Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2005, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005
Sport W
Birkir ívar Guð-
mundsson og
Björgvin Páil Gúst-
avsson léku báöir
mjög vel meö ís-
lenska landsliöinu
yfir páskana. Á
lokadeginum
kórónuðu þeir
frammistöðu sína.
57 íslensk varin skol
Markverðirnir risu upp um páskana
ver hér eitt af þeim
Páll Gústavsson
n tók frá austurrlsku landsliOs-
ik 21 árs liðsins I Laugardalshólhnm
DV-mynd Pjetur
um páskahelgina.
Það hefur verið löngum talað um að í íslenskan handbolta vanti
markmenn og það hafi oft á tíðum staðið íslenska hand-
boltalandsliðinu fyrir þrifum. Engar slíkar gagnrýnisraddir
heyrðust þó um helgina enda voru markverðir íslensku landslið-
anna tveggja í miklu stuði í leikjunum og áttu mikinn þátt í því
að ísland vann fimm af sex landsleikjum sínum þessa þrjá daga.
Markverðir íslensku liðanna vörðu alls 137 skot yfir helgina eða
44% skotanna sem á þá komu og 22,8 skot að meðaltali í leik.
Viggó Sigurðsson hefur eftir helg-
ina yfir að ráða tveimur frábærum
markvörðum ef marka má frammi-
stöðu þeirra Birkis ívars Guðmunds-
sonar með A-landsliðinu og Björg-
vins Páls Gústavssonar með 21 árs
landsliðinu. Saman sýndu þeir
markvörslu í heimsklassa og sáu til
þess að uppskera helgarinnar var
ánægjuleg.
Lokadagurinn var samt ótrú-
legur. Fyrst lokaði Björgvin Páll
marki sínu fyrir lánlausar skyttur
austurríska unglingalandsliðsins
sem misnotuðu alls 53 skot í
leiknum þvl auk þeirra 36 sem
Björgvin Páll stoppaði þá fóru með-
al annars sjö skot í slagverkið og
önnur fimm í íslenska varnarvegg-
inn. Björgvin varði 22 af skotum sín-
um í seinni hálfleik og þá komu 5 af
15 mörkum austurríska liðsins úr
hraðaupphlaupum en á meðan
varði HK-ingurinn lipri nær öll skot
frá austurrísku skyttunum sem sáu á
löngum stundum engar leiðir færar
fram hjá stráknum úr Digranesinu.
Kaflaskipt tímabil
Björgvin Páll byrjaði ekki fyrsta
leikinn gegn Hollendingum en kom
inn á í hálfleik og leit ekki til baka
eftir það. Þetta tímabil hefitr verið
kaflaskipt hjá honum en Björgvin
hefur átt mjög góða leiki í vetur og
svo misst dampinn inn á milli. Fyrir
vikið hefur hann ekki komist inn í
myndina hjá nýja landsliðsþjálfar-
anum.
Það vlll nú svo til að Viggó Sig-
urðsson þjálfar einnig unglinga-
landsliðið og fékk þvf frábæra
frammistöðu Björgvins Páls um
helgina beint í æð. Strákurinn ætti
því að öllu jöfnu að fá aftur tækifæri
með íslenska landsliðinu á næstu
mánuðum.
í A-landsleiknum á eftir varði
Birkir ívar Guðmundsson hvað eftir
annað á mikilvægum tímapunktum
í eins marks sigri íslenska liðsins og
tók á endanum alls 21 skot, þar af
tvö víti. Birkir ívar varði mjög jafnt
yfir allan leikinn og sýndi með þess-
um stöðugleika um helgina að hann
hefur nýtt sér vel langþráð traust
landsliðsþjálfarans Viggó Sigurðs-
son sem er sá fyrsti sem hefur gefið
Birki ívari tækifæri til þess að fóta sig
með landsliðinu.
Sjálfstraust frá Viggó
Allt frá dögum Þorbjörns Jens-
sonar í landsliðsþjálfarastólnum
þegar Birkir ívar fékk sín fyrstu tæki-
færi með landsliðinu hefur hann í
raun aldrei fengið það vinnu-
umhverfi sem hann greinilega þurfti
til þess að ná upp nægjanlegu sjálfs-
trausti og öryggi um hlutverk sitt í
liðinu. Þessu hefur Viggó breytt,
Birkir ívar stóð sig vel í Túnis og enn
betur í þessum landsleikjum við Pól-
verja og hefur fest sig í sessi sem
aðalmarkvörður íslenska liðsins.
Þaðeralla vegaljóst
að markvarslan er
ekki lengur vandamál
íslensku liðanna því
þarliggur nú
einn af
styrkleik-
umlið-
anna.
Roland Valur Eradze lék ekkert um
helgina vegna meiðsla en er góð við-
bót við markvarðarhópinn og sam-
an ættu hann, Birkir ívar og Björgvin
að geta myndað sterkt markvarða-
teymi
íslensku markverðirnir vörðu
samtals 57 skot á páskadag og það er
örugglega einsdæmi í sögu íslensku
landsliðanna. Það er líka ljóst að
markvarslan er ekki lengur vanda-
mál íslensku liðanna því þar liggur
nú einn af styrkleikum liðanna þökk
sé upprisu þeirra Birkis ívars Guð-
mundssonar og Björgvins Páls Gúst-
avssonar. Tilkoma Bergsveins
Bergsveinssonar í starf aðstoðar-
þjálfara Viggós hefur greinilega haft
mjög jákvæð áhrif á markverði
liðsins sem eru orðnir lykilmenn í
íslensku landsliðunum. ooj@dv.is
BIRKIR IVAR UM HELGINA
Birkir Ivar <
vel með íslensk
vináttulandsleikjunum (
Pólverjum eða alls 58 sk
leikjunum þremu
Markvarsla e
1. lelkur 28 varin/2 viti (47%)
2. lelkur 9 varin/O víti (38%)
3. leikur 21 varin/2 víti (41%)
Mai
Langskot
Gegnui
Hom
L(na
Hraðaupphl.
Vltl
Samtals
27 varin (64%)
9 varin (38%>
8 varin (40%)
6 varin (20%)
58 varin (43%)