Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Qupperneq 40
r* f rí £ í íJ^Jjí 0 t Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^iafnleyndar er gætt. *-* Q
SKAFTAHLÍÐ24, lOSRBYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISS05000
690710 111117
• í Sunday
Times í gær er
fjallað um inn-
rás hinna jakka-
fataklæddu vík-
inga í breskt við-
skiptalíf, en
útrás íslenskra
auðmanna þar í
landi hefur
vakið mikla
athygh í fjölmiðlum og
viðskiptalífinu. Rætt var við Ólaf
Ragnar Grímsson forseta sem
var viðstaddur opnun á skrifst-
ofu Avion Group í smábænum
Crawley í Sussex. Þar var bæjar-
stjórinn spurður hvort hann
hitti forseta á hverjum degi.
Sagði hann svo ekki vera, en
bætti við að það væri ekki held-
ur á hverjum degi sem forseti ís-
lands fær að hitta bæjarstjórann
í Crawley í Sussex...
Helgi Þór Arason Idolstjarna átti
að vera næsti stjórnandi Djúpu laug-
arinnar á Skjá einum. Vegna samn-
ings síns við Idol Stjörnuleit á Stöð 2
var honum meinað að taka að sér
starfið. Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Skjás eins, segir miður
ef Stöð 2 standi í vegi fyrir hugsanleg-
um framaferli Idolkraldcanna.
„Við tókum Helga í prufu og leist
afar vel á hann,“ segir Magnús. „Síð-
an báðum við hann að athuga sín
samningsmál og mér finnst mjög
leiðinlegt ef samningurinn sem hann
skrifaði undir bannar honum þetta."
Það sem gerir málið sérstakt er sú
staðreynd að Djúpa laugin hefst ekki
fyrr en helgina eftir úrslitakvöld Idol.
Framkoma Helga í Djúpu lauginni
getur því ekki haft nein áhrif á úrslit
keppninnar, auk þess sem nokkuð er
liðið frá því hann datt út.
„Svona eru bara reglurnar,“ segir
Ástin dvínar Helgi og Brynja hættu saman
fyrir nokkru ognú fær hann ekki drauma-
starfið.
Þór Freysson, framkvæmdastjóri Idol
Stjörnuleitar. Hann segir að einu fjöl-
miðlarnir sem keppendur fái að tala
við eftir að hafa dottið út, séu Séð og
Heyrt, morgunsjónvarp Stöðvar 2 og
FM 957. Annars séu krakkarnir samn-
ingsbundnir til 14. apríl þrátt fyrir að
keppninni ljúki í mars.
„Ástæðan er sú að sigur-
vegarinn á að njóta sín
einn í sviðsljósinu,"
segir Þór. „Þeir sem
detta út eiga ekki
að fara að gefa
út plötur eða
stjórna þáttum
meðan keppnin er í
gangi."
Magnús Ragnar-
son segir þetta fram-
komubann gera það
að verkum að kepp-
endurnir séu í raun að
afsala sér tjáningar-
frelsinu. „Það er ekki
eins og Helgi hefði átt
að syngja karíókí í
Djúpu lauginni. Hann
er bara hress og
skemmtilegur strákur og
hefði sómað sér vel á skjánum."
Helgi Þór Arason Idol-
stjarna Átti að vera næsti
stjórnandi Djúpu iaugarinnar.
tr
Alþýðlegur borgarstjóri
Steinunn Valdís Óskarsdóttir fór
út á h'fið um helgina. Á föstudags-
kvöldið var hún á Ölstofu Kormáks
og Skjaldar þar sem hún spjallaði við
gesti og gangandi með bros á vör og
kokkteilglas í hönd. Skipulagsmál
Laugavegarins voru ofarlega á baugi
en eftir kvöldið sögðu gestir að
þarna væri kominn nútímalegur
borgarstjóri.
„Auðvitað fannst manni sérstakt
að sjá borgarstjórann á djamminu
en það sýnir líka að hún er mann-
leg eins og við hin,“ sagði einn af
gestum Ölstofunnar sem rak aug-
un í brosandi borgarstjórann.
Annar gestur sagðist reyndar
að sér hafi brugðið.
Miðbærinn sé
sérstaklega að næturlagi.
Því hefur annar frægur gestur öl-
stofunnar á föstudaginn fengið að
kynnast því Friðrik Þór Friðriksson
kvikmyndagerðamaður sat við bar-
inn, alls óhræddur, þrátt fyrir að
hafa lent í fólskulegri líkamsárás
einmitt á þessum stað fyrir nokkrum
mánuðum.
Slíkt er þó greinilega fljótt að
gleymast þegar húmar að.
Þótti skemmtanafíklum
miðbæjarins mikill feng-
ur að sjálfum borgar-
j stjóranum, enda er haft
í á orði að hvergi annars
staðar sé rödd
fólksins sterkari.
Steinunn Valdís Ræddiskipu-
hættulegur staður - I la3smál f góðra vina hópi.
Stjarnan hélt KR-
merkinu á lofti
„Ég veit hreinlega ekki hvort það
sé vaninn að rífa merkið af," segir
Erlendur ísfeld þjálfari kvennaliðs
Stjömunnar í handbolta. Stjarnan
varð um helgina bikarmeistari eftir
að hafa hreinlega rúUað yfír Gróttu
KR. Margir furðuðu sig hins vegar á
því að merki Gróttu KR hékk á bik-
arnum þegar hann var afhentur
Stjörnustelpum.
„Merki beggja liða eru alltaf
hengt á bikarinn fyrir leikinn. Þetta
tíðkast líka í karlabikarnum og
kannski hefur bara gleymst að rífa
KR-merkið af," segir Erlendur en
laugardagurinn var stór dagur fyrir
hann. Ekki aðeins unnu Stjörnu-
stelpur sinn leik heldur varð gamla
félagið hans, ÍR, íslandsmeistari í
fyrsta sinn.
„Þetta var tvöfaldur dagur fyrir
mig og ég hef lengi beðið eftir
þessu," segir Erlendur. „Um kvöldið
fórum við svo í mat í Garðabæ og
áttum góða stund saman, liðið og
stuðningsmenn. Þetta var yndis-
Bikarinn f höndum Stjörnunnar
Gieymdist að rffa KR-merkið af?
legur dagur."
Og svo sannarlega skein gleðin úr
hverju auga eftir sigur Stjörnunnar.
Og þó KR-stelpur fengu ekki að setja
hönd á bikarinn, hékk merki þeirra
engu að síður á lofti.
Rope yoga sameinar hug, líkama og sál
- 8 vikna námskeið
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi þróað af Guðna Guðnasyni
í Los Angeles. Rope yoga hefur reynst fólki vel í baráttunni við
bakverki, álagsverki og aðra kvilla í daglega lífinu.
Rope yoga eykur upptöku súrefnis í líkamanum og styrkir kviðinn,
miðju líkamans og bætir virkni sogæðakerfisins. Tveggja mánaða
lokuð námskeið þar sem aðeins 17 manns eru í hverjum hópi.
Boðið er upp á námskeið kvölds og morgna.
Byrjendur kr. 24.990.7
Framhald kr. 17.990 -
Vönduð námsgögn.
Námskeiðin hefjast 7. og 8. mars
Skráning er hafin í síma 565 2212
Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, s. 565 2212
www.hress.is
HRESS
HEILSURÆKT