Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Page 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 3 Alþýðuhetjan Agnes Agnes Bragadóttir blaða- maður Erhérá skrifstofu sinni „Það má nú segja að ég sé að niðurlotum komin,“ segir Agnes Bragadóttir sem er mað- ur vikunnar að þessu sinni. Agnes hefur með skrifum sínum um sölu Símans vakið upp eldmóð hjá þúsundum ís- lendinga sem vilja eignast hlut í því sem þeir réttilega éiga. Þúsundum tölvupósta hefur rignt yfir Ag- nesi og Maður vikunnar í. u -í--. —m i j)egar hafa hundruð lýst sig reiðubúin að leggja fram fé til að tryggja að Síminn haldist meðal þjóðarinnar. „Þetta er ofboðslega skemmtilegt, adrena- línið streymir um æðarnar og þó maður sé þreyttur hlýtur maður að jafna sig á því,“ seg- ir Agnes. „Auðvitað kom þetta mér í opna skjöldu en eftir á að hyggja er kannski ekki skrýtið að þetta hitti svona í mark. Af þessum þúsundum tölvupósta sem ég fæ segja flestir: Þú skrifaðir það sem við vorum að hugsa. Svo kannski var ég bara á réttum tíma þó þetta sé náttúrlega nýlunda fyrir mig.“ Nýlunda því Agnes er vanalega hinum megin borðsins. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir blaðamennsku og oftar en ekki grafið upp mál sem skóku þjóðina. Nú er hún í hlutverki fréttaefnisins en ekki fréttamanns- ins. „Manni finnst þetta nánast fáránlegt. Ég hef áður unnið sem talsmaður friðargæsl- unnar á Sri Lanka og talað í útvarpi og sjón- varpi en það var allt annað hlutverk. Ég var bara talsmaður en ekki fréttaefnið. Nú þegar kastljósið beinist að mér h'ður mér nánast eins og umskiptingi!" En verður þetta þá ekki minnisstæð vika fyrir hörkukvendið Agnesi Bragadóttur? „Ég vona nú að það verði meiri hasar í næstu viku,“ segir hún og hlær. Spurning dagsins Hvernig lýst þér á Hildi Völu og Stuðmenn? Frábær söngkona sem á skilið þetta tækifæri „Mér líst mjög vel á þaö, hún er frábær söngkona og ég er sáttur við að hún fái þetta tækifæri, þó maður sakni Röggu hefðu þeir getað gert verr." Guðmundur Einarsson sjómaður. „Mér líst ekki vel á það því mér fannst Ragga Gísla betri." Þóra Lilja Ragnarsdótt- ir, nemandi íVersló. „Bara ágæt- lega, bara nokkuð fínt þó maður hefði vilja að Ragga Gísla héldi áfram." Matthías Árni Ingimarsson, verðandi nemi. „Mér líst bara ágætlega á það þó hún sé alls ekki betri en Ragga Gísla þáerþetta gott fyrir fram- haldið." Vilhjálmur Halldórsson nemi. „Mér líst rosa- lega vel á það, það er frábært að fá hana þó hún verði aldrei önnur Ragga. Hún á eftirað standa sig vel." Þóra Guðjónsdóttir félags- ráðgjafi. Það kom mörgum á óvart þegar tilkynnt var um nýja söngkonu Stuðmanna á dögunum eftir að Ragnhildur Gísladóttir ákvað að leggja míkrafóninn á hilluna með hljómsveitinni, en í hennar stað mun Idolstjarnan HildurVala Einarsdóttir koma. Kátir nemar ÞrösturLeó og bekkjarféiagar hans úr leiklistarskólanum við Tjörnina í apríl 1984. „Þarna vorum við á þriðja árinu okkar í leiklistarskólanum og við vorum að fara að frumsýna Reykjavik er perla, ef ég man rétt. Þetta var árið 1984,“ segir Þröstur Leó Gunnarsson leikari. Hann segir þetta hafa verið svakalegt fjör og gekk leikritið svo vel að það var tek-’ ið upp fyrir sjónvarpið. „Það var mikill galsi í okkur þama, rosalegur spenningur líka A6 fá börnin Að fábörnin eríagt um það þegar einhver fær restar ef einhverju, til dæmis dreggjarnar úr könnu eða flösku. Orðasambandið er fengið úrheyskaparmáli. Það síðasta afrifgörðum í heyflekk kall- aðist börn og að fá börnin var sagt um þá sem lentu í að raka þessar leifar saman. Málið Gamla myndin fýrir að fara í fýrsta sinn í sjón- varpið," segir Þröstur. Um þessar mundir leikur hann í Koddamann- inum sem er nýfrumsýndur og líka í Edith Piaf sem gengur fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu. ÞAÐ ER STAÐREYND.. að ekkert efni sem berst inn fyrir jóndeild svarthols i geimnum á þaðan afturkvæmt. .Rólegheitin íSeðla- ÉMn bankanum höfðu þó sinar jákvæðu hliðar. Vgg V Ég hafði betri tima en Wb \ nokkru sinni fyrr til að * sinna áhugamálum minum og fjölskyldu. Ég fór að spila golfog fékk tíma til að sinna skógræktinni i Borgarfirði..." Steingrimur Hermannsson segir frá „rólegu" árunum i Seðlabankanum i ævisögu sinni. ÞEIR ERU BRÆÐUR Kjaftaskurinn & trommarinn Andri Freyr Viðarsson, útvarpsmaður á X-FM ogáður X-inu 977, eryngri bróðir Birkis 5 Fjalars Viðarssonar, fyrrum trommara Stjörhukisa og söngvara i I Adapt. Andri og Birkir eru synir Viðars Júlís Ingólfsson- ar, bifreiðastjóra og plötusnúðs á Reyðar- firði, og Unnar Ölversdóttur, skrifstofukonu og fyrrverandi handavinnukennara í Reykjavík. Birkir dvelur nú við hjálparstörf djúpt i frumskógum Kosta Rlka þar semhann aðstoðar meðal annars munaðarlaus börn en Andri brúkar munn og míkrafón íútvarpsþættinum Capone. Bræðurnir voru um tíma ísömu hljómsveit, Bisund, sem var íöðru sæti Músíktilrauna Tónabæjar árið 1998. STEINAR WAAGE > SANDALAR 1STIGVEL ■ UNGBARNASTRIGASKÓR MIKIÐ ÚRVAL AF BARNASKÓM BALLERINA • STRIGASKOR KRINGLUNNI - S: 568 9212

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.