Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Qupperneq 21
DV Sport
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2004 21
Veigar Páll Gunnarsson er óðum að festa sig í sessi hjá liði sínu Stabæk í Noregi og nú er orðið kristal-
ljóst að hann mun ekki spila á íslandi í sumar. Hann hefur verið í finu formi í æfingaleikjum liðsins að
undanförnu og í fyrsta leik tímabilsins um helgina hélt hann uppteknum hætti og skoraði gott mark.
„Ég fer ekki leynt með það að á ákveðnum tíma var ég að reyna
að komast heim, en nú er ljóst að ég verð hér í að minnsta kosti
ár í viðbót,” segir Veigar Páll Gunnarsson, knattspyrnumaður
hjá Stabæk í Noregi sem nú spilar í 1. deildinni þar í landi eftir
að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á síðasta ári. Mörg íslensk lið
voru á höttunum á eftir Veigari í vetur þar sem vitað var að hann
væri ekki sérlega spenntur fyrir því að leika í norsku 1. deildinni
en nú kveðst hann vera búinn að sætta sig við að vera áfram hjá
Stabæk þar sem markmiðið er einfalt - að komast strax aftur upp
í efstu deild í Noregi.
Veigar segir ýmislegt til í því að
Stabæk hafi skellt á hann fáránlega
háum verðmiða sem hafi fælt frá
íslensku liðin sem voru á eftir hon-
um. Var upphæðin í því samhengi
sögð nema allt að 10 milljónum
króna, verð sem jafnvel fjársterkustu
félög íslands, KR, FH og Valur, voru
ekki tilbúin að reiða fram.
„Það er rétt að þeir vildu fá eitt-
hvað fyrir mig sem er kannski alveg
eðlilegt því ég er samningsbundinn
liðinu. En aðalástæðan var samt sú
að þeir sögðust ætla að nota mig. Og
þeir eru að standa við það, þjálfar-
inn hefur fulla trú á mér og lítur á
mig sem byrjunarliðsmann. Það
gengur rosalega vel núna og ég er að
finna mig vel,“ segir Veigar Páll sem
hefur verið að leika sem annar fram-
herjinn í leikkerfinu 4-4-2 hjá Sta-
bæk. Hann skoraði nokkuð grimmt í
æfingaleikjum Stabæk fyrir tímabil-
ið og í fyrstu umferð deildarinnar
sem fram fór um helgina hélt Veigar
Páll uppteknum hætti og skoraði
fyrra markið í 2-2 jafntefli gegn
Bryne.
„Okkur gekk mjög vel í æfinga-
leikjunum og það ríkir mikil bjart-
sýni fyrir tímabihð. Við vorum að
keppa gegn sænskum úrvalsdeildar-
liðum og hðum í efstu deUd á Noregi
og höfum verið að vinna marga leiki.
Af 14 æfingaleikjum erum við aðeins
búnir að tapa tveimur," segir Veigar
PáU.
Ætlum okkur beint aftur upp
Stabæk er spáð efsta sæti í
norsku 1. deUdinni af flestum norsk-
um fjölmiðlum og telja þeir Uðið,
ásamt Sogndal sem einnig féU úr
efstu deUd á síðustu leiktíð, búa yfir
miklum yfirburðum hvað varðar
mannskap. „Ég held að það sé ýmis-
legt tU í því og ef aUt er eðUlegt eig-
um við að komast beint aftur upp.
„Það gengur rosalega
vel núna og ég er að
finna mig vel."
Það er klárlega markmiðið."
Veigar PáU á tvö ár eftir af samn-
ingi sínum við Stabæk sem gæti
reyndar breyst fari svo að félagið nái
ekki að vinna sér sæti í efstu deUd á
á þessari leUctíð. „Það má segja að
félagið tjaldi öUu tU núna og ef félag-
ið kemst ekki upp þá má gera ráð
fyrir að það verði að leysa einhverja
leikmenn undan samningi vegna
fjárhagslegra ástæðna. Þá er líklegt
að ég verði einn þeirra leikmanna,"
segh Veigar en bætir því við að hann
hugsi h'tið sem ekkert um þau mál.
„Nú reyni ég bara að hjálpa Stabæk
eftir fremsta megni að komast í efstu
deUd á ný.“
Vill í landsliðið á ný
Veigar PáU viðurkennir að það
hafi nokkra ókosti í för með sér að
spUa ekki í efstu deUd í Noregi. Það
komi honum vissulega ekki tU góða
þegar kemur að vah á landsUðinu og
virtist Veigar tU að mynda ekki vera
inni í myndinni hjá landsUðsþjálfur-
unum fýrir leUdna gegn Króatíu og
ítahu á dögunum. „En ég hef að sjálf-
sögðu ekki gefið landsUðssætið upp á
bátinn. 1. deUdin í Noregi er bara
nokkuð sterk og ég tel að hún sé
heldur betri en LandsbankadeUdin
heima á íslandi," segir Veigar og bæt-
ir við í léttum tón að þetta Stabæk-Uð
myndi sennUega vinna Uð KR.
„Ég er enn sami leikmaður og ég
var hjá KR á sínum tíma og ekkert
verri í fótbolta þótt ég sé að spUa í
lakari deUd en í fyrra. Ég er Iaus við
meiðsU og er í toppformi."
vignir@dv.is
„Ég hefað sjálfsögðu ekki gefið landsliðssætið
upp á bátinn. 1. deildin í Noregi er bara nokk-
uð sterk og ég tel að hún sé heldur betri en
Landsbankadeildin heima á íslandi."
Veigar Páll Nýtur
llfsins I byrjunar-
liðinu hjá Stabæk
og er ekki á leið I
íslensku knatt-
spyrnuna í sumar.
aluöru fjallahjól
1000 kr. afsláttur af öllum hjálmum
verð núna frá 1.990 kr.
Gripshift
[Alstell 6061)
Rockadile AL
19.900 kr.
untour 75 mm
Shimano C051
Meö öllum Mongoose alvöru
fjallahjólum fylgir standari
keðjuhlíf og bjalla
álstell 60611 Suntourframdempari 75mmlShimano 21 gírar |
Argerð BOOS
MOTO Micro 12'
Argerð SOCDS
MOTO Micro 16'
__( 12.900 kr)
www„ gap. is
farðu inn á gap.is og skoðadu
tiiboð dagsins