Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 31

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 31
FRE YR 331 AuSur Djúpúðga ................. 10 Guðrún Ósvífursdóttir .......... 10 Laufey Valdimarsdóttir .......... 8 Ólöf ríka Loftsdóttir ........... 7 Þorbjörg Sveinsdóttir ........... 7 Aðalbjörg Sigurðardóttir .... 7 Sigrún P. Blöndal og Kristjana Pétursdóttir fengu 6 atkvæði. Helga Magnúsdóttir í Bræðra- tungu, Helga Jarlsdóttir, Guðrún Lárusdóttir og Halldóra Bjarnadóttir fengu 5 atkvæði, og svo kom löng röð með 1—4 atkvæði, en samtals voru 38 konur nefndar. Þá er þriðja spurningin, um frægustu höfuðból- in, er var svarað sem hér segir: Hólar í Hjaltadal ............. 18 Bessastaðir ................... 16 Skálholt ...................... 16 Hvanneyri ..................... 11 Grund í Eyjafirði ............. 11 Reykholt í Borgarfirði ........ 11 Möðruvellir í Hörgárdal ....... 10 Oddi á Rangárvöllum .......... 10 Reykhólar ...................... 9 Reynistaður í Skagafirði ....... 7 Næstir komu: Korpúlfsstaðir með 6 atkvæði, Þingeyrar með 5, og 3 atkvæði fengu: Haukadalur, Reykjahlíð, Laxamýri, Egilsstaðir, Rafnseyri, Kirkjubæjarklaustur, Skarð á Skarðsströnd, Viðey og Vatnsfjörður, og 17 önnur fengu eitt eða tvö atkvæði, en samtals var bent á 38 höfuðból. Að þessu sinni skal ekki fjölyrt frekar um nefndar niðurstöður, en viðeigandi væri að taka þessa þætti til nánari athugana. Væri það verkefni sagnfræðinga að líta frekar á þessa hluti og prófa ef hægt er hvort athafnir einstaklinganna virkilega hafa verið eða eru þess virði, að þeir teljist í hópi afburðamanna — eða kvenna — á nefndum sviðum, eða það eru bara ummæli einstaklinga í sögu eða sögn, er hafa gert hlutaðeigendur að hetjum eða skörungum. Þegar fyrirspurnunum var beint til lesendanna var heitið þrennum verðlaunum fyrir þátttöku. Voru það bækur, sem þegar hafa verið sendar til eftirtaldra manna, er dregnir voru úr hóp þeirra sem sendu úrlausnar: 1. Jón Böðvarsson, Grafardal, Borgarfjarðarsýslu. 2. Guðmundur Ólason, Smjörhóli, Öxarfirði. 3. Rögnvaldur Þórðarson, Dæli Svarfaðardal. Þakkar Freyr öllum aðilum fyrir þátttökuna. II. Úti í löndum ganga sagnir um það, að íslenzkir hestar verði mjög gamlir, og eru nefnd því til sönn- unar dæmi, sem geta um islenzka hesta er voru fertugir eða eldri þegar þeir voru felldir. Það væri fróðlegt að vita hve gamlir hestarnir okkar verða hér í heimalandinu. Freyr vill því hér- 'með biðja lesendur sína um aðstoð til þess að slá einhverju föstu um þau efni. En það eru ekki bara hestarnir, heldur og ann- að búfé, sem getur enzt misjafnlega vel. Því er viðeigandi að grennslast um gamlar ær og gamlar kýr. Hér er ekki verið að spyrja um meðalaldur þegar skepnunum er fargað eða þær eru felldar, heldur hver er hæsti aldur þessara skepna, eða sagt á annan hátt: Hve lengi endist búféð í þjón- ustu íslenzkra bænda? Óskað er eftir mörgum svörum og sé hver skepna, sem gerð er grein fyrir, skráð á sérstakt blað. Sem yfirskrift má setja: Hestur, hryssa ,kýr, naut, hrútur eða ær eftir því sem við á. Síðan skal nefna nafn skepnunnar, fæðingardag ef hann er þekktur og að minnsta kosti fæðingarárið og svo ár og dag þegar skepnan var felld. Einnig skal geta þess hver var eigandi hennar, og fróðlegt væri að fá ögn af upplýsingum um æviferil og afköst hverrar skepnu. Til þess að gera sér grein fyrir fyrirfram hvaða aldurstakmörk skal velja niðureftir, skal þess getið, að ekki er ástæða til þess að greina frá skepnum, sem náðu lægra aldri (eða eru yngri, því að skepn- ur sem enn eru á lífi má taka með, ef þær hafa náð lágmarksaldri þeim er hér getur) en eftir- farandi: Hestar ... 25 ára Hryssur .. ....20 — Kýr ....14 — Naut .... 8 — Ær ....10 — Hrútar .... . ... 6 — Svörum verður veitt móttaka til jóla. Séu þau send til Freys í lokuðu umslagi, merkt: Búfé. III. Sp. 11: Hvaða tegund smurningsolíu er heppileg- ust á sjálfa aflvélina í Allis Chalmers dráttarvél og hve mikið? Svar: Sumarolía S. A. E. 20, vetrarolía S. A. E. 20w. Skiptið um olíu eftir 50—60 stunda notkun. Tæplega fjóra lítra (4 quarts). Sp. 12: Hvaða feiti ber að nota á gearkassann og á tannhjólakerfið, og hve mikiö?

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.