemmtileg- ur, bæði í einleik þeirra og samleik. Leikur Rasché-kvartettsins var líka einstök upplifun og lújómsveitin veitti honum dyggan stuöning. Þetta var sannarlega gaman að heyra. Ekki spillti stórkostlegur leik- ur kvartettsins á einni fúgu Bachs úr Rashé-kvartettinn kom og sigraöi i hálf- þunnu verki Glass. List fúgunnar sem leikið var sem aukalag. Hins vegar var Pragsinfónía Mozarts fremur dauflega spiluð. í hæga kaflanum gætfi talsverðrar ónákvæmni. Að öðru leyti var leik- urinn sæmilega heiðríkur en átaka- laus og skorti mjög blæfegurð og Sinfóníuhljómsveit Islands Efnisskrá: Jonas Tómasson: Sinfóníetta (Kárahnjúkar); Philip Glass: Konsert f. saxó- fónkvartett og hljómsveit; Mozart: Sinfónia nr. 38. Einleikarar: Rasché-kvartettinn. Stjórnandi: Bernharður Wikinson. Háskólabíó 24. febrúar. Tónlist það andríki sem setur svip sinn á verkið, ekki síst lokakaflann. SigurÖur Þór Guöjónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.