Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2005, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005
Fréttir DV
Vilja íþrótta-
hústil adfalla
ekki um deild
Knattspymudeild
Grindavíkur vonast til þess
að fjölnota íþróttahúsi
verði komið upp í bænum
fyrir næstu áramót. Að-
staða til knattspyrnuiðkun-
ar er engin á veturna og
óttast Grindvíkingar að
missa sæti sitt í efstu deild
ef ekki verði úr bætt, að því
er kemur fram hjá Víkur-
fréttum. Málið er til um-
fjöllunar hjá íþrótta- og
æskulýðsnefnd bæjarins og
fer því næst í hendur bæj-
arráðs og bæjarstjórnar.
Treysta
læknum
Sjö af hverjum tíu ís-
lendingum treysta læknum
og öðrum innan heilbrigð-
iskerfisins, samkvæmt
þjóðarpúlsi Gallups. Aðeins
Háskóli fslands hefur betur
hvað traust fólks á opinber-
um stofnunum varðar, eða
86 prósent. Fyrir tveimur
árum sagðist aðeins 61
prósent treysta heilbrigðis-
kerfinu.
Dásemd bar
kiðlingi
Tvævetra huðnan Dá-
semd vann kapphlaupið í
Húsdýragarðinum þegar
hún bar gráflekkóttum
kiðlingi á þriðjudaginn. Alls
voru sex huðnur þungaðar
eftir hafurinn Kappa þegar
hann féll sviplega frá fyrir
skemmstu. Framlag Kappa
er tahð ómetanlegt. Geitur
eru í útrýmingarhættu á ís-
landi og eru um 400 talsins.
Þær eru landnámsdýr og
voru til foma kallaðar kýr fá-
tæka mannsins. Starfsmenn
Húsdýragarðsins fylgjast
grannt með þróun mála hjá
hinum huðnunum fimm.
Þaö
Landsíminn
) er allt gott aö frétta héðan
að austan, nema hvað,"segir
Guðmundur Bjarnason, bæj-
arstjóri í Fjarðabyggð. „Mið vor-
um að skrifa undir samning um
viðbyggingu sundlaugarl Nes-
kaup-
stað í _____________________
þessum
töluðu orðum en annars er
bara allt á fullu hér svo vægt sé
til orða tekið. Vinna við álvers-
höfnina gengur ágætlega og
verður hluti hennar tilbúinn
von bráöar fyrir skipakomur.
Svo erum við að opna nýja
verslunarmiðstöð hér, Molann
svokallaða, um miðjan aprll
þannig að við látum okkur síö-
uren svo ieiðast."
Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir ferð hans og
nokkurra þingmanna til ísraels og Palestínu hafa opnað augu sín fyrir hrikalegu
ástandi fyrir botni Miðjarðarhafs. Magnús fékk að reyna á eigin skinni hvernig
daglegt líf íbúa þar er þegar hann sætti árásum ísraelskra landnema og
múslimskra andspyrnumanna. Segir komið að íslendingum að taka afstöðu gegn
mannréttindabrotum ísraela.
Magnús Þór flúði indan árás
andspyrnumanna öðru sinni
Ferð þingmannanna Guðrúnar ögmundsdóttur, Jónínu Bjart-
marz, Þuríðar Backman, Jóns Bjarnasonar og Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar til Israels og Palestínu mun seint líða fimm-
menningunum úr minni. Hópurinn sætti grjótkasti frá ísraelsk-
um landnemum í upphafi ferðarinnar og Magnús Þór Hafsteins-
son lenti svo í annarri og enn verri stöðu aðfaranótt laugardags
þegar hann hugðist setjast við skriftir á litlu netkaffihúsi í kristna
hverfmu í Jerúsalem.
Dauðskelkaðir Kanar Bandarlskir kaffihúsagestir í kristna hluta Jerúsalem skelfingu lostnir
eftir grjótkast múslimskra andspymumanna á kaffihúsið. Magnús Þór smellti afum það bil
sem fólkið beið þess sem veröa vildi.
„Ég var nýbúinn að fá mér sæti
þarna á kaffihúsinu eftir að hafa
fengið mér gönguferð um kvöldið
og ætlaði að fara að skrifa þegar
skyndilega kvað við hár hvellur,"
sagði Magnús Þór í samtali við DV
í gær; þá kominn heim. Ásamt
Magnúsi Þór voru nokkrir banda-
rískir ferðamenn fyrir á kaffihús-
inu og sagði Magnús skelfingu hafa
gripið um sig meðal gestanna sem
köstuðu sér í gólfið til að verjast
því sem þau töldu að væri skot-
hríð.
Helgur staður Magnús Þór I ferð þing-
mannanna Islensku I al-Asqa moskuna,
næsthelgasta stað múslima. Þar fá alla jafna
ekki aðrir inngöngu en múslimar en sagt er
að Múhameð hafi stigiö til himna úr mosk-
unni.
„Við hópuðumst öll
saman í horni kaffi-
hússins, þarsem við
vorum í raun innikró-
uð, og biðum þess sem
verða vildi. Við áttum í
raun allt eins von á
rúllandi handsprengju
eða skothríð."
Beðið eftir handsprengju
„Hávaðinn var þvílíkur að við
héldum fyrst að einhver hefði skot-
ið á okkur," segir þingmaðurinn.
„Við hópuðumst öll saman í horni
kaffihússins, þar sem við vorum í
raun innikróuð, og biðum þess
sem verða vildi. Við áttum í raun
allt eins von á rúllandi hand-
sprengju eða skothríð enda bar
okkur saman um að við hefðum
heyrt hleypt af byssum þarna fyrir
utan," segir Magnús Þór en þegar
rykið settist á litla netkaffihúsinu
og árásarmennirnir höfðu sig á
brott kom í ljós að grjóti hafði ver-
ið hent inn um rúðu kaffihússins af
miklu afli.
„Þetta var hert öryggisgler
þannig að höggið hefur verið gríð-
arlegt," sagði hann.
Sættu árásum beggja fylk-
inga
Magnús og gestirnir á kaffihús-
inu skriðu fljótlega úr skjóli sínu og
þegar út var komið blasti við að
dekk á bílum höfðu verið skorin
auk þess sem grjótkastararnir
höfðu látið grjóthnullungum rigna
yfir hús og bíla. Árásarmennirnir
voru á bak og burt en þeir voru að
sögn viðstaddra múslimskir and-
spyrnumenn sem dagana á undan
höfðu barist við ísraelska land-
nema en ungir landnemar báru
einmitt ábyrgð á grjótkasti á ís-
lensku þingmannasendinefndina.
„Þessi uppákoma, líkt og sú
fyrri, var í raun enn eitt ljóslifandi
dæmið um ástandið fyrir botni
Miðjarðarhafs; sem ég held að hafi
sýnt sig í ferð okkar að er mun
verra en við héldum og er fjarri því
í friðarátt. Íraksstríðið og innrásin í
Afganistan hafa einfaldlega dregið
athygli heimsins frá þessu svæði,"
segir hann.
Yfirgangur ísraela hræðilegur
Magnús segir mannréttindabrot
ísraelskra yfirvalda á Palestínu-
mönnum óverjandi með öllu.
Þannig séu enn í gildi svokölluð
hryðjuverkalög sem gefi ísraelum
rétt til að handtaka og hafa í haldi
Palestínumenn í allt að sex mánuði
án ákæru. Magnús kveðst þannig
hafa hitt palestínskan mann sem sex
sinnum var fangelsaður á þennan
hátt. Enn fremur brjóti ísraelar víða
alþjóðasamþykktir með framgöngu
sinni við Palestínumenn.
„Listi mannréttindabrota ísraels-
manna gegn Palestínumönnum er
langur og lengist enn meðan þrýst-
ingur alþjóðasamfélagsins er ekki
fyrir hendi, múrinn sem nú er
byggður í trássi við alþjóðalög er gott
dæmi um það," sagði Magnús í gær,
þá nýkominn heim á Akranes - í
skjól fyrir grjótakasti og sprenging-
um. heigi@dv.is
Rannsókn um reykingar á meðgöngu
Austurrískur teiknari ekki fyrir Grikki
Reykjandi mæður
eignast heimskari börn
Verðandi mæður sem reykja eiga á
hættu að eignast börn með lægri
greindarvísitölu en þær sem ekki
reykja. Þetta em niðurstöður nýrrar
danskrar rannsóknar þar sem 3000
ungir danskir karlmenn vom greind-
arvísitöluprófaðir um leið og reyk-
ingavenjur mæðra þeirra við með-
göngu vom kannaðar.
Inge Haunstmp Clemmensen,
einn læknanna sem stóð að könnun-
inni, segir niðurstöðumar skelfilegar.
Hann bendir á að lengi hafi verið vit-
að að reykingar á meðgöngu hefðu
áhrif á vöxt barna síðar meir. En hing-
að til hafi það ekki átt við gáfnafar
barnanna. Talið er að efhi í reyknum
hafi áhrif á miðtaugakerfi fóstursins
og valdi þar skaða sem hafi áhrif á
Reykurinn Ijúfi Tóbaksreykur er mörgum
lífsnauðsyn en ætti ekki að vera innbyrtur af
ófrískum konum.
greind. Inge Haunstmp segir þetta þó
í samhengi við þá reglu að gefa ólétt-
um konum aldrei lyf nema það sé
algerlega nauðsynlegt, þar sem það
getur eitrað fyrir fóstrinu.
Talið er að tvær af hverjum tíu
óléttum konum í Danmörku reyki á
meðgöngu og því má ætla að um 20
prósent Dana séu heimskari en þeir
ættu að vera.
Guðlast að gantast
með Jesú
Það borgar sig ekki að gera gys að
Frelsaranum eins og austurríski
teiknarinn Gerhard Haderer gerði
sér grein fyrir þegar teiknimynda-
bók hans, Lífjesú (þ. Das Leben des
Jesus), var gefin út í Grikklandi.
Hann hefur nú verið ákærður fyrir
guðlast og, ef dæmdur sekur, kann
að verða dæmdur í fangelsi. í bók-
inni em gamansamar teikningar af
Jesú við mismunandi iðju, til að
mynda að reykja jónu og á brim-
bretti á Genesaretvatninu.
Gerhard hafði ekki hugmynd um
að verið væri að gefa út bók hans í
Grikklandi fyrr en hann fékk kvaðn-
ingu fyrir rétt á Grikklandi. Teikn-
ingar í bókinni hafa farið svo illa
Gerhard Haderer Fer hann Igrískt fangelsi
fyrir að gera góðlátlegt grín að Messlasi?
fyrir brjóstið á Grikkjum að svo gæti
farið að Líf Jesú verði fyrsta bókin í
tuttugu ár sem er bönnuð á Grikk-
landi.
Málið hefur vakið umrót meðal
rithöfunda og ljóðskálda í Evrópu og
búið er að ýta úr vör undirskrifta-
söfnun til stuðnings Gerhard.