Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2005, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005
Fréttir DV
Landsliðs-
menn fögn-
uðu á Prikinu
Leikmenn íslenska
karlalandsliðsins í hand-
bolta hittust á Prikinu á
miðnætti eftir páskadag og
fögnuðu þar góðum árangri
í vináttuleikjum sínum við
Pólverja síðustu helgi.
Strákarnir unnu síðasta leik
sinn með einu marki en þar
áður hafði liðið tapað ein-
um leik og unnið einn.
Rekstrarstjórinn á Prikinu
segir að veisluhöld drengj-
anna hafi farið vel fram,
landsliðmennirnir hafi ver-
ið prúðir, fengið sér nokkra
bjóra og augljóst hafi verið
að þeir skemmtu sér vel.
Fischerfær
sérmeðferð
CNN segir í grein á
heimasíðu sinni að hið sér-
lundaða skap Bobbys
Fischer geri það að verkum
að hann muni una sér vel
hér á landi enda séu ís-
lendingar upp til hópa sér-
stakir. í greininni er vitnað í
ýmsa innflytjendur sem
búa á íslandi. Haft er eftir
konu frá Kenfa sem vinnur
hér sem þjónn, að heppni
Fischers sé mikil því hann
hafi fengið ríkisborgararétt
á tólf mfnútum en hún hafi
þurft að bíða eftir sínum í
fimm ár.
Þingmenn
iðrast ekki
Fjallað hefur verið um
heimkomu Fischers í öllum
helstu fjölmiðlum heims
um helgina.
Washington Post
skrifaði harðorð-
an leiðara þar
sem íslendingar
eru gagnrýndir
fyrir að hafa tekið
fagnandi á móti
gyðingahatara. ís-
lenskir þingmenn
sem DV ræddi við
virðast þó ekki
láta þessi skrif mikið á sig
fá. Pétur Blöndal alþingis-
maður segir gagnrýnina
ekki koma sér á óvart. „Við
erum umburðarlynd þjóð
og höfum lengi lagt lag
okkar við sérvitringa. Mér
finnst þetta því allt í lagi,“
segir hann.
Búið er að draga í svokölluðu lóðalottói í Hafnarfirði. Fjörutíu og sex lóðir voru í
boði á nýja Vallasvæðinu. Um hundrað manns fylgdust með þegar bæjarlögmaður
dró í lottóinu sem var í beinni í útvarpi Hafnarfjarðar. Spennan var rafmögnuð og
má segja að helstu íþróttamenn bæjarins hafi dottið í lukkupottinn. Hinn tvítugi
Emil Hallfreðsson knattspyrnumaður hjá Tottenham var einn þeirra heppnu.
Stjörnurnar unnu
InDnlnttnið í Hnfnartirði
„Það komu strax upp tveir fótboltamenn og svo tvær konur úr
handboltanum hérna í Hafnarfirði/' segir Gunnar Svavarsson
bæjarfulltrúi um dráttinn í lóðalottóinu sem fram fór á bæjar-
stjórnarfundi í síðustu viku. Mikil spenna var á fundinum sem
var opinn almenningi. Um hundrað manns fylgdust með bæjar-
lögmanni draga og var þessu öllu saman útvarpað beint í útvarpi
Hafnarfjarðar.
Knattspyrnumennirnir Auðunn
Helgason og Emil Hallfreðsson voru
meðal þeirra sem fengu lóð. 1200
manns sóttu um lóðimar 46
og því vom margir sem
þurftu frá að hverfa. „Ég
gat nú ekki séð hvort
einhverjir væm súrir. Q
Það var gleði og sorg í «
þessu enda margir að
sækjast eftir þaki yfir I
höfúðið," segir v;
Gunnar.
//
Sér pottur
fyrir gafl-
ara
Gunnar
segir að
svokölluð
80/20
prósent
regla
gildi
um
úthlutunina.
„Tuttugu
prósent af
lóðunum
fara til
annarra
en
þeirra
sem
búa
eða
^rtsyfe:
Emil Hallfreðs-
son Spilar fótbolta
á Englandi og fékk
lóð I Hafnarfírði.
Ég var nú bara á æf-
ingu þegar þetta fór
fram en fékk svo hell-
ing afsms-um með
hamingjuóskum þeg-
ar ég kom úr sturtu
vinna í Hafnarfirði. Það voru
því níu lóðir sem vom í
þeim potti en hinar þrjátíu
og sjö fóm til Hafnfirð-
inga.“ Gunnar segir að
bærinn muni úthluta
hundruðum lóða á
næstu mánuðum og því
sé ekki öll nótt úti enn
fýrir þá sem fengu ekki
lóð. „Meðan reglunum er
ekki breytt fer þetta fram með
þessum hætti. Það á hins veg-
I ar að taka þessar umræður
upp í bæjarráði fljótlega og því
veit maður aldrei hvað gerist,"
segir Gunnar en skiptar skoðanir
em um þessa aðferð sem hefur
verið notuð síðustu þrjú ár. „Það
em þverpólitískar skoðanir um það
hvort eigi að gera þetta svona eða
eftir venjulegu handvali eins
\\ og gert var áður,“ segir
Gunnar.
Hamingjuóskum
rigndi
„Ég er alveg í skýjunum
. . og bjóst alls ekki við
þessu. Það vom margir
sem sóttu um og ég hef
Auðunn Helgason ernýkominn heim úr
atvinnumennsku og dat t i iukkupottinn.
ekki verið heppinn í svona lottói
hingað til," segir Harpa Melsteð
handboltakona úr Haukum sem
fékk úthlutað lóð. „Ég var nú bara á
æfingu þegar þetta fór frarn en fékk
svo helling af sms-um með ham-
ingjuóskum þegar ég kom úr
sturtu.“ Harpa segir að byrja megi í
júní og þá ætli hún að setja allt á fullt
í framkvæmdunum. „Mér finnst
mjög sanngjarnt að þetta sé gert
svona. Hinn almenni borgari á
miklu meiri möguleika og
enginn klíkuskapur ríkir,
ég er allavega mjög sátt
enda fékk ég lóð,“ segir
Harpa Melsteð að lokum.
breki&dv.is
Harpa Melsteð Segir framkvæmdirnar fara
á fullt íjúní.
Gunnar Svavarsson
Bæjarfulltrúinn las upp
nöfn vinningshafanna
I lottóinu á fjölmenn-
um fundi i siðustu viku.
Weishappel fékk ekki lóð
Dregið var í lóðalottóinu í Hafnarfirði
í síðustu viku. Um 1200 manns sóttu
um 46 lóðir og var því hart barist.
Friðrik Weishappel var einn þeirra
sem sóttist eftir lóð en fékk ekki.
Friðrik á og rekur kaffihús í Kaup-
mannahöfn sem einnig er þvottahús
og hefur iíklega verið nokkuð svekkt-
ur yfir drættinum. Lóðirnar sem
úthlutað var eru í Vallahvefinu í Hafn-
■“ arfirði. Bæjarstjórnin ætlar þó að út-
hluta hundruðum lóða á næstu mánuðum og því er ennþá sjéns fyrir
Weishappelinn að komast í Fjörðinn.
Fischer kominn til byggða
Svarthöfði fylgdist glottandi
með komu Fischers til landsins
um helgina. Betra sjónvarpsefni
hefur vart verið boðið upp á síðan
Keikó var fluttur í Klettsvíkina um
árið. Og þó Fischer virtist sigri
hrósandi þegar hann kom út úr
vélinni og sagði nokkur vel valin
orð um gyðinga var Stöð 2 raun-
verulegur sigurvegari kvöldsins.
Reyndar voru nokkur vand-
ræðaleg móment í beinu útsend-
ingunni. Þegar Ingólfur Bjarni fór
að útlista gerð flugvélarinnar og
flughæfni
til að drepa tímann að lending-
unni hefði mátt setja inn auglýs-
ingahlé. Viðtalið við drenginn sem
lýsti því stoltur yfir að hann væri
fiillkomlega sammála skoðunum
Fischers bætti mistökin þó upp.
CNN hafði örugglega rétt fyrir
sér þegar þeir sögðu að Fischer
myndi falla vel í hópinn á íslandi.
Að mati Svarthöfða stóð Stöð 2
sig með sóma. Hún bauð upp á
Hvernig hefur þú það?
Ég hefþað bara þrælgott," segir Ólafur Freyr Númason, hönnunarnemi.„Maður er
aö vinna að annars árs lokaverkefni í skólanum og svo er bara búiö að borða og
njóta lifsins í páskafríinu. Nú maður er líka búinn að hitta andlit sem maður hefur
ekki séö lengi, því ég var fyrir sunnan yfir páskana. Svona er að búa úti á landi, ha.
Annars er að koma sumarstemning sem maður er farinn að finna fyrir, annars er
tíminn svo fljótur aö líða að maður hefur ekkert mikið spáð íhvað liðið er á áriö.
Svo erstefnan sett á Spán í sumarþannig það er uno cervesa innan seilingar."
gott sjónvarp. Svo gott að börn
Svarthöfða göptu þegar þulurinn
sagði alvarlegur við þjóðina að nú
gætu Reykvíkingar örugglega
heyrt vél Fischers nálgast. Fjöl-
skylda Svarthöfða þaut að glugg-
anum og viti menn! Það var hvítur
depill á himninum sem nálgaðist
alveg eins og þulurinn hafði lofað.
Svona á sjónvarp að vera.
En af hverju em menn svona
fúlir? Ekki leigði Auðun Georg
Ólafsson eða Jón Kaldal á Frétta-
blaðinu einkaþotu undir Fischer.
Nei, þeir biðu bara í röðinni eins
og allir aðrir og bjuggust við að fá
fréttina upp í hendurnar. En
heimkoma Fischers er heimsfrétt.
Og vanir fréttamenn eiga að vita
að barist er um slíkar fréttir.
Þess vegna tekur Svarthöfði
hjálminn ofan fyrir Páli Magnús-
syni og félögum. Með þeirra
fréttaflutningi var líkara að jóla-
sveinninn væri að koma til byggða
en geðsjúkur skáksnillingur og
gyðingahatari.
Svarthöföi