Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2005, Side 13
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 13
Lifði fall úr
fjalli
Tékknesknr maður lifði
á ótrúlegan hátt af að falla
300 metra niður fjallshlíð.
Maðurinn, Martin Tlusty
sem er 20 ára, var að ganga
með félögum sínum í Las
Tatras-fjallahryggnum í
Slóvakíu þegar atvikið átti
sér stað. Að sögn Martins
rúllaði hann í snjó, ís og
grjóti og tók ekki eftir öðru.
Læknar sem tóku á móti
Martin sögðu hann einung-
is hafa hlotið smá skurði og
mar og jafnaði hann sig
fljótt. Sjálfur sagðist hann
ætla beint aftur í fjöllin
þegar hann væri búinn að
ná sér að fullu.
Giftist leirkeri
Indversk brúður var gef-
in leirkeri þegar ljóst varð
að brúðguminn myndi ekki
mæta í brúðkaupið. Brúð-
urin, Savita, fór með brúð-
kaupsheit sín við leirkerið
eftir að tilkynnt hafði verið
að tilvonandi eiginmaður
hennar, sem starfar sem
landamæravörður við
landamæri Tíbets og Ind-
lands, væri veðurtepptur
við landamærin vegna mik-
illar snjókomu. Savita sam-
þykkti að nota leirpottinn
með mynd af Chaman
Singh, eiginmanninum, við
hlið hans.
Seinheppinn
föskuþjofur
Kínverskur töskuþjófur
valdi vitlaust fómarlamb
fyrir stuttu. Hann gaf sig á
tal við stúlku í verslunar-
leiðangri undir því yfir-
skini að ráða hana til
starfa hjá fyrirtæki sínu.
Þegar þau vom nýsest
niður á kaffihúsi greip
þjófurinn tækifærið og
rauk í burtu með töskuna.
Honum til skelfingar sá
hann stúlkuna þjóta á eftir
sér á miklum hraða. Hans
mistök vom þau að reyna
að ræna tösku af Chu
WeiWei, keppniskonu í
sprettlilaupum.
Lottófé í
fiðurfé
Þýskur dúfnavinur hefur
ákveðið að eyða hluta
stærsta lottóvinnings sem í
boði hefur verið í Þýska-
landi í að byggja stærsta
dúfnakofa í heimi. Maður-
inn, sem ekki vill láta naffis
sffis getið, vann sem nemur
um einum og hálfum millj-
arði króna. Haft var eftir
honum að hann ætlaði að
kaupa sér skika úti í sveit til
að byggja dúffiakofann og
rækta þar dúfur án þess að
angra nágranna. Vinnings-
hafinn er tveggja bama faðir
og býr með fjölskyldu sinni í
KtiUi leigmbúð í blokk.
Reykur frá líkbrennslunni í Fossvogskirkju
Líkin brennd um miðjan dag
„Þetta er rétt og fyrir bragðið ráð-
gemm við að fara að brenna líkin
um nætur þegar leikskólinn er lok-
aður,“ sagði Sigurjón Jónasson,
rekstrarstjóri kirkjugarðanna, í janú-
ar 2004 þegar fjallað var um reyk
sem bærist yfir leikskóla í nágrenn-
inu. Fram kom í fréttinni að mikill
óhugur væri meðal barna og for-
eldra þeirra því vitað væri að reykur-
inn kæmi frá líkbrennslunni.
í síðustu viku var hins vegar verið
að brenna lík um miðjan dag því
mikill reykur kom frá brennslunni.
Það er rúmt ár síðan ákveðið var að
gera þetta að næturlagi en raunin
virðist vera önnur.
Sigurjón sagði ýmsar ástæður
valda reyknum sem í raun og vem
ætti ekki að myndast. Hann sagði
efni í kistunum eða jafnvel lyfjagjöf
til þeirra sem brenndir væm valda
reyknum. „Það er eins og ekki sé
sama hvern er verið að brenna,"
sagði Sigurjón þá.
Mikil lykt mun fylgja reyknum
sem einhver lýsti sem súrri sviða-
lykt.
Lík em brennd við 6-700°C hita
og kemur mestur reykur af fyrstu
brennslu dagsins. Fullheitur virkar
ofninn betur. Því verður nú meðal
annars gripið til þess ráðs að brenna
lík um nætur.
Reykur frá líkbrennslunni Enn eru lík brennd um miðjan dag þótt rekstrarstjóri kirkjugarð-
anna hafi sagt fyrir rúmu ári að brennsturnar ætti að framkvæma að næturlagi.
BETRI HRINGBRAUT
TÍMABUNDIN LOKUN
NJARÐARGÖTU
29. mars - 20. apríl 200í.
Njarðargötu, frá Hringbraut ogVatnsmýrarvegi að Sturlugötu,
verður lokað vegna framkvæmda við færslu Hringbrautar
29. mars -20. apríl 2005.
Ibúum í Skerjafirði og öðrum vegfarendum er bent á að fara
um Hringbraut og Suðurgötu á meðan lokunin stenduryfir
Aðkoma að Umferðarmiðstöð (BSI) verður frá Bústaðavegi.
Beðist er velvirðingar á óþægindum sem lokunin kann að valda.Tekið er við
ábendingum um það sem betur má fara við framkvæmdina í síma 563 2510.
Nánari upplýsingar á www.rvk.is/fs
Reykjavíkurborg
Framkvæmdasvið
VEGAGERÐIN