Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Qupperneq 39
X2V Síðasten ekkisíst FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 39 Veruleikaflakk í litlu hvítu húsi, umkringdu trjám, í fáránlegum bratta og með óviðjafnanlegu útsýni yfir Los Ang- eles eru nokkrir íslendingar - þetta er fondúpartí. Gestgjafinn er skeggjaður Kanadamaður, leik- stjóri tveggja þekktustu tónlistar- myndbanda Sigur rósar, íslending- arnir eru með það á hreinu og það vekur ákveðna virðingu í þeirra hópi. Samkynhneigðir knatt- spyrnudrengir og börn með gas- grímur. Úti í horni stendur mjó- sleginn ungur maður með rautt afró og þeytir skífum, rétta týpan fýrir svona samkomur, smellpassar við fondúið. Ung kona af mexíkóskum ættum hleypur um til þess að finna innstungu fyrir lítið silfurlitað strobe-ljós. í loftinu er sterkur keimur af ilmkertum og reykelsum, án þess að nokkur reyk- elsi séu sjáanleg. Blandaður hópur íslendingar, Kanadamenn, Mexíkómenn, þrekinn dökkhærður strákur ff á New York sem heldur því fram að hann sé kafari og vinni við að planta gróðri í sjávarbotninn úti fýrir borginni (það taka hann allir Kjallari Þorsteinn Guðmundsson minglaði yfir í Los Angeles. trúanlegan enda hefur enginn áhuga á því að setja spurningar- merki við afrekaskrá viðstaddra, það gæti endað með ósköpum, samanburði sem enginn gæti komið vel út úr, beinlínis vandræðalegt). Hér eru allir afkomkendur hipp- anna og nógu gamlir til þess að vera búnir að velja sér svöl lrfsgildi, menn eru andlega tengdir og kannski aðeins þannig, aldrei þessu vant fyrir frændglaða íslendingana. Menn eru sammála um að fondúið sé frábært, íslendingarnir eru hrif- næmir og láta sér vel lrka að éta nautakjötsbitana nánast hráa, þeir eru vel marineraðir hvort sem er, það kemur út á eitt. Til hvers að elda allt til dauða? Glaðlegur hópur Guffalegur myndatökumaður Þarna er enginn bein- línis feiminn, þrátt fyrir að þetta sé húsið sem David Carradine, stórstjarna 8. ára- tugarins, byggði og bjó í þar til það brann og var endurbyggt. gengur um í partíinu og skammar menn fyrir að mingla ekki nógu mikið, ekki nógu mikið sko. Það er tekið til greina og hóparnir leysast upp og mynda nýja hópa. Þarna er enginn beinlínis feiminn, þrátt fyrir að þetta sé húsið sem David Carra- dine, stórstjama 8. áratugarins, byggði og bjó í þar til það brann og var endurbyggt. Leikarinn horfir yfir mislitan hópinn af skjáborði far- tölvu, auðvitað Apple, annað kemur ekki til greina. Jákvæður hópur Enginn talar beinh'nis um Kanada en allir éruá leiðinni til ís- lands. Einhver er meira að segja svo frægur að hafa komið þangað og látið allsherjargoða gifta sig (goð- inn var víst drullufullur allan tím- ann). Þegar fslendingurinn kveður býður hann gestgjafanum að líta við á heimili sínu í ofanverðum Þingholtunum. Sá fúlskeggjaði hristist allur eins og Friðrik Þór eða fyndinn skúnkur í Disney mynd og íslendingurinn áttar sig ekki alveg á viðbrögðunum. Hann varar bangsapabba við því að íbúðin heima sé lítil en það virðist frekar auka áhuga Kanadamannsins en hitt. Hann er líklega hrifinn af litl- um íbúðum. Einnota hópur Þessi hópur kemur aldrei aftur saman, það væri áþreifanlega úti- lokað. En íslendingurinn er feginn því að hafa ekki lent í partíi með fólkinu sem hann hafði séð í sjón- varpinu frá því að hann lærði að horfa, velúthtandi, þroskaheftum Hollywood-stjörnum og þetta með fondúið er eitthvað sem allir koma til með að apa eftir þegar heim er komið, þó ekki væri nema til að gleðja íslenskar eiginkonur sem eru smekklegar. Það er fleira til í þess- um heimi en Hollywood og Þing- holtin. Jakob Bjarnar Grétarsson • Sögusagnir eru á kreiki um alvarlegan ágreining ínnan Stuðmanna. Þessar hugmyndir byggja á því að svo virðist sem Ragnhildur Gísladóttir hafi yfir- gefið hljómsveitina óvænt og Egill Ólafsson fór að því er virðist fyrir- varalaust til Spánar á spænskunám- skeið. Stuðmenn aflýstu með litlum fyrirvara einhverjum verkefnum, svo sem því að koma fram á árshá- tíð 365. Þá mun Fréttablaðið hafa komið óþægilega við ýmsan Stuð- mannaaðdáandann á mánudag með frásögn af því að Egill hafi aldrei hitt hinn nýjan hðsmann, Hildi Völu, stelpuna sem sigraði Idol-sönkeppnina... A morgun Nokkur vindur Strekkingur /Sumarið nálgast óðfluga Iog hiti er víðast yfir I .frostmarki og nær allt ^að átta gráðum. Þó verður vindasamt og sunn- an heiða verður meira að segja vætusamt. Sem sagt ekkert útivistarveður en þó verður betra fyrir norðan. Það er þó bót í máli að hit- Inn mjakast smám saman upp á við enda ekki seinna vænna, sumardagurinn fyrsti er i næstu viku. Strekkingur & * * Strekkingur Strekkingur Strekkingur é * Strekkingur 13 HongKong 20 Lissabon -4 New York San Francisco 2 Sydney Helsinki London • Amþrúður Karlsdóttir útvarps- kona á Sögu fer hamfömm á öldum ljósvakans sem aldrei fyrr og á í innihaldsrfkum og jafnvel innblásnum samræðum við þá sem hringja í út- varpsstöðina. Hún, og hennar fösm hlustendur fara ekki dult með andúð sína á ýmsum miðlum 365 og láta sig þá engu skipta að Saga nýtir sér fréttatíma fréttastofu Stöðvar 2 og Jón Ársæll Þórðarsson mannvinur, sálfræðingur og spyrill- inn snjaili á Stöð 2, er rödd útvarps- stöðvarinnar - les þar „treilera" af miklum móð... • Meðan Amþrúður Karlsdóttir rífst og skammast leikur hins vegar fyrrverandi kollegi hennar Ingvi Hrafn Jónsson við hvurn sinn fingur á Tal- stööinni. Hann er nú staddur sem oft- ar á Flórída og þaðan talar hann til sinna hlustenda, einlægur og opin- skár þannig að hlustendur fá það helst á tilfinninguna að þeir hafi í ógáti villst inn á rás sem útvarpar samtölum Vinah'nunnar. í gær ætlaði Ingvi Hrafri að kafna úr hlátri, en þetta var þegar hann var að kynna inn Guðlaug Þór Þórðar- son alþingismann, svo hláleg þótti honum tfðindin af hjólbörukaupum starfsmanna borgarinnar undir kampavín í afmælisveislu Ingibjarg- ar Sólrúnar Gfsladóttur. Guðlaugm Þór gat vel skemmt sér með Ingva á kostnað Ingibjargar... • Alveg virðist sama hversu mjög blaðamenn hlaupa á eftir sögusögnum um fyrirhugaða út- gáfustarfsemi sem kennd hefur verið við Karl Garðarsson og Sigurður G. Guðjónsson - alls staðar er komið að lokuðum dyr- um. Þeir tveir neita öllu þrátt fyrir að ýmsar ábendingar hafi borist DV þess efnis að undirbúningur standi yfir, menn upplýst að við þá hafi verið haft samband og Guöbrandur Magnússon fram- leiðslustjóri hefur sagt að Karl Garðarsson hafi farið fyrir hópi manna sem vildu semja um prent- un blaðs sem gárungarnir kalla nú Dularfulla dagblaðið. Menn velta fyrir sér hvernig þeir ætli að kynna fyrirbærið - það er eldur þar sem er reykur - eftir að hafa þverneitað fyrir að nokkuð sé hæft í þessum þráláta orðrómi... * ‘t' ¥

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.