Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 2. MAÍ2005
Fréttir DV
Af Hard Rock
ásafn
Vegna væntan-
legrar lokunar Hard
Rock í Kringlunni
hafa margir lýst
áhyggjum sínum
yfir framtíð minj-
anna sem á staðn-
um hafa verið en nú hefur
verið rætt við Poppminja-
safn íslands í Reykjanesbæ.
Til þess að tryggja að munir
í eigu íslenskra poppara,
sem þeir hafa falið staðn-
um til varðveislu, verði vel
varðveittir og á stað þar
sem þeim verður fullur
sómi sýndur er verið að
skoða þennan möguleika
um hugsanlega varðveislu
minjanna þótt ekkert hafi
verið ákveðið í þeim efiium
ennþá, en frá þessu er
greint á heimasíðunni
reykjanesbaer.is.-
FL-Group
hættirvið ol-
íufélögin
Forsvarsmenn Reykja-
nesbæjar og FL-Group
(Flugleiðir) hafa undirritað
viljayfirlýsingu þar sem
ráðgerð er uppbygging
mannvirkja í Helguvík til
innflutnings, geymslu og
flutnings eldsneytis á veg-
um FL-Group. Hingað til
hafa olíufélögin á landinu
þjónustað Flugleiðir með
flugvélaeldsneyti og hefur
það verið um 20% af heild-
arinnflumingi eldsneytis til
landsins og mun því inn-
flutningurinn draga veru-
lega úr hagnaði olíufélag-
Shadows í
Krikanum
Hin fom-
fræga breska
gítarhljóm-
sveit The
Shadows held-
ur eina tón-
leika í
Kaplakrika í
Hafnarfirði
þann 5. maí
næst komandi.
Tónleikarnir
em liður í lokatónleika-
ferðalagi sveitarinnar um
Evrópu. Á þessari tónleika-
ferð er The Shadows skipuð
uppmnalegum liðsmönn-
um, þeim Hank Marvin,
Bmce Welch og Brian
Bennett, auk annarra með-
spilara og leika þeir öll
frægustu lög sín. Tónleika-
ferðin heitir „the final tour“
og er ætlað að binda enda á
glæstan feril hljómsveitar-
innar. Örfáir miðar em enn
til á þessa stórtónleika.
Það vakti athygli vegfaranda þegar Atli Helgason, fangi á Litla-Hrauni, dældi bens-
ini á sjálfsafgreiðslustöð og keypti bragðaref. Atli segist hafa verið í stuttu leyfi til að
vera við jarðarför ömmu sinnar. Sjálfur ók hann um borgina með konu sinni og
stjúpdóttur. Hraðinn og stressið í borginni kom honum á óvart.
fltli dældi
bensíni og
keypti
brogðaref
„Það er rétt ég var viðstaddur útför ömmu minnar fyrir helgi en
hún var búin að vera lengi veik,“ segir Atli Helgason fangi á Litla-
Hrauni.
Atli Helgason Fór íjaröarför, dældi bensíni og keypti bragðaref.
Atli segir fangelsiskerfið bjóða
föngum upp á að sækja um leyfi og
þeir geti fengið það uppfylli þeir
ákveðin skilyrði:
„Ég sótti bara um eins og aðrir og
fékk leyfi. Menn verða að njóta
ákveðins trausts til að fá leyfið,“ seg-
ir Atli. Það kom honum margt á
óvart í þessari stuttu bæjarferð.
„Hraðinn var mikill og breytingarn-
ar mjög miklar."
Tók bensín og keypti ís
„Mér var ekið firá Litla-Hrauni á
Skólavörðustíg og þar biðu konan
mín og stjúpdóttir eftir mér,“ segir
Adi. „Við ókum beint í kirkjuna,
þaðan í Gufuneskirkjugarð og svo í
erfidrykkjuna. Þar hitti ég fólkið
mitt, en ég hafði ekki séð mörg
þeirra ansi lengi. Eftir erfidrykkjuna
ókum við beint aftur á Lida-Hraun.“
Á leiðinni upp á Litía-Hraun
þurftí Atíi hins vegar að taka bensín.
„Og ég keypti bragðaref handa
stjúpdóttur minni. Það er nú allt og
sumt,“ segir Atíi en ferð og ískaup
Atía vöktu athygli vegfarenda sem
voru hissa á að sjá hann utan fang-
elsismúranna.
Getur sótt um bæjarleyfi að
ári
Erlendur Baldursson hjá fang-
elsismálastofnun ríkisins segir að í
lögum sé heimild til að leyfa
föngum að vera við útför náinna
ættingja:
„Það á við ef börn, foreldrar eða
ömmur og afar látast en ekki vini,
kunningja eða fjarskylda ættingja.
Það er óskráð regla að við gerum'
allt sem við getum til að verða við
óskum fanga í þessum efnum og
þeir geta sótt um að fá að sækja út-
förina," segir Erlendur.
Atli hefur þegar afplánað fjögur
og hálft ár af dómi sínum. Það er því
ekki fyrr en í fyrsta lagi að ári sem
hann getur sótt um hefðbundið bæj-
arleyfi. Atíi segir að þennan eina dag
í Reykjavík hafi hann fundið fyrir
miklum hraða og stressi. Hann hafi
forðast gatnamót sem ekki hafi verið
til þegar hann fór inn í fangelsi en
honum finnst umferðin miklu
þyngri en áður.
„Ég var líka f hálfgerðum vand-
ræðum með að taka bensín því ég
kunni ekki á dæluna þegar ég þurfti
að dæla sjálfur. Ætli ég hafi ekki misst
tvö- eða þijúhundruð krónur í göt-
una því ég yfirfyllti bílinn,“ segir
hann en áður hefur Atli fengið að
skreppa í bæinn vegna veikinda ætt-
ingja.
Ánægjulegt að hitta frænd-
garðinn
Hann segir að þrátt fyrir að hann
„Ég var líka í hálfgerð-
um vandræðum með
að taka bensín því ég
kunni ekki á dæluna
þegar ég þurfti að
dæla sjálfur."
hafi verið við útför ömmu sinnar hafi
verið mjög ánægjulegt að hitta allan
frændgarðinn. Fólk hafi tekið hon-
um afar vel og fagnað honum.
„Ég er svo laus við að vera feim-
inn við fólk og ef fólk er óöruggt þeg-
ar það hittir mig þá hverfur það alveg
því ég gef ekki færi á því og er bara
eðlilegur," segir Atíi sem segist hafa
verið afar glaður að hafa fengið tæki-
færi til að hitta fólkið sem honum
þykir vænst um, annars staðar en
innan múranna.
bergijot@dv.is
Benedikt og Jóhannes Páll Nýi páfi ætlar að tala afsvölum páfaibúðarinnar á sunnudög-
um eins og fyrirrennarinn.
Sunnudagshugyekjan endurvakin í
Vatíkaninu
Nýr páfi frumsýndur
Benedikt XVI páfi talaði í gær til
tugþúsunda sem staddir voru á St.
Péturstorginu í fýrsta sinn. Hann
sagðist ætla að halda áfram þessari
hefð sem fýrirrennari hans, Jóhann-
es Páll II, bryddaði upp á í páfatíð
sinni. Benedikt talaði af svölum
páfaíbúðarinnar en hann fluttí inn í
hana á laugardaginn. Hann blessaði
Hvaö liggur á?
fólkið sem var saman komið á torg-
inu og óskaði meðlimum grísk-kaþ-
ólsku rétttrúnaðarkirkjunnar gieði-
legra páska. Páfi sagðist einnig hafa
óbeit á stríðum, fátækt og veikindum
heimsins og sagðist biðja sérstaklega
eftir friði, sátt og samlyndi í Afríku-
rrkinu Togo, þar sem íbúar búa við
„sársaukafullar innanríkisdeilur".
liggur núáað Ijúka þriðja bindinu afævisögu Halldórs Laxnes," segir Hannes Hólm-
steinn Gissurarson prófessor. „Er hér í Þjóðarbókhlöðunni að grúska í gömlum bréfasöfn-
um og blöðum enda markmiðið að draga fram í dagsljósið áhugaverðar staðreyndir. Ég
reyni nú að vera hérna í bókhlöðunni til sjö á hverju kvöldi eða þar til maður er rekinn út
með harðri hendi!"
Andi Live Aid svífur yfir vötnum
Geldof skipuleggur tónleika
gegn fátækt
Bob Geldof er byrjaður að
skipuleggja tónleika í anda Live
Aid til að beina sjónum leiðtoga G8
að fátækt í heiminum.
Fundur G8, leiðtoga voldugustu
ríkja heimsins, verður haldinn í
Skotíandi í byrjun júlí. Skýrsla, sem
Geldof kom að og leggur til að
lagðir séu rúmir þrjú þúsund millj-
arðar á ári í hjálparstarf og niður-
fellingu skulda, verður tekin fyrir á
fundinum. Geldof hefur áður sagt
að Live Aid verði aldrei endurtekið
en þar sem líklegt er að skýrslan
safni ryki hefur frést að hann vilji
nú gera enn stærri tónleika en síð-
ast.
Live Aid árið 1985 Talið er að einn og hálf-
ur milljarður hafí horft á útsendinguna.
Bob Geldof Vill halda enn stærri tónleika
en siðast.
„Þeir sem koma að Band Aid
hittast á næstu vikum til að sjá
hvort þetta sé raunhæft," segir
talsmaður Harvey Goldsmith, sem
var einn skipuleggjendanna á sín-
um tíma. „Bob veit að þetta er mik-
ilvæg tímasetning. Bæði vegna
þess að G8 fundurinn er haldinn,
Bretar eru í forsvari í Evrópusam-
bandinu og það eru tuttugu ár frá
því Live Aid var haldið."