Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Side 11
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 11 Óvænt for- mannsefni Á miðvikudagskvöldið var haldinn aðalfundur Starfsmannafélags Suður- nesja (STFS) þar sem kosið var í trúnaðaremb- ætti hjá félaginu. Athygli vakti að sitjandi formanni, Ragnari Emi Péturssyni, barst mótframboð frá Brynj- ari Harðarsyni sem er starfs- maður í einum grunnskóla bæjarins. Eitt hundrað og tuttugu manns mættu á fundinn og féllu atkvæði á þann veg að 5 skiluðu auðu, 45 kusu Brynjar og 70 veittu Ragnari Emi áframhaldandi formennsku. Sitjandi með- stjómendur og varastjóm var öO endurkjörin án mót- framboða. Vogar í Hafnarfjörð Lögð hefur verið fram tillaga um að greidd skuli at- kvæði um sam- einingu Hafn- arfjarðar og Vatnsleysu- strandarhrepps eigi síðar en 8. október næst- komandi. Þetta kom ffam í bréfi frá nefnd um sameiningu sveitarfé- laga sem lagt var fram á fundi bæjarráðs Hafnar- fjarðar í vikunni. Bæjarráð samþykkti að vísa málinu til bæjarstjómar og mæla með skipun tveggja fulitrúa í samstarfsnefnd með fulltrú- um Vatnsleysustrandar- hrepps vegna undirbúnings og sldpulags fyrir kosning- una. Skipstjóri svekktur eftir að stórslasaður sjómaður beið í átta tíma eftir læknishjálp „Atvik eins og þetta minnir okkur á að við megum ekki sofna á verðinum," segir Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri hjá Land- helgisgæslunni Vegna reglna um hvúdartíma gat þyrla Landhelgisgæslunar ekki sótt stórslasaðan sjómann um borð í togarann Snorra Sturlusson VE sem var við veiðar um hundrað mílur vestur af Vestmannaeyjum um síð- ustu helgi. Áhöfn þyrlunnar hafði ver- ið við æfingar og var búin að sprengja leyfilegan flugtíma og því þurfti að kalla til þyrlu varnarliðsins. Átta tíma tók í það heila að koma sjómannin- um, Sigurði Árna Tryggvasyni, undir læknishendur. Kristinn Gestsson, skip- stjóri á Snorra Sturlusyni segir þetta allt of langan tíma. Ekki sé hægt að bjóða ungum mönn- um, sem skilja við fjöl- skyldu sína og vini tll að stunda sjóinn, upp á at- vinnuörygi af þessari gerð. Undir þetta tekur Ben- óný Ás- geirsson hjá Landhelgisgæsluni. „Þetta er ekki óskastaða," segir hann og bendir á að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem ekki er hægt að verða við ósk um aðstoð vegna reglna um hvíldartíma: „Auðvitað er hægt að leita til vam- arliðsins en viðbragðstími þeirra er mun lengri en hjá okkur. Auk þess er erfitt fyrir okkur að vera beiningar- menn þeirra. Landhelgisgæslan ætti að vera í stakk búin til að takast á við útköll hvenær sem er.“ Benóný segir að til þess að það verði hægt þurfi að manna þyrlu gæslunnar með aukaáhöfn sem gæti þá verið kölluð út við aðstæður eins og þeim sem sköp uðust síðustu helgi. Sævar Gunnarsson formaður Sjó- mannasam- bandsins segir að það sé með öllu óásætt- anlegt að sjó- maður sem slasist við vinnu sínu þurfi að þrauka sárkvalinn í átta tíma áður en hann kemst undir læknis- hendur. „Þetta er ófullnægjandi þjónusta við sjómenn þessa lands og nauðsynlegt að bæta úr þessu hið fyrsta," segir Sævar og bendir á að það sé erfitt fýrir aðstandendur sjó- manna að vita til þess að ör- yggismál þeirra séu í jafii miklum ólestri og raun beri vitni. andri@dv.is TF-LÍF Gatekki bjargað sjómanninum vegna regina um hvildartíma. Sævar Gunnarsson Formaður Sjómannasambandsins segir Land- helgisgæsluna veita sjómönnum ófuiinægjandi þjónustu. Sigurður Árni Tryggvason Sjó maðuráSnorraSturlusyniVE stórslasaðist og þurfti að bíða i átta tíma eftir læknishjálp. AburdoruerRsmidjon Er garðurinn þinn áburðarþurfi? Beinn sími söludeildar: 580 3232 www.aburdur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.